Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Helga Vala gagnrýnir Willum Þór harðlega: „Var kannski ekki best að kjósa Fram­sókn?“

Þingkona Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, Helga Vala Helga­dóttir, gefur heilbrigðis­ráðherra, Willumi Þór Þórssyni, nokkrar snöggar stungur í pistli sem birtist var í Morgun­blaðinu í dag.

Helga Vala er undrandi á stöðunni í heilbrigðis­kerfinu hér á landi í ljósi kosninga­loforða Framsóknar­flokksins fyrir kosningarnar árið 2021:

„Sagðist flokk­ur­inn vilja skoða hvort til­efni væri til auk­ins einka­rekst­urs inn­an heil­brigðis­geir­ans, skila sem best­um og skjót­ust­um ár­angri, ráðast í fyr­ir­byggj­andi aðgerðir til að koma í veg fyr­ir vanda síðar og síðast en ekki síst tryggja öll­um íbú­um lands­ins þjón­ustu óháð bú­setu og efna­hag.“

Bætir við:

„Tvisvar á ári fær fjár­laga­nefnd inn­lit inn í heil­brigðis­kerfið við yf­ir­ferð sína um fjár­lög og fjár­mála­áætl­un og fær því býsna góða yf­ir­sýn yfir það hvar skór­inn krepp­ir og hvar hægt er að efla þjón­ustu og jafn­framt hagræða.

Nú þegar Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hef­ur ann­ast mála­flokk­inn í rúmt ár fáum við eng­ar fregn­ir af áætl­un­um ráðherra en hins veg­ar stöðugar fregn­ir af upp­sögn­um lyk­il­starfs­fólks af Land­spít­ala. Sex af níu sér­fræðilækn­um á bráðamót­töku hafa sagt upp störf­um og tug­ir hjúkr­un­ar­fræðinga flúðu óboðleg­ar starfs­aðstæður. Reynd­ur sér­fræðilækn­ir sem af­henti upp­sagn­ar­bréf sitt um ára­mót greindi svo frá að margít­rekað ákall til stjórn­valda um aukn­ar fjár­veit­ing­ar og aðgerðir hefði engu skilað.“

Helga Vala gagnrýnir einnig ummæli Björns Zoega, fyrr­verandi forstjóra Land­spítalans og ráðgjafa heilbrigðis­ráðherra, um að spítalinn væri ekki vanfjármagnaður:

„Nán­asti ráðgjafi heil­brigðis­ráðherra svaraði heil­brigðis­starfs­fólk­inu brott­flúna og þeim sem enn þrauka í störf­um sín­um með því að Land­spít­al­inn væri vel fjár­magnaður. Sagði hann þurfa að for­gangsraða í störf­um inn­an spít­al­ans en viður­kenndi reynd­ar að það sem mætti einnig nefna væri að verk­efni spít­al­ans væru of mörg!“

Velferðar­nefnd Alþingis á síðasta kjör­tímabili – undir formennsku Helgu Völu – grand­skoðaði heilbrigðis­kerfið til að komast að því hvar væri hægt að bæta flæði sem og verk­efnastjórn.

Hún segir að í niður­stöðum þeirrar vinnu hafi verið bent á að víða mætti dreifa verkefnum betur; til þess þyrftu þó stjórn­völd að veita aukið fjármagn til annarra heilbrigðis­stofnana Íslands:

„Við það að fjár­magn til heil­brigðis­stofn­ana um landið minnk­ar skerðist þjón­ust­an sem lend­ir á Land­spít­ala. Land­spít­al­inn er því í dag allt í senn þjóðar­sjúkra­hús, há­skóla­sjúkra­hús, bráða­sjúkra­hús, héraðs­sjúkra­hús og ann­ast öldrun­arþjón­ustu. En ráðherr­ann hef­ur ekki kynnt nein­ar fyr­ir­ætlan­ir í þá veru held­ur send­ir sinn helsta ráðgjafa út í fjöl­miðla til að mótmæla brott­flúnu og yfir­keyrðu starfs­fólki sem reyn­ir eft­ir fremsta megni að veita nauðsyn­lega heil­brigðis­þjón­ustu. Eng­in skila­boð eru um ein­hverja framtíðar­sýn, eng­in skila­boð til fólks um að það sé betra í vænd­um. Var kannski ekki best að kjósa Fram­sókn?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi