Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Fólskuleg líkamsárás í miðbænum – Karlmaður laminn í andlitið með meitli

Baksýnisspegill um Meitilsmálið. Myndin er samsett
Bak­sýn­is­speg­ill um Meit­ils­málið. Myndin er sam­sett

Þrír piltar réðust á fimm menn á Laugavegi með þeim afleiðingum að einn mannanna handleggs­brotnaði, annar rifbeins­brotnaði og þriðji var laminn í andlitið með meitli og missti að sökum þess þrettán tennur. Dren­girnir veittust að mönnum vopnaðir bareflum; rörbútum, spýtum og meitli. Tveir árásar­mannanna voru 16 ára og sá þriðji 15 ára þegar atvikið átti sér stað, klukkan 10 mínútur yfir sex, sunnudags­morguninn 24. apríl 1994.

Í dagbók lögreglu sem birtist í Morgun­blaðinu 26. apríl 1994 stóð:

„Alvarlegasta árásar­málið gerðist um kl. 06.10 á sunnudags­morgun þar sem þrír ungir menn réðust fyrst að tveimur á Laugavegi, annar þeirra hlaut handleggs­brot en hinn síðu­brotnaði nokkru síðar og var sá þriðji fyrir árás af sömu mönnum, en sá var laminn í andlit og brotnuðu 13 tennur. Árásar­mennirnir voru með barefli, prik, rörbút og meitil, en hann var notaður í andlit þess sem tennur brotnuðu í.“

Eftir árásinu hlupu piltarnir af vettvangi og niður á Hverfis­götu þar sem aðrir vegfarendur reyndu að hamla för þeirra og kölluðu eftir aðstoð lögreglu. Þá segir í annarri frétt í Morgun­blaðinu, 26. apríl 1994:

„Þá hafði einn mannanna, sem úrskurða í gæslu­varðhald sökum piltarnir réðust á á Laugavegi, veitt þeim eftirför og sló einn piltanna hann með meitli í andlitið, svo 13 tennur brotnuðu. Manninum tókst samt sem áður að hafa árásar­manninn undir og halda honum þar til lögregla kom á staðinn. Hinir piltamir tveir voru svo hand­teknir skammt frá.“ 

Skáskot úr Morg­un­blað­inu, þriðju­dag­inn 26. apríl, 1994. Bls 51.

Allir með afbrotasögu

Tveir piltanna voru úrskurðaðir í gæsluvarð en sá yngsti sem var einungis 15 ára gamall var sendur á Unglinga­heimili ríkisins og látinn laus eftir stutta viðveru.

Hinn 15 ára gamli hafði verið í hópi innbrots­þjófa, sem réðust að manni í Breið­holti, en fórnar­lambið hafði komið að þeim við innbrot.

Annar þeirra tveggja 16 ára var í hópi unglinga, sem hafði gengið berserks­gang og framið mikil skemmdar­verk í nokkrum sumar­bústöðum við Meðal­fellsvatn árinu áður.

Þriðji pilturinn átti sögu um ýmis afbrota og hafði ekki hafið afplánun dóms sem hann hlaut vegna annarra brota. Var hann því laus vegna þess að áfrýjunar­frestur til Hæstaréttar var ekki liðinn.

30 innbrot á 43 dögum

Miðvikudaginn 27. apríl 1994 birist samantekt í DV á brotum piltsins. Þar kom fram að hann hafi hlotið dóm vegna innbrota í 29 söluturna, myndbanda­leigur og sendi­bílastöð. Hafði hann rænt miklum fjárhæðum í innbrotunum og úr spila­kössum. Einn þeirra sem hann í liðtogi við aðra hafði sprengt í loft upp.

Pilturinn hlaut árs óskilorðsbundið fangelsi en hann átti að baki sér tvo aðra skilorðs­bundna dóma:

„Héraðs­dómur tók tillit til ungs aldurs piltsins og þess að hann játaði brot sín greiðlega. Á móti kom mikill fjöldi brota og að andvirði þess sem hann tók var yfir 800 þúsund krónur. Einnig það að hann stundaði brot sín sem um atvinnu væri að ræða.“

DV 27. apríl 1994, bls 3.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim