Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Getur munað rúmum 22 þúsund krónum á umfelgun fólksbíls

ASÍ ráð­leggur fólki að óska eftir stað­festu heild­ar­verði.

Umfelgun
Umfelgun Verð á umfelgun er mjög mis­mun­andi eftir verk­stæðum og felgu­stærð, sam­kvæmt könnun ASÍ.

Mikill verð­munur er á umfelgun og dekkja­skiptum hjá íslenskum dekkja­verk­stæðum sam­kvæmt nýjum verð­könn­unum verð­lags­eft­ir­lits ASÍ. Allt að 22.475 krónur geta skilið að hæsta og lægsta verð þegar skipt er um dekk á fólks­bíl með 22 tommu felgum.

Verð­lags­eft­ir­lit ASÍ kann­aði verð hjá 29 fyr­ir­tækjum á tíma­bil­inu 13. til 26. októ­ber. Skoðuð voru verð fyrir mis­mun­andi felgu­stærðir og bíla­flokka, en í sam­an­burð­inum eru yfir eitt þús­und verð frá fyr­ir­tækjum á tíu stöðum á land­inu.

Mesti verð­mun­ur­inn reynd­ist vera á umfelgun 22 tommu dekkja. Þar var lægsta verðið 13.900 krónur en það hæsta 36.375 krónur, sem jafn­gildir 161,7% mun. Fyrir 16 tommu felgur getur munað 6.000 krónum, eða 54,6%.

Þúsundir króna á milli verkstæða

Fyrir smá­bíla með 12–13 tommu felgur var lægsta verðið 8.990 krónur hjá Bíla­verk­stæð­inu No22 í Reykja­vík. Hæsta verðið var hjá N1, en verð þeirra mið­ast við 10–16 tommu felgur.

Fyrir 14–16 tommu felgur var lægsta verðið 10.990 krónur hjá Fast­parts í Hafn­ar­firði en það hæsta 16.990 krónur hjá N1.

Á 17 tommu felgum var lægsta verðið 12.900 krónur hjá No22 en hæsta verðið, 19.990 krónur, hjá N1, Betridekk og Kletti.

Fyrir stærri felgur var verð­mun­ur­inn enn meiri. Pitstop á Selfossi bauð umfelgun fólks­bíla á 13.900 krónur óháð dekkja­stærð og var því með lægsta verðið í sam­an­burði fyrir 18–22 tommu felgur. Hæsta verðið fyrir 20 tommu felgur var 31.760 krónur hjá Dekkja­höll­inni og fyrir 22 tommu felgur 36.375 krónur hjá MAX1 Bíla­vakt­inni.

ASÍ bendir á að heim­ili með tvo fólks­bíla á 16 tommu felgum geti sparað 12.000 krónur í einni umfelgun með því að velja lægsta verðið í stað þess hæsta. Ef báðir bílar fara tvisvar á ári í umfelgun getur mun­ur­inn numið 24.000 krónum.

Verðmunur einnig mikill á jeppum

Svipaða sögu er að segja af umfelgun jepp­linga og jeppa. Fyrir óbreyttan jeppa eða jepp­ling á 16 tommu felgum var lægsta verðið 10.990 krónur hjá Fast­parts en það hæsta 19.990 krónur hjá Betridekk. Munurinn nemur 81,9%.

Fyrir 20 tommu felgur var verð­bilið frá 15.490 krónum hjá MN Bíla­verk­stæði upp í 31.760 krónur hjá Dekkja­höll­inni.

Á breyttum jeppa með 35 tommu dekkjum var lægsta verðið 20.490 krónur hjá MN Bíla­verk­stæði en hæst 29.990 krónur hjá N1 og Kletti.

Dekkjaskipti geta verið ódýrari en umfelgun

Þegar sumar- og vetr­ar­dekk eru á sér­felgum er verð á dekkja­skiptum, með jafn­væg­is­still­ingu, á bil­inu 9.990 til 12.490 krónur fyrir fólks­bíla á 16 tommu felgum. Fyrir 17 tommu felgur er verðið 10.490 til 14.490 krónur.

Hjá BL Hrað­þjón­ustu, MN Bíla­verk­stæði og N1 eru hjóla­skipti 5.000 til 7.000 krónum ódýr­ari en umfelgun fyrir þessar felgu­stærðir. Ef skipt er tvisvar á ári getur sparn­að­ur­inn numið 10.000 til 14.000 krónum á bíl.

ASÍ bendir þó á að við ákvörðun um að eiga tvö felgu­sett þurfi einnig að taka mið af kostn­aði við kaup á auka­felgum, geymslu og við­haldi.

Afslættir og aukagjöld hafa áhrif

Verð­könn­unin tekur ekki til­lit til skil­yrtra afslátta. Dekkja­höllin býður til dæmis 12% afslátt við kaup á dekkjum og MAX1 veitir 15% afslátt af umfelgun þegar keypt eru fjögur dekk. Hjá N1 geta kort­hafar fengið afslátt og safnað punktum.

Neyt­endur þurfa einnig að kanna hvort verð mið­ist við ál- eða stálfelgur og hvort auka­gjöld séu fyrir lág­prófíldekk eða stærri bíla.

ASÍ ráð­leggur fólki að gefa upp rétta felgu­stærð, bíla­flokk og gerð felgna við bókun og óska eftir stað­festu heild­ar­verði.

Hægt er að bera saman verð á umfelgun og dekkja­skiptum á vef­síð­unni dekkja­skiptin.is.

Verð­könn­unin bygg­ist á verð­skrám 29 fyr­ir­tækja á tíu stöðum á land­inu og sýnir verð eins og þau voru skráð dag­ana 13. til 26. októ­ber 2026. Ekki var lagt mat á gæði þjón­ust­unnar.

Hægt er að nálg­ast töflu með öllum verðum hér: Umfelgun – Infogram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas