Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Kjartan spyr: „Mun Framsókn næst bjóða fram undir heitinu Framsókn og flugvallarandstæðingar?“

Kjartan Magnússon
Kjartan Magn­ús­son Mynd: kjartan.is

Kjartan Magn­ús­son borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir að það sé „póli­tísk ákvörðun meiri­hluta Fram­sókn­ar­flokks, Sam­fylk­ingar, Pírata og Við­reisnar að skerða nota­gildi Reykja­vík­ur­flug­vallar. Fyr­ir­liggj­andi eru álit fjöl­margra sér­fræð­inga, sem sýna að umrædd byggð mun skerða nota­gildi vall­ar­ins.“

Hann bætir því við að „það hefur lengi verið stærsta skipu­lags­mál Sam­fylk­ing­ar­innar að þrengja að Reykja­vík­ur­flug­velli og flæma þannig flug­vall­ar­starf­semi úr borg­inni. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur lengi staðið þétt að baki flug­vall­ar­starf­semi í Reykja­vík. Árið 2014 bauð flokk­ur­inn fram undir nafn­inu ,,Framsókn og flug­vall­ar­vinir“ til að ítreka stuðn­ing sinn við Reykja­vík­ur­flug­völl. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur nú tekið upp stefnu Sam­fylk­ing­ar­innar í mál­efnum Reykja­vík­ur­flug­vallar í skiptum fyrir borg­ar­stjóra­stól­inn. Vegna við­snún­ings Fram­sókn­ar­flokks­ins í mál­efnum Reykja­vík­ur­flug­vallar er eðli­legt að spurt sé:

Mun Framsókn næst bjóða fram undir heit­inu ,,Framsókn og flug­vallar­and­stæð­ingar“?“

Enn­fremur að „fyr­ir­huguð byggð í ,,Nýja Skerja­firði“ mun að óbreyttu þrengja að Reykja­vík­ur­flug­velli og skerða nota­gildi hans veru­lega vegna þeirra áhrifa, sem byggðin mun hafa á vinda­far á flug­vell­inum og í næsta nágrenni hans.

Örygg­is­nefnd Félags íslenskra atvinnu­flug­manna sendi frá sér ályktun þar sem harmað er að inn­við­a­ráð­herra hafi farið gegn frægu sam­komu­lagi frá 2019. Nefndin telur að gera þurfi mun ýtar­legri rann­sóknir en nú liggja fyrir varð­andi vinda­far til að skera úr um hvaða áhrif aukin byggð í Skerja­firði hafi á nota­gildi og öryggi vall­ar­ins. Frekari rann­sóknir eru því nauð­syn­legar áður en end­an­leg leyfi verða gefin fyrir við­bót­ar­byggð við Reykja­vík­ur­flug­völl.

Þessar rann­sóknir eru það sem til­laga borg­ar­full­trúa Sjálf­stæð­is­flokks­ins snýst um.“

Kjartan er klár á því að „Reykja­vík­ur­flug­völlur gegnir nú mjög mik­il­vægu hlut­verki á lands­vísu varð­andi far­þega­flug, sjúkra­flug og björg­un­ar­flug. Mik­il­vægi Reykja­vík­ur­flug­vallar sem vara­flug­vallar Kefla­vík­ur­flug­vallar hefur auk­ist mjög á und­an­förnum árum vegna stór­auk­innar flug­um­ferðar. Reykja­vík­ur­flug­völlur tekur nú við flestum flug­vélum utan Kefla­vík­ur­flug­vallar sem vara­flug­völlur sem á þarf að halda en flug­vell­irnir á Akureyri og Egils­stöðum eru af ýmsum ástæðum mjög tak­mark­aðir að þessu leyti.“

Nefnir einnig að „umrædd byggð mun lík­lega einnig skerða nota­gildi Reykja­vík­ur­flug­vallar sem vara­flug­vallar í milli­landa­flugi. Skert nota­gildi Reykja­vík­ur­flug­vallar sem vara­flug­vallar mun kosta flug­fé­lög, sem fljúga til og frá Íslandi, millj­arða króna árlega. Ástæðan er auk­inn kostn­aður við meiri elds­neyt­is­hleðslu svo flug­vélar nái til Glasgow ef ekki reyn­ist unnt að lenda þeim á Kefla­vík­ur­flug­velli. Slíkt myndi að sjálf­sögðu hækka verð á flug­miðum til og frá Íslandi.“

Kjartani þykir „und­ar­legt að full­trúar meiri­hluta­flokk­anna skuli enn og aftur vísa til Hvassa­hrauns sem óska­kosts varð­andi lagn­ingu nýs milli­landa­flug­vallar, þrátt fyrir að löngu sé orðið ljóst að sú hug­mynd sé óraun­hæf.

Jarð­vís­inda­menn hafa lengi varað ráða­menn við slíku stað­ar­vali vegna jarð­hrær­inga og eld­gosa­hættu. Atvinnu­flug­menn hafa einnig um langt skeið varað við flug­velli í Hvassa­hrauni vegna lélegra aðflugs­skil­yrða og svipti­vinda.

Ekki hefur verið gerð full­nægj­andi flug­fræði­leg rann­sókn á vinda­fari við völl­inn eins og sér­fræð­ingar hafa bent á.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas