Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Rifjar upp óvenjulega undirritun Sigmundar Davíðs

„Þeir sögðu ekkert, þó þeir væru þráspurðir fram og til baka hvaða skoðun þeir hefðu á málunum,“

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, fyrrverandi forsætisráðherra
Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra Er þing­flokks­for­maður Mið­flokks­ins Mynd: Víkingur

Fyrr­verandi þingmaður Pírata, Björn Leví Gunnarsson, segir misskilning og óskýra samskipta­hætti skýra þá stöðu sem upp er komin eftir að Sigríður Andersen, þing­flokks­formaður Miðflokksins, sagðist ekki kannast við að samið hefði verið um lok umræðu á Alþingi um Evrópu­sambandsmál.

Í ítarlegri færslu fjallar Björn Leví um hvernig slíkur ágrein­ingur geti orðið til við þinglok og í samskiptum þing­flokks­formanna. Þar nefnir hann þrjár mögulegar skýringar á stöðunni.

Í fyrsta lagi segir hann að Sigríður Andersen hafi annaðhvort ekki rætt málið nægilega skýrt við eigin þingflokk eða ekki fengið upplýsingar um að samkomulag hefði legið fyrir.

Í öðru lagi segir hann að þing­flokks­formaður Miðflokksins hafi ekki gert athuga­semdir á fundi þing­flokks­formanna og að forseti Alþingis hafi því túlkað þögnina sem samþykki allra aðila. Björn Leví segir slíkt þó hafa verið algengt hjá Miðflokknum á sínum tíma á Alþingi.

„Þeir sögðu ekkert, þó þeir væru þráspurðir fram og til baka hvaða skoðun þeir hefðu á málunum,“ skrifar hann og bætir við að það hafi verið mistök hjá forseta þingsins að líta á þögn sem samþykki.

Jafnframt gagnrýnir hann Miðflokkinn fyrir að svara ekki skýrt þegar óskað sé eftir afstöðu flokksins og segir það óheiðarlegt að láta hjá líða að hafna samkomu­lagi með skýrum hætti.

Þá segir Björn Leví að samkomulag hafi í raun legið fyrir við alla aðra flokka en Miðflokkinn og að aðrir þingmenn hafi einfald­lega hætt að eltast við afstöðu flokksins vegna þess hversu erfitt hafi reynst að fá skýr svör.

Hann rifjar einnig upp dæmi frá þinglokum þegar Píratar hafi farið fram á skriflegt samkomulag um þinglok vegna ágrein­ings um hvað hefði verið samþykkt. „Það tókst að lokum - nema hvað SDG skrifaði undir "samkvæmt samtali, SDG" - og komst þannig frá því að skrifa undir það sem stóð svart á hvítu á blaðinu.“

Að lokum bendir Björn Leví á að Sigríður Andersen sé sjálf þing­flokks­formaður og beri því sjálf ábyrgð á að vera upplýst um stöðu samninga og samkomu­laga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Ökumaður fólksbíls lést í árekstri á Suður­stranda­vegi

Tilkynning um slysið barst lögreglu skömmu eftir klukkan fjögur síðdegis í gær
Menning

Elísabet saknar jólanna með þér

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Ökkla­brotnaði á gangbraut en þarf að greiða ökumanninum máls­kostnað

Innlent

Vildi fá Skódann sinn aftur en lögreglan heldur honum áfram

Pólitík

„Við skulum ekki gera lítið úr baráttu íslenskra kvenna“

Á alþjóðadegi Sameinuðu þjóðanna gegn ofbeldi á konum ræddi Diljá Mist Einarsdóttir stöðu kvenna
  • Grímur þekkir óttann um öryggi fjöl­skyldunnar

  • Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

  • „Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“

  • Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

  • Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind