Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi í fyrra­dag karl­mann í þriggja og hálfs árs fang­elsi

Héraðsdómur Vesturlands er í Borgarnesi
Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands er í Borg­ar­nesi Mynd: Wikipedia/Chensiyuan

Hér­aðs­dómur Vest­ur­lands dæmdi í fyrra­dag karl­mann í þriggja og hálfs árs fang­elsi fyrir stór­fellt brot í nánu sam­bandi og alvar­lega lík­ams­árás gegn sam­býl­is­konu sinni. Maðurinn hafði verið ákærður fyrir til­raun til mann­dráps en var sýkn­aður af þeim hluta ákærunnar.

Árásin átti sér stað á heim­ili pars­ins. Samkvæmt fram­burði kon­unnar spark­aði mað­ur­inn upp hurð að svefn­her­bergi þar sem hún hafði læst sig inni. Hann réðst síðan á hana í rúm­inu, sló hana ítrekað í and­litið, reif í hár hennar, hélt fyrir munn hennar og nef og tók hana kyrk­ing­ar­taki.

Nágranni kall­aði til lög­reglu eftir að hafa heyrt öskur og ógn­andi karl­manns­rödd. Þegar lög­reglu­menn komu á vett­vang var konan í miklu upp­námi og með sjá­an­lega áverka. Blóð­slettur fund­ust í svefn­her­berg­inu auk hár­lokks og eyrna­lokks kon­unnar.

Maðurinn neit­aði sök og hélt því fram að konan hefði ráð­ist á sig. Dómurinn taldi fram­burð hans hins vegar ótrú­verð­ugan en frá­sögn kon­unnar studda lækn­is­fræði­legum gögnum og öðrum gögnum máls­ins.

Áverkar á hálsi kon­unnar bentu til þess að veru­legur kraftur hefði verið not­aður við kyrk­ing­una. Rétt­ar­læknir sagði slíkt kyrk­ing­ar­tak geta skapað lífs­hættu­legt ástand.

Ekki var þó talið full­sannað að mað­ur­inn hefði haft ásetn­ing til að bana kon­unni og var hann því ekki sak­felldur fyrir til­raun til mann­dráps.

Við ákvörðun refs­ingar var meðal ann­ars horft til þess að mað­ur­inn hafði áður verið dæmdur fyrir ofbeldi gegn sömu konu. Dómurinn lýsti árásinni sem hrotta­legri.

Manninum var einnig gert að greiða kon­unni 1,2 millj­ónir króna í miska­bætur og rúmar 4,1 milljón króna í sak­ar­kostnað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum