Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Dóttir Heidi Klum fann kynlífstæki móður sinnar: „Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð“

Heidi og Leni
Heidi og Leni Mynd: Trausti Hafsteinsson

Eldri dóttir Heidi Klum fann kyn­lífstækja­skúffu mömmu sinnar og sýndi vinum sínum.

Ofur­fyr­ir­sætan Heidi Klum við­ur­kenndi í við­tali nýlega að eldri dóttir hennar, Leni Klum, sem hún á með fyrr­ver­andi eig­in­manni sínum, söngv­ar­anum Seal, hafi eitt sinn fundið kyn­lífstækja­safn hennar, fyrir til­viljun, eða eins og Heidi orðar það: „Hún fann kyn­lífs­skáp­inn minn.“

Þrátt fyrir að atvikið hafi átt sér stað þegar hin 19 ára Leni var yngri, hafði það tölu­verð áhrif á hana, en hún hringdi inn í nýjasta við­tal mömmu sinnar til að rifja upp atvikið.

„Mér fannst þetta það svalasta sem ég hafði séð,“ sagði Leni í FaceTime spjalli þegar Heidi kom fram í þætt­inum Call Her Daddy, í gær. „Ég skoð­aði þetta með vinum mínum.“

Hin unga fyr­ir­sæta hélt áfram: „Ég var að sýna vinum mínum þetta og bara „Sjáði hvað þetta er svalt. Mamma mín á heila kommóðu, hún á heila skúffu.“ Og ég laum­aði vinum mínum inn í her­bergi mömmu og opn­aði skúff­una og við tókum öll mynd­bönd.“

Leni seg­ist ekki hafa „haft nokkra hug­mynd“ um það hvað hún fann á þeim tíma, en það kom þó ekki í veg fyrir að Heidi kenndi henni lexíu varð­andi það að virða frið­helgi fólks. „Mamma varð svo reið við mig, bara „Þú getur ekki farið í dótið mitt“.“

En það þýðir ekki að kyn­líf sé bann­orð á heim­ili Klum. Heidi lítur á sig sem mjög kyn­ferð­is­lega mann­eskju og talar „mjög ítar­lega“ um töfra­sprot­ann sem upp­á­halds kyn­lífs­leik­fangið sitt og seg­ist ein­stak­lega sátt við að vera nakin. Reyndar hefur sú venja hennar að baða sig í sól­inni ber­brjósta í bak­garð­inu heima oft sett Leni í óþægi­lega stöðu með ung­lings­vinum sínum.

„Ég man að ég fékk vin­konur mínar í heim­sókn og varð svo skömmustu­leg og hrædd,“ sagði Leni og hló. „Vinir mínir urðu oft nokkuð hvumsa en þetta hefur alltaf verið svo eði­legt í okkar fjöl­skyldu.“

„Þannig var ég alin upp,“ segir Heidi. „For­eldrar mínir hlupu naktir um húsið,“ sagði Heidi, sem nú starfar sem dóm­ari í America´s Got Talent hæfi­leika­þátt­unum. „Við fórum á nekt­ar­strendru. Við áttum hús­bíl og fórum á staði þar sem allir eru naktir.“

Hins­vegar seg­ist Heidi vera meira klædd heima fyrir, þar sem krakk­arnir hennar, Henry, 18 ára, Johan, 16 ára og Lou, 13 ára, eru „ekki eins opin og ég,“ sagði Heidi. „Sem er und­ar­legt því ég hef verið svona allt þeirra líf. Kannski verða þau seinna í líf­inu þannig.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Sjálfvirkt brunavarnakerfi sprautaði vatni yfir matsöluskála á skíðasvæði í Kína. Enginn slasaðist en loka þurfti skálanum tímabundið.
Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Menning

Ein besta rapp­sveit Íslands­sög­unnar snýr aftur á svið

Dóttir.x til­nefnd til Music Moves Europe-verð­laun­anna 2027