Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

„Við deilum ekki sviði með þjóðarmorðingjum“

Kristinn Hrafns­son og Auður Jóns­dóttir bæt­ast í hóp þekktra Íslend­inga sem vilja að Ísland taki ekki þátt í Eurovision á næsta ári.

Yuval Raphael
Yuval Raphael Raphael tók þátt fyrir Ísrael í Eurovision á þessu ári Mynd: AFP

Gríð­ar­leg pressa er nú á stjórn RÚV vegna þeirrar ákvörð­unar sem hún þarf að taka á morgun vegna Eurovision. Þarf stjórnin að segja af eða á með þátt­töku Íslands í keppn­inni á næsta ári en nú þegar hafa fjögur Evr­ópu­lönd dregið sig úr keppn­inni vegna þátt­töku Ísraels.

Félag tón­skálda og texta­höf­unda hvöttu stjórn RÚV til þess að snið­ganga keppn­ina í gær og Logi Ein­ars­son, menn­ingar-, nýsköp­unar- og háskóla­ráð­herra, vill einnig að Ísland dragi sig úr Eurovision. Páll Óskar Hjálmtýs­son, Helga Möller og Björk Guð­munds­dóttir hafa einnig þrýst á RÚV varð­andi málið. Þá hefur verið boð­aður sam­stöðu­fundur fyrir utan bæki­stöðvar RÚV í Engi­hjall­anum klukkan 14:30 á morgun, rétt áður en fundur stjórn­ar­innar hefst. Og nú hafa Kristinn Hrafns­son og Auður Jóns­dóttir bæst í hóp þeirra sem vilja að stjórn RÚV taki þá ákvörðun að Ísland taki ekki þátt í Eurovision á meðan Ísrael keppir þar.

Kristinn, sem er rit­stjóri Wikileaks, skrif­aði færslu í dag þar sem hann segir að ákvörðun stjórn­ar­innar sé hreint ekki erfið:

„Stjórn RUV mun víst á morgun taka form­lega ákvörðun um þátt­töku í Eurovision. Ég reikna með að sú stjórn hafi oft þurft að taka erf­iðar ákvarð­anir en þessi er ekki ein af þeim. Það er úti­lokað annað en að snið­ganga þessa keppni. Spán­verjar, Slóvenar, Hol­lend­ingar og Írar hafa nú þegar sagt sig frá henni og Pól­verjar og fleiri þjóðir ákveða sig síðar í mán­uð­inum. Við deilum ekki sviði með þjóð­ar­morð­ingjum.“

Auður Jóns­dóttir, rit­höf­undur og fjöl­miðla­kona skrif­aði einnig færslu í dag þar sem hún segir að þátt­taka í Eurovision yrði hrein og bein gas­lýs­ing í hugum margra hér á landi.

„Ég vona svo inni­lega að stjórn RÚV úti­loki þátt­töku Íslend­inga í Eurovision. Svo margir finna til van­máttar gagn­vart þessu kerf­is­bundna þjóð­ar­morði að þátt­taka væri hrein og bein gas­lýs­ing í hugum margra hér á landi. Ef nið­ur­staðan verður önnur er víst fátt annað í spil­unum en að fara í setu­verk­fall við RÚV með kaffi á brúsa og prjóna – og norpa þar sem áminn­ing. Getur ein­hver lánað mér kuldagalla?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas