Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Kalla eftir aukinni réttarvernd dýra

„Dýr geta aug­ljós­lega ekki sjálf leitað réttar síns eða kært stjórn­valds­á­kvarð­anir sem hafa áhrif á vel­ferð þeirra“

Blóðmerahald er leyfilegt á Íslandi
Blóð­mera­hald er leyfi­legt á Íslandi Dýra­vernd­ar­sam­tökin vilja aukna rétt­ar­vernd til handa dýrum Mynd: © Animal Welfare Foundation.

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands og Samtök um dýra­vel­ferð á Íslandi kalla eftir breyt­ingum á lögum svo við­ur­kenndum dýra­vernd­ar­sam­tökum verði heim­ilt að kæra stjórn­valds­á­kvarð­anir sem varða vel­ferð dýra. Samtökin segja núver­andi fyr­ir­komu­lag skapa „rof í rétt­ar­vernd dýra“ hér á landi.

Samtökin segja mikið skorta á almennan aðgang að rétt­læti fyrir hönd dýra á Íslandi. Dýra­vernd­ar­sam­tök geti í dag ekki borið ákvarð­anir Mat­væla­stofn­unar (MAST), sem fer með eft­ir­lit með vel­ferð dýra, undir æðra stjórn­vald.

Þar með séu mögu­leikar sam­tak­anna til að gæta hags­muna dýra innan stjórn­sýsl­unnar tak­mark­aðir eða jafn­vel engir. Að mati sam­tak­anna sam­ræm­ist það illa mik­il­vægu hlut­verki þeirra við að gæta hags­muna og vel­ferðar dýra.

Kæru vegna starfsleyfis Ísteka vísað frá

Samtökin benda meðal ann­ars á mál sem kom upp í sumar þegar íslensk og erlend dýra­vernd­ar­sam­tök kærðu ákvörðun MAST til atvinnu­vega­ráðu­neyt­is­ins.

Kæran laut að ákvörðun MAST um að veita Ísteka hf. skil­yrt starfs­leyfi til blóð­töku úr fyl­fullum hryssum vegna lyfja­fram­leiðslu. Samtökin kröfð­ust þess að ákvörð­unin yrði ógilt eða, til vara, end­ur­skoðuð.

Að mati sam­tak­anna upp­fyllir blóð­mera­hald ekki skil­yrði þeirrar reglu­gerðar sem starf­semin fellur undir. Þau vísa meðal ann­ars til þess að ekki eigi að heim­ila notkun dýra í vís­inda­skyni ef hægt sé að ná sama mark­miði með öðrum aðferðum.

Samtökin segja slíka val­kosti vera fyrir hendi, meðal ann­ars þar sem fjöldi frjó­sem­is­lyfja sé á mark­aði auk aðferða í búfjár­rækt sem ekki krefj­ist notk­unar lyfja.

Þrátt fyrir þetta, og þrátt fyrir nei­kvæða umsögn fagráðs um vel­ferð dýra, hafi MAST veitt Ísteka skil­yrt starfs­leyfi í vor.

Atvinnu­vega­ráðu­neytið tók hins vegar ekki efn­is­lega afstöðu til þeirra sjón­ar­miða sem fram komu í kærunni. Kærunni var vísað frá á þeim grund­velli að dýra­vernd­ar­sam­tökin hefðu ekki nægi­lega beina og lögvarða hags­muni af mál­inu til að telj­ast aðilar þess.

Segja þetta endurtaka sig

Dýra­vernd­ar­sam­band Íslands og Samtök um dýra­vel­ferð á Íslandi segja þetta ekki eins­dæmi.

Erindum dýra­vernd­ar­sam­taka vegna ákvarð­ana og máls­með­ferðar MAST sé ítrekað vísað frá með þeim rökum að sam­tökin telj­ist ekki eiga aðild að mál­unum.

Afleið­ingin sé sú að ákvarð­anir stjórn­valda sem varði vel­ferð dýra geti farið hjá því að sæta efn­is­legri end­ur­skoðun æðra stjórn­valds.

„Dýr geta aug­ljós­lega ekki sjálf leitað réttar síns eða kært stjórn­valds­á­kvarð­anir sem hafa áhrif á vel­ferð þeirra,“ segja sam­tökin.

Þegar sam­tökum sem hafi það hlut­verk að gæta hags­muna dýra sé jafn­framt synjað um aðild að slíkum málum mynd­ist að þeirra mati „aug­ljóst rof í rétt­ar­vernd dýra“.

Vilja sambærilega heimild og umhverfissamtök hafa

Samtökin kalla nú eftir því að við heild­ar­end­ur­skoðun laga um vel­ferð dýra, sem nú er til með­ferðar hjá atvinnu­vega­ráðu­neyt­inu, verði skýr laga­heim­ild sett inn um kæru­heim­ildir dýra­vernd­ar­sam­taka.

Þau vilja að við­ur­kenndum dýra­vernd­ar­sam­tökum verði heim­ilt að kæra stjórn­valds­á­kvarð­anir sem varða vel­ferð dýra, að sam­bæri­legum skil­yrðum upp­fylltum og gilda um umhverf­is­vernd­ar­sam­tök.

„Efla þarf rétt­ar­vernd dýra á Íslandi. Dýra­vernd­ar­sam­tök verða að geta leitað réttar fyrir hönd dýra innan stjórn­sýsl­unnar,“ segja sam­tökin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas