Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Klofin stjórn RÚV enduræður Stefán í skugga símamálsins – Varaformaður ósáttur með að auglýsa ekki

Höfuðstöðvar Ríkisútvarpsins.
Höf­uð­stöðvar Rík­is­út­varps­ins.

Stefán Eiríks­son útvarps­stjóri var end­ur­ráð­inn með minnsta mögu­lega meiri­hluta stjórnar Rík­is­út­varps­ins. Fjórir af níu stjórn­ar­mönnum lýstu sig and­víga end­ur­ráðn­ingu hans og vildu aug­lýsa en fimm vildu ganga starx frá end­ur­ráðn­ingu til fimm ára. Stjórn var því þver­k­lofin. Stefán er umdeildur. Yfir starfi hans hvílir skuggi síma­máls Páls Stein­gríms­sonar skip­stjóra.

Páll Stein­gríms­son og Þóra Arn­órs­dóttir, fyrr­ver­andi rit­stjóri Kveiks. Myndin er sam­sett

Starfs­menn Rík­is­út­varps­ins voru í lyk­il­hlut­verki við að brjóta upp síma skip­stjór­ans án þess þó að nýta þau gögn í þágu fjöl­mið­ils­ins. Fyrr­ver­andi eig­in­kona skip­stjór­ans rændi sím­anum af sjúkra­beði Páls og hefur vitnað um að hafa farið með hann í höf­uð­stöðvar RÚV þar sem Þóra Arn­órs­dóttir, fyrr­ver­andi rit­stjóri Kveiks, og aðal­fram­lei­aðndi þátt­ar­ins tók við sím­anum. Fréttir byggðar á gögn­unum birt­ust síðan í Kjarn­anum og Stund­inni,.

Stjórn Rík­is­út­varps­ins er póli­tískt skipuð. Full­trúar Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Við­reisnar og VG vildu láta aug­lýsa en Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Sam­fylk­ing, Píratar og Flokkur fólks­ins slógu skjald­borg um útvarps­stjór­ann og tryggðu honum end­ur­ráðn­ingu. Þeir fimm stjórn­ar­menn sem vilja ekki láta aug­lýsa eru Silja Dögg Gunn­ars­dótt­ir, full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, Mörður Áslaug­ar­son, full­trúi Pírata, Mar­grét Tryggva­dótt­ir, full­trúi Sam­fylk­ing­ar, Aron Ólafs­son, full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Þrá­inn Óskars­son, full­trúi Flokks fólks­ins.

Ingvar Smári Birg­is­son, vara­for­maður stjórnar RÚV, vakti athygli á mál­inu í færslu á Facebook.

„Ég var á þeirri skoðun, ásamt þremur öðrum stjórn­ar­mönnum (sam­tals 9 í stjórn­inni), að með réttu hefði átt að aug­lýsa stöð­una, enda sam­ræm­ast slík vinnu­brögð best þeim gagn­sæju vinnu­brögðum sem þurfa að ein­kenna störf Rík­is­út­varps­ins,“ skrifar hann.

Stefán var ráð­inn útvarps­stjóri í árs­byrjun 2020. Í jan­úar í fyrra greindi Stefán frá því í Bítinu á Bylgj­unni að hann hygð­ist hætta sem útvarps­stjóri þegar skip­un­ar­tíma hans lyki. Hann skipti svo um skoðun fyrir nokkru og upp­lýsti um þann vilja sinn að halda áfram í starfi sínu.

Stefán Eiríks­son er ekki á förum en umboð hans er veikt.

Útvarps­stjóri er lögum sam­kvæmt ráð­inn til fimm ára í senn. Heimilt er að end­ur­ráða hann einu sinni. Meiri­hluti stjórnar Rík­is­út­varps­ins ohf. ákvað á fundi sínum að nýta sér þá heim­ild og Stefán verður sam­kvæmt því útvarps­stjóri allt til árs­ins 2030.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn