Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Blygðunarlausir apakettir stefna veröldinni í hörmungar

Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna
Donald Trump fyrr­ver­andi for­seti Banda­ríkj­anna

„Ef þú ert nógu mikill rugludallur og helst dóni líka sem skeytir engu um sannleika eða rök, geturðu verið nokkuð viss um að þú eigir góðan sjens á að ná í um það bil 20% fylgi í kosningum, jafnvel meira. Slíkt fylgi er nóg til að hafa veruleg áhrif í vestrænum lýðræðisríkjum.“

Þetta skrifar Guð­mundur Stein­gríms­son í viku­legum pistli í Frétta­blað­inu. Máli sínu til stuðn­ings nefnir Guð­mundur sér­stak­lega Donald Trump sem á und­an­förnum vikum hefur afhjúpað sig sem grímu­lausan ras­ista og dóna. Það sama sé að ger­ast í Bret­landi og útlit er fyrir að á Íslandi ætli nokkrir að leika þennan leik. „Dónaröfl á Klaust­ur­bar skilar árangri. Virð­ing­ar­leysi fyrir stað­reyndum í flóknum deilu­málum líka. Í raun­inni er þetta mesta nýj­ungin í stjórn­mála­kænsku á síð­ari árum. Vertu bara nógu mik­ill asni.“

Fyrir þessu eru nokkrar ástæður, segir Guð­mundur. Í fyrsta lagi eigi þessi hegðun hljóm­grunn hjá kjós­endum sem eru svo óánægðir með til­ver­una að þeir vilja helst kjósa þá sem gera mestan usla. Í öðru lægi virkar asna­skapur í offlæði upp­lýs­inga þar sem sumir kjós­endur vilja ekki láta sér­fræð­inga segja sér fyrir verkum. Í þriðja lagi nefnir Guð­mundur það yfir­grips­mikla van­traust sem ríkir í garð stjórn­mála sem stafar meðal ann­ars af því að stjórn­mála­menn ráða í raun engu. Þeir lofa fyrir kosn­ingar en þegar á hólm­inn er komið kemur í ljós að stjórn­mála­menn ráða engu einir og ná þar af leið­andi ekki að upp­fylla lof­orðin.

Fjórða ástæðan, segir Guð­mundur, er sú alvar­leg­asta. Hún er ein­fald­lega sú að það er til óhemju fjöldi fólks sem trúir rugli. „Jörðin er flöt. Evr­ópu­sam­bandið er sam­særi. Litað fólk á að fara „heim til sín“. Gróð­ur­húsa­á­hrifin eru ekki til. Ef þú ert þannig inn­rétt­aður, eins og Trump og fleiri, get­urðu talað til þessa fólks og verið þess maður. Atkvæði er atkvæði.“

En hven­rig á að breg­aðst við þessu, spyr Guð­mundur, því mann­kynið megi ekki við svona lög­uðu. „Blygð­un­ar­lausir apa­k­ettir mega ekki æða með ver­öld­ina í enn einn hörm­ung­ar­hring­inn. Jörðin hitnar. Nú þarf aðgerðir og sam­stöðu. Ógnir blasa við. Stærsta við­fangs­efni nútíma­stjórn­mála — og lífið liggur við — er að finna leið til þess að segja drullu­sokkum á ein­hvern hátt sem virkar að grjót­halda kjafti og skamm­ast sín.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas