Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Skoðun

Ég ber virðingu fyrir öllum

Minning

Þrír skip­verjar fórust

Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Innlent

Fréttir af Jökli minntu Sigurð á biðina við símann á jóladag

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Þór óttast aukið ofbeldi Sjálfstæðismanna eftir árás á Sósíalista: „Í grunninn glæpaklíka“

Þór Saari, fyrr­verandi þingmaður, óttast að skemmda­verkin sem voru framin á húsnæði Sósíal­ista um helgina séu merki um aukna hörku og ofbeldis­hneigð meðal Sjálfstæðis­manna. Um helgina var húsnæði Sósíalista­flokks Íslands grýtt og Gunnari Smára hótað af manni sem kvaddi „Viva Bjarni Ben“.

Sjá einnig: Gunnari Smára hótað: „Ekki bara belgingur eins og hótanir eru oftast – Viva Bjarni Ben!“

Þór segir í pistli sem hann birtir á Facebook að það sé ekki svo langsótt í ljósi þess að Sjálfstæðis­menn eigi það til að elta nýjustu strauma í hægri­mennsku vestanhafs. Þór segir flokkinn hafa margt á samviskunni þó ofbeldi sé ekki þar á meðal.

„Það er spurning hvort Skrímsla­deild Sjálfstæðis­flokksins sé að færa út kvíarnar, aftur. Frá 30. mars 1949 hafa þeir látið opinbert ofbeldi liggja í láginni en notað þess í stað óhróður, undir­róður, fals­fréttir, Berufsverbot og aðrar miður geðfelldar aðferðir svo sem að slúðra í Bandaríska sendi­ráðinu, gegn meintum andstæðingum flokksins. Aðferðir sem hafa haft slæm áhrif á líf og lífs­afkomu fjölda fólks gegnum áratugina,“ segir Þór.

Þór segir það segja sína sögu að uppáhalds bíómynd Bjarna Benedikts­sonar, formanns flokksins, sé the Godfather. „Þetta er alvarleg þróun en í takt við það sem er að gerast hjá systur­flokki Sjálfstæðisflokkins í Banda­ríkjunum, Repúblikana­flokknum, sem hefur elt forystu­sauð sinn Donald Trump fram af brúninni hvað lýðræðið varðar og bæði beitir og hótar ofbeldi. Minnumst þess að það var ráðherrra Sjálfstæðis­flokksins og næsti formaður hans, Guðlaugur Þór Þórðarson sem faðmaði tvö böðla Trumps, það Mike Pence og Mike Pompeio, þegar þeim var boðið hingað í opinberar heim­sóknir. Stálhnefa tal háttsetts fólks í flokknum hefur fært hann nær fasisma í pólitískri umræðu og sú staðreynd að bíómyndin Guðfaðirinn er að uppáhalds­mynd núverandi formanns flokksins segir kannski meira en mörg orð um hugarheim hans,“ skrifar Þór.

Hann segir Sjálfstæðis­flokkinn haga sér frekar eins og gengi en stjórn­málaflokkur. „Ég tek undir með Gunnari Smára og fleirum þegar hann tjáir sig um Sjálfstæðis­flokkinn og segir: „Í grunninn er Sjálfstæðis­flokkurinn glæpa­klíka þar sem níðings­skapur gagnvart utan­flokksfólki er verð­launaður en allt sem gert er gagnvart flokks­fólki er hefnt margfalt.“

Ég fékk nýlega spurningu frá Hannesi Hólmsteini um hvort ég væri enn þeirrar skoðunar að rétt hefði verið að senda Geir H. Haarde fyrir Landsdóm á sínum tíma, þannig að skrá­setningin gegn meintum óvinum flokksins er komin á akademískt stig. Hvað getur maður svo sagt gagnvart svona, annað en að maður er þakklátur fyrir að vera ekki siðlaus Sjálfstæðis­maður og hluti af þeirri viðbjóðs­klíku sem sá flokkur er,“ segir Þór.

Að lokum segir efast Þór um rannsókn málsins verði í forgangi hjá lögreglunni og vísar til þess að Sjálfstæðis­menn hafa stýrt lögreglunni nær alla lýðveldis­söguna. „Hvað um það. Þetta mál hefur verið kært til lögreglu og það verður fróðlegt að sjá hvort hún sinnir skyldum sínum gagnvart borgurunum, eða skyldum sínum gagnvart Sjálfstæðis­flokknum, við rannsókn þessa máls.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólks landsins hefur efni á

Húsið var reist árið 2024
Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Innlent

Einn fluttur á bráða­móttöku

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Innlent

Blaða­maður fær ekki gögn um fund Tony Blair með sendi­herra Íslands

Innlent

Þingmenn risu úr sætum til að heiðra sjómennina á Jökli

„Við syrgjum sjómennina þrjá sem létu lífið í sjóslysinu í gær“

„Girðið ykkur í brók og komið þessu í lag“

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Annar björgunar­báturinn var fastur og hinn rak frá skip­verjum