Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

828 milljóna kostnaður vegna skipta þrotabús Baugs

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhann­es­son

„Eins og málið horfir við mér, þá er svarið já, þessi kostn­aður er í alla staði eðli­legur og hóf­legur,“ segir Erlendur Gíslason, lög­maður og einn eig­anda LOGOS lög­manns­stof­unnar, um nærri 830 millj­óna króna skipta­kostað vegna þrota­bús Baugs Group sem lög­mað­ur­inn hélt utan um.

„Það þarf að hafa í huga að þessi kostn­aður fellur til á tíu árum.“

Gjald­þrot Baugs er eitt stærsta gjald­þrot Íslands­sög­unnar. Skipti á þrota­bú­inu tóku rúm 10 ár en Hér­aðs­dómur Reykja­víkur lýsti félagið gjald­þrota í mars 2009 og lauk skiptum ekki fyrr en í júní í fyrra. Kröfur í búið námu nærri 424 millj­örðum króna og feng­ust for­gangs­kröfur greiddar að fullu en aðeins 2,7 pró­sent almennra krafna, eða 6,7 millj­arðar. Fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Baugur var mjög umsvifa­mikið fyrir hrun, þar með talið á Íslandi, Bret­landi og Danmörku. Jón Ásgeir Jóhann­es­son var eig­andi og for­stjóri félags­ins.

Hér­aðs­dómur Reykja­víkur hafn­aði því að gefa upp­lýs­ingar um skipta­kostn­að­inn er Mannlíf leit­aði eftir þeim. Erlendur, lög­maður hjá LOGOS, og Anna Kristín Trausta­dóttir, lög­giltur end­ur­skoð­andi hjá Ernst & Young, voru skipuð skipta­stjórar í þrota­bú­inu. Erlendur skipta­stjóri bendir á að rukkað tíma­gjald hafi verið fyrir neðan almenna gjald­skrá lög­manns­stof­unnar. „Þetta var mikið verk­efni fyrstu árin og felst kostn­að­ur­inn því að miklu leyti í launa­greiðslum til fjölda lög­fræð­inga og end­ur­skoð­enda sem að þessu komu. Gjald­takan var t.a.m. langt undir því sem tíðk­að­ist við slit föllnu bank­anna um svipað leyti. Við upp­haf skipta voru nán­ast engar óveð­settar eignir í búinu. Það þurfti því að hafa mikið fyrir því að ná inn í búið fjár­munum til skipta fyrir ótryggða kröfu­hafa. Það þarf að hafa í huga að þessi kostn­aður fellur til á tíu árum,“ segir Erlendur.

Erlendur Gíslason. Mynd / LOGOS

Skiptakostnaður Baugs Group

LOGOS og Ernst & Young  357 mkr.

Aðkeypt erlend sér­fræði­þjón­usta (þ.m.t. frá Logos í London og Kaup­manna­höfn)  248 mkr.

Annar skipta­kostn­aður  223 mkr.

Skipta­kostn­aður samals:    828 mkr.

Lestu nánar um málið í Mannlífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Kyn­þokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 millj­ónir dala í lækn­is­skuldum

Meira en 150 þúsund Bandaríkjamenn eiga að njóta góðs af átakinu. Fyrstu skuldirnar verða afskrifaðar fyrir komandi jól.
Innlent

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Peningar

Kröfu­hafar Skagans 3X boð­aðir á fund

Heimur

Kushner semur um frið en græðir á stríði

Innlent

Stræt­is­vagn ók á litla rútu

Innlent

Öskurapi með vesen

Tveir gistu í fangageymslum lögreglu í nótt.

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Að minnsta kosti þrjár Palest­ínu­tengdar vef­síður eyði­lagðar í netárásinni á 1984

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni