Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Læknalaust Vinnueftirlit gaf út dánarorsök án krufningarskýrslu: „Mjög óvenjuleg nálgun“

Vinnueftirlit ríkisins
Vinnu­eft­ir­lit rík­is­ins

Vinnu­eft­ir­litið gaf út dán­ar­or­sök manns sem lést í vinnu­slysi árið 2020, áðu en krufn­inga­skýrla var til­búin.

Eins og fram kom í frétt Mannlífs á dög­unum hefur Vinnu­eft­ir­lit Ríkisins ekki haft lækni á stofn­un­inni frá því að Kristinn Tómasson hætti þar árið 2019. Skýrt er kveðið á um í lögum að Vinnu­eft­ir­litið hafi lækni í sinni þjón­ustu. Upp­lýs­inga­full­trúi stofn­un­ar­innar ját­aði í svari til Mannlífs að Vinnu­eft­ir­litið hefði síð­ustu fjögur ár brotið 68. grein laga um aðbúnað, holl­ustu­hætti og öryggi á vinnu­stöðum, þar sem kveðið er á um að Vinnu­eft­ir­lit­inu beri að hafa starf­andi lækni hjá stofn­un­inni.

Þann 3. mars árið 2020 varð banaslys á vinnu­stað í Mos­fells­bænum en Vinnu­eft­ir­litið gerði skýrslu um málið árið 2021. Á blað­síðu 20 í skýrsl­unni, sem Mannlíf hefur undir höndum, segir að Dán­ar­or­sök A, séu áverkar sem mað­ur­inn hlaut við slysið. Næsta setn­ing gengur í ber­högg við þá fyrri en hún er erft­ir­far­andi: „Vinnu­eft­ir­litið hefur ekki fengið úrdrátt úr krufn­ing­ar­skýrslu um dán­ar­or­sök.“

Sér­fræð­ingur í heil­brigð­is­vís­indum, sem Mannlíf ræddi við en vildi ekki koma fram undir nafni, sagði að þetta væri „mjög óvenju­leg nálgun“, að Vinnu­eft­ir­litið gefi út dán­ar­or­sök manns­ins án þess að hafa krufn­ing­ar­skýrslu í hönd­unum. „Þarna er verið að höndla með lækn­is­fræði­legar upp­lýs­ingar án þess að læknir sé á bak­við.“ Aðspurður um það hvort það sé ekki mik­il­vægt að læknir sé starf­andi hjá Vinnu­eft­ir­lit­inu svar­aði sér­fræð­ing­ur­inn: „Það fer eftir því hvernig stofnun þú ætlar að reka. Lögin kveða skýrt á um þetta.“

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs gaf Vinnu­eft­ir­litið aldrei út dán­ar­or­sök án krufn­ing­ar­skýrslu frá lækni, þegar Kristinn Tómasson starf­aði sem læknir hjá stofn­un­inni, en hann hætti árið 2019 eftir 19 ára starf hjá Vinnu­eft­ir­lit­inu.

Er þessi frétt er rituð hefur Mannlífi ekki enn borist svar frá Vinnu­eft­ir­lit­inu, varð­andi skýrsl­una og önnur mál stofn­un­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum