Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Konan í Bátavogsmálinu nú grunuð um manndráp:„Það eru náttúrulega allir þættir og vinklar skoðaðir“

Konan sem situr í gæslu­varð­haldi vegna rann­sóknar á manns­láti í fjöl­býl­is­húsi við Bátavog á dög­unum, er nú grunuð um mann­dráp.

DV segir frá því að hvörf hafi orðið í rann­sókn lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á manns­láti í fjöl­býl­is­húsi við Bátavog, laug­ar­dags­kvöldið 21. sept­em­ber. Konan sem úrskurðuð var í gæslu­varð­hald til 4. októ­ber er nú grunuð um mann­dráp.

Ævar Pálmi Pálmason aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn stað­festir þetta við DV. Aðspurður hvort nið­ur­stöður úr krufn­ingu á líki mannski væru komnar, svar­aði Ævar: „Það eru ekki komnar nið­ur­stöður úr krufn­ingu en það er grunur um mann­dráp og málið er rann­sakað sem slíkt.“

Í fréttum hafði áður komið fram að áverkar hefðu fund­ist á lík­inu en ekki hefur verið gefið út að þeir hefðu orsakað dauða manns­ins. Segir Ævar að ein­hverjar upp­lýs­ingar hafi komið úr krufn­ing­unni, sem orsaki mat lög­regl­unnar, þó að nið­ur­stöð­urnar liggi ekki fyrir.

Eins og áður segir rennur gæslu­varð­hald yfir kon­unni út á morgun en í ljósi stöð­unnar má búast við fram­leng­ingu varð­halds­ins. „Það kemur bara í ljós á morgun,“ svar­aði Ævar aðspurður um mögu­lega fram­leng­ingu.

Ekki vildi Ævar tjá sig um yfir­heyrsl­urna yfir kon­unni eða hvort hún hafi verið sam­vinnu­fús.

Um önnur sönn­un­ar­gögn en krufn­ingu við rann­sókn máls­ins segir Ævar allir vinklar skoð­aðir. „Það eru nátt­úru­lega allir þættir og vinklar skoð­aðir, það er verið að taka skýrslur af vitnum, meðal ann­ars nágrönnum.“

Sagði Ævar að atburð­ur­inn hafi gerst á heim­ili fólks­ins og því ljóst að um sam­búð­ar­fólk er að ræða. Hinn látni var á sex­tugs­aldri en konan sem er í haldi er 42 ára.

Konan hefur komið við sögu lög­reglu og hefur á bak­inu minnst fjóra refsi­dóma en allir eru þeir vegna fíkni­efna­mála. Hefur hún átt við fíkni­efna­vanda að stríða og var fyrir nokkru borin út af heim­ili sínu vegna nágranna­erja, að sögn DV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar