Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Innlent

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Ísraelsher sakaður um að skjóta á hungraða Gaza-búa: „Algerlega óviðunandi blóðbað“

Loftmynd frá Ísraelsher
Loftmynd frá Ísra­els­her

Yfir­maður Sam­ein­uðu þjóð­anna hefur hvatt til óháðrar rann­sóknar á dauða meira en 100 Palest­ínu­manna á meðan hjálp­ar­gögn voru send á Gaza.

Að minnta kosti 117 dóu í skotárás Ísra­els­hers í gær­kvöldi, á hóp hungr­aðra Gaza-búa sem safn­ast hafði saman við vöru­bíla sem fluttu þeim mat. Um 760 særð­ust.

António Guterres, fram­kvæmda­stjóri Sam­ein­uðu þjóð­anna, for­dæmdi atvikið og sagði „örvænt­ing­ar­fulla almenna borg­ara“ þurfa á brýnni aðstoð að halda. Kemur þetta fram í frétt BBC um málið.

Yfirvöld Hamas saka Ísraela um að hafa skotið á borg­ar­ana en Ísra­els­her segir að flestir hafi lát­ist þegar hjálp­ar­flutn­ings­bíl­arnir keyrðu yfir þá eftir að her­inn skaut við­vör­un­ar­skotum.

Í gær jókst alþjóð­leg gagn­rýni á Ísrael þegar Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti sagði að óbreyttir borg­arar hefðu verið „skot­mörk ísra­el­skra her­manna“ í gær.

Josep Borell, utan­rík­is­mála­stjóri ESB, lýsti atvik­inu sem „alger­lega óvið­un­andi blóð­baði“.

Í við­brögðum við atvik­inu skrif­aði Guterres á sam­fé­lags­miðla: „Ég for­dæmi atvik fimmtu­dags­ins á Gaza þar sem meira en 100 manns eru sagði hafa verið drepnir eða særðir þegar þeir leit­uðu eftir björg­un­ar­að­stoð. Örvænt­ing­ar­fullir borg­arar á Gaza þurfa á brýnni aðstoð að halda, þar á meðal þeir í norðri þar sem SÞ hafa ekki getað veitt aðstoð í meira en viku.“

Heil­brigð­is­ráð­herra Hamas-stjórn­ar­innar kallar atvikið „fjöldamorð“.

Örygg­is­ráð Sam­ein­uðu þjóð­anna skipu­lagði neyð­ar­fund fyrir lok­uðum dyrum til að ræða atvikið, þar sem Alsír, arab­ískur full­trúi stofn­un­ar­innar, lagði fram drög að yfir­lýs­ingu þar sem ísra­elska her­inn var sak­aður um að hafa „opnað skot­hríð“.

Fjórtán af fimmtán með­limum ráðs­ins studdu til­lög­una, en Banda­ríkin beitti neit­un­ar­valdi, að sögn AP-frétta­stof­unnar og vitn­aði í Riyad Mansour, sendi­herra Palest­ínu­manna, sem ræddi við frétta­menn í kjöl­farið. Banda­ríski sendi­herr­ann Robert Wood sagði stað­reyndir atviks­ins enn óljósar.

Atvikið átti sér stað skömmu eftir 02:45 í gærnótt við Nabulsi hring­torgið, á suð­vest­ur­brún Gazaborgar. Þrjátíu hjálp­ar­flutn­ings­bílar frá Egypta­landi voru á leið norður eftir því sem her Ísraels lýsti sem „mann­úð­ar­gangi“ sem það sagði að her­sveitir þeirra hefðu tryggt.

Daniel Hagari, aðal­tals­maður Ísra­els­hers, sagði að almennir borg­arar hefðu umkringt bíla­lest­ina og fólk hafi byrjað að klifra upp á vöru­bíl­ana.

„Sumir byrj­uðu með ofbeldi að ýta og jafn­vel troða aðra Gazabúa til bana og rændu mann­úð­ar­birgðum,“ sagði hann. „Hið óheppi­lega atvik leiddi til þess að tugir Gazabúa lét­ust og særð­ust.

Læknir sem Al Jazeera ræddi við sagð­ist hafa fengið særða og dauða á sjúkra­húsið þar sem hann starfar við erf­iðar aðstæður, með skotsár eftir byssur og flygildi. Vitni segja það sama.

Hér má sjá umfjöllun BBC um málið:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Nikulás sást síðast á þriðjudag. Hann var þá með bláan bakpoka og klæddur í grænan sumarjakka.
Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Daraxonrasib sýndi lofandi árangur hjá fólki með útbreitt briskrabbamein, en frekari rannsóknir þurfa að leiða í ljós hversu lengi áhrifin vara.

Setti bráð­skemmti­legt heims­met

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Pólland rann­sakar óþekktan hlut sem féll úr lofti

Tvö alvar­leg umferð­ar­slys á sama veg­ar­kafla á Tenerife