Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Hörður Axel samdi við Álftanes: „Ég er að hefja nýjan kafla á mínum körfuboltaferli“

Álft­nes­ingar bjóða Hörð Axel vel­kom­inn í For­seta­höll­ina; Hörður Axel Vil­hjálms­son fyr­ir­liði karla­lands­liðs Íslands í körfu­bolta er geng­inn í raðir úrvals­deild­ar­liðs Álfta­ness.

Ljóst er að hann kemur til með að færa lið­inu gríð­ar­mikla reynslu á sínu fyrsta tíma­bili í úrvals­deild­inni en hann á að baki langan feril sem lands­liðs­maður og atvinnu­maður víðs­vegar um heim, þar á meðal á Spáni og í Þýska­landi.

Hörður Axel er upp­al­inn í Fjölni og hefur verið lyk­il­maður í íslenska lands­lið­inu í mörg ár.

Með lands­lið­inu hefur hann í tvígang farið með í loka­keppni Evr­ópu­meist­ara­móts­ins (EuroBasket) þar sem hann spil­aði gegn bestu leik­mönnum Evrópu.

Hörður Axel kemur frá Keflavík þar sem hann hefur verið fyr­ir­liði liðs­ins og einn besti leik­stjórn­andi deild­ar­innar. Með Keflavík vann hann deild­ar­meist­ara­titil og fór alla leið í úrslit deild­ar­innar 2021. Hörður skil­aði góðum tölum á sein­asta tíma­bili en hann var með tæp­lega tíu stig í leik, ásamt því að vera með átta stoðsend­ingar.

Mynd / Karfan.is.

Hörður er frá­bær send­inga­maður líkt og töl­fræðin sýnir en hann er stoðsend­inga­hæsti leik­maður í sögu efstu deildar. Hörður hefur ekki aðeins sannað sig sem leik­maður en tíma­bilið 2020-2021 tók hann upp þjálf­ara­spjaldið og gerð­ist aðstoð­ar­þjálf­ari meist­ara­flokks kvenna hjá Keflavík. Gegndi hann starfi aðstoð­ar­þjálf­ara tvö tíma­bil áður en hann tók svo við starfi aðal­þjálf­ara á nýaf­stöðnu tíma­bili. Hann náði frá­bærum árangri með liðið og vann deild­ar­meist­ara­tit­il­inn með nokkrum yfir­burðum ásamt því að fara með liðið alla leið í úrslit deild­ar­innar.

Því liggur augum uppi að reynsla Harðar bæði í þjálfun og sem leik­maður muni nýt­ast Álfta­nesi vel, þegar liðið þreytir frumraun sína í deild þeirra bestu. En Hörður mun ásamt því að vera leik­maður Álfta­ness koma að þjálfun yngri flokka.

Huginn Freyr Þor­steins­son er for­maður körfuknatt­leiks­deildar Álfta­ness, og hann er sáttur:

„Álftanes er að stíga sín fyrstu skref í efstu deild og reynsla og hæfi­leikar Harðar Axels munu veita okkur mik­inn styrk. Við vitum öll að hann er leik­maður í hæsta gæða­flokki sem mun koma með mikil gæði og smellpassa inn í þann sterka kjarna sem fyrir er hjá okkur. Hörður er líka frá­bær fyr­ir­mynd og leið­togi og verður mik­il­væg kjöl­festa fyrir okkur.

Hörður Axel mun líka hjálpa okkur við aða styrkja barna-og ung­linga­starfið á Álfta­nesi, sem er í miklum vexti og sem aukast enn frekar á næstu árum með þeirri fjölgun íbúa sem framundan er hér.“

Hörður Axel Vil­hjálms­son nýr leik­maður Álfta­ness segir að „Álftanes er með spenn­andi fram­tíð­ar­sýn í upp­bygg­ingu körfu­bolt­ans og ég vil taka þátt í henni. Liðið hefur náð ótrú­legum árangri á skömmum tíma og mik­ill metn­aður til að byggja á honum. Ég er að hefja nýjan kafla á mínum körfu­bolta­ferli og finnst áhuga­vert að taka þeirri áskorun að hefja næsta tíma­bil í efstu deild hjá liði sem er autt blað þar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas