Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Matthías neitaði að hafa skallað lögreglumann en búkmyndavélin sagði annað

Atvikið varð við lög­reglu­bif­reið eftir að dyra­verðir höfðu óskað aðstoðar

Reykjanesbær
Reykja­nes­bær Þar átti sér stað atvik sem leiddi til þess að Matthías Daði Guð­bjarts­son var dæmdur fyrir brot gegn vald­stjórn­inni. Mynd: Eysteinn Guðni Guðnason / Wikimedia Commons (CC BY-SA 4.0)

Matthías Daði Guð­bjarts­son hefur verið dæmdur í 45 daga skil­orðs­bundið fang­elsi fyrir brot gegn vald­stjórn­inni eftir að hafa skallað lög­reglu­mann í höf­uðið í Reykja­nesbæ. Dómur féll í Hér­aðs­dómi Reykja­ness í dag, 2. nóv­em­ber.

Atvikið átti sér stað aðfara­nótt 16. ágúst 2025 fyrir utan skemmti­stað í Reykja­nesbæ. Lögregla hafði afskipti af Matth­í­asi eftir að dyra­verðir ósk­uðu eftir aðstoð vegna fram­komu hans. Samkvæmt gögnum máls­ins var hann mjög æstur og ósam­vinnu­þýður og fann lög­regla vasa­hníf í buxna­vasa hans. Hann var í kjöl­farið hand­járn­aður og færður inn í lög­reglu­bif­reið.

Þegar lög­reglu­maður hugð­ist setja Matthías í örygg­is­belti í aft­ur­sæti bif­reið­ar­innar skall­aði Matthías hann í höf­uðið.

Matthías neit­aði sök og sagð­ist fyrir dómi ekki hafa veitt lög­reglu mót­spyrnu. Hann þrætti jafn­framt fyrir að hafa skallað lög­reglu­mann­inn. Við aðal­með­ferð máls­ins voru meðal ann­ars sýndar upp­tökur úr búk­mynda­vélum lög­reglu.

Dómurinn taldi hins vegar sannað hafið yfir skyn­sam­legan vafa að Matthías hefði skallað lög­reglu­mann­inn. Á upp­tök­unum sást hann, að mati dóms­ins, sveigja höf­uðið aftur og reiða það síðan fram til höggs. Fram­burður þriggja lög­reglu­manna studdi einnig þá nið­ur­stöðu.

Við ákvörðun refs­ingar var meðal ann­ars horft til þess að Matthías hafði ekki áður gerst sekur um refsi­verða hátt­semi. Hann var dæmdur í 45 daga fang­elsi en fulln­ustu refs­ing­ar­innar frestað og fellur hún niður að tveimur árum liðnum haldi hann almennt skil­orð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Bíllinn hafði stoppað til að gefa börnum mat og drykk.
Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Starfsmenn urðu fljótt varir við árásina og gripu inn í áður en árásarmennirnir gátu valdið frekara tjóni, að sögn framkvæmdastjóra fyrirtækisins.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas