Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Starfsmaður líkamsræktarstöðvar gerði grín að viðskiptavini með þroskahömlun – verður tekið föstum tökum segja eigendur

Starfs­maður lík­ams­rækt­ar­stöðv­ar­innar Sport­húss­ins í Reykja­nesbæ er sak­aður um að gera grín að við­skipta­vini með þroska­hömlun. Slíkt átti sér stað nýlega þegar þroska­heftur við­skipta­vinur leit­aði sér upp­lýs­inga í afgreiðsl­unni og fékk þar lítið annað en háðs­glósur frá starfs­fólki. Eigendur stöðv­ar­innar segja að málið verði tekið föstum tökum inn­an­húss. 

Hávær umræða skap­að­ist um málið innan Facebook-sam­fé­lags­ins Góða systir sem skipað er í kringum 50 þús­und konum. Þar var birtur nafn­laus póstur með lýs­ingu á hegðun starfs­manna Sport­húss­ins. „Leggur starfs­fólkið mikið uppúr því að gera grín af fólki? Hvað þá ein­hverfu fólki með þroska­skerð­ingu. Stelpa sem ég þekki var að mæta þarna í fyrsta sinn. Um leið og hún labb­aði inn í sal fóru þær að gera grín að henni og hlægja að henni. Voru að herma eftir henni og end­ur­taka það sem hún var spyrja og gretta sig í leið­inni. Já, bara gera lítið út henni. Ég er bara svo reið,“ segir við­kom­andi sem ekki vill láta nafn síns getið. Ari Elíasson og Eva Lind Ómars­dóttir, eig­endur Sport­húss­ins í Reykja­nesbæ, svör­uðu síðan færsl­unni og eftir að svarið kom fram var henni síðar eytt út. „Mál sem slík og það hátt­ar­lag sem haft var í mál­inu er með öllu ólíð­andi og verða við­kom­andi aðilar, þar sem annar þeirra er starfs­maður stöðv­ar­innar, kall­aðir fyrir og látnir svara fyrir hegðun sína. Sport­húsið hefur ávallt metið alla sína við­skipta­vini jafna, hvort sem um ræðið alheil­brigður ein­stak­lingur eða ein­stak­lingur með þroska­skerð­ingu, hér eru allir jafnir og leggjum við eig­endur gríð­ar­lega mikið upp úr því,“ segja Ari og Eva Lind.Eigendur stöðv­ar­innar leggja mikið uppúr því að allir við­skipta­vinir stöðv­ar­innar séu jafnir. Þau eiga sjálf barn með þroska­skerð­ingu. „Við sem hér stýrum þess­ari stöð teljum einmitt það vera upp­lifun fólks almennt sem hjá okkur stunda lík­ams­rækt. Und­ir­rit­aðir eiga barn með þroska­skerð­ingu og þekkja því mjög vel til hvernig er að eiga ein­stak­ling með þroska­skerð­ingu. Dóttir okkar æfir einmitt fót­bolta hér í Sport­hús­inu með Nes, íþrótta­fé­lagi fatl­að­ara á Suð­ur­nesjum, ásamt fjölda ann­ara ein­stak­linga með þroska­skerð­ingu og gengur það starf frá­bær­lega. Við vonum svo sann­ar­lega þetta muni ekki hafa áhrif á þig og þína lík­ams­rækt­ar­iðkun hjá Sport­hús­inu, málið verður tekið föstum tökum líkt og fyrr er talað um.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas