Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Davíð segir mistök að draga úr sundkennslu: „Getur skilið á milli lífs og dauða“

Sum börn finna fyrir kvíða vegna sundkennslu – Myndin tengist frétttinni ekki beint
Sum börn finna fyrir kvíða vegna sund­kennslu – Myndin teng­ist fréttt­inni ekki beint

Í nýjum pistli sem Davíð Már Sig­urðs­son, íþrótta­kenn­ari og leik­ari, skrifar greinir hann frá því að hann telji sund­kennslu vera orðna að bit­beini í póli­tík og það hafi verið mis­tök að draga úr sund­kennslu barna á Íslandi.

„Sund­kennsla barna er eitt­hvað sem hefur verið bit­bein í póli­tísku umhverfi sam­tím­ans og oftar en ekki notuð til að skora ein­hver rokk­stig á gamla Twitter. Nú eða næla sér í auð­veld atkvæði rétt fyrir kosn­ingar, eins og gerð­ist til að mynda síð­ast 2022.

Umræðan bygg­ist þá oft á reynslu for­eldra sem upp­lifðu sund­kennslu óbreytta í öll þau tíu ár sem þau gengu í skóla. Ég þekki það sjálfur að sund sner­ist að mörgu leyti um að synda fram og til baka þangað til kennslu­stund­inni lauk. Kannski kíkja í pott­inn síð­ustu mín­út­urnar ef maður náði að klára allt sem sett var fyrir. Og til að bæta gráu ofan á svart, að vera með kenn­ara sem var hörku­tól af gamla skól­anum, sem hélt að það væri algjör snilld að öskra mann áfram. Auðvitað er lík­legt að þú, sem for­eldri, hafir nei­kvæða ímynd af sund­kennslu ef þetta var raunin,“ skrifar Davíð um málið á Vísi. Davíð segir stöð­una vera allt aðra í dag og sund­kenn­arar í dag hafi breytt nálgun sinni.

Snýst ekki aðeins um að kenna færni

„Nú á dögum er leikja­fræði, leik­fimi í vatni, björgun og jákvæð upp­lifun af hreyf­ingu í fyr­ir­rúmi. Sund­kennsla, og leik­fimi/skóla­í­þróttir ef út í það er farið, byggja á því að skila nem­endum út í lífið sem heil­steypt­ari ein­stak­lingum heldur en þegar þau hófu nám. Sem ein­stak­lingum sem kunna að takast á við verk­efni og leysa vanda­mál sem verða á vegi þeirra. Einn sam­starfs­fé­lagi benti mér á að starfið snú­ist ekki bara um að kenna færni, heldur á nem­andi að geta nýtt sér sund­laug­arnar þurfi hann á því að halda, til dæmis við end­ur­hæf­ingu eftir slys. Eða, hvort er hann lík­legri til að nýta sér sund­laug­ina ef hann hafði nei­kvæða eða jákvæða upp­lifun í skól­anum? Svarið liggur í augum uppi.

Og bara svo það sé á hreinu, þá er eng­inn sund­kenn­ari nú til dags að láta nem­endur standa eða falla með fram­kvæmd á flugsundi. Það má þó alveg reka það ofan í mig og benda mér á slík til­felli ef ein­hver eru.“

Mistök að draga úr sund­kennslu

Þá seg­ist Davíð skilja að sumt fólk finni fyrir kvíða þegar kemur að sund­námi en telur að forðun sé ekki lausnin á þeim kvíða.

„Sumir hafa bent á að erfitt sé fyrir nem­endur að þurfa að fara í sturtu og að þeir séu þar ber­skjald­aðir. Gott og vel, þetta er samt einn af örfáum stöðum þar sem hægt er að sjá allt rófið af lík­ams­týpum, öfugt við eins­leitu glans­mynd­ina sem sam­fé­lags­miðlar mála upp, og börn hafa aðgang að nán­ast öllum stundum sól­ar­hrings­ins.

Ég tel að það hafi verið stigið feil­spor þegar dregið var úr sund­kennslu barna. Það eitt að kunna að synda getur skilið á milli lífs og dauða. Það eru fáir hlutir í skóla­kerf­inu sem geta haft eins afdrifa­rík áhrif. Að lokum vil ég árétta að sund­kennsla er ekki bara SUND. Við sem íþrótta­kenn­arar erum ekki bara að kenna rétt fóta­tök í bringu- eða skrið­sundi. Við erum að skapa jákvæða upp­lifun að hreyf­ingu til fram­búðar,“ skrifar Davíð að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn