Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Staðan á húsnæðismarkaði á bara eftir að versna: „Hægt og bítandi mun eigið fé étast upp“

Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR
Ragnar Þór Ing­ólfs­son er for­maður VR

Formaður VR, Ragnar Þór Ingólfsson, segir að staðan á húsnæðis­markaðnum eigi bara eftir að versna; eigna­rýrnun meðal skuldugra húsnæðis­eigenda eigi eftir að aukast mikið og að  ríkis­stjórnin sé ekki að gera neitt í málinu; og það aðgerða­leysi, sem og stefna Seðla­bankans, séu birtingar­myndir meðvitaðrar ákvörðunar um að færa fjármagn frá skuldurum til fjármagns­eigenda.

Þetta og fleira kemur fram í viðtali Frosta Logasonar við Ragnar á hlaðvarps­veitunni Brotkast.

„Stjórn­völd og sveitar­félögin munu ekki hefja uppbyggingu á stórum svæðum, eins og t.d. í Keldna­holti eða Blika­staða­landinu eða inni í Úlfars­árdal fyrr en í fyrsta lagi eftir þrjú, fjögur ár, þannig að þetta verða bara svona þéttingar­reitir, sem eru rándýrir.

Verktakarnir og lóðahafar lóða sem hægt er að byggja á munu halda að sér höndum. Þannig að það er bara gott að þínir áheyrendur og áhorf­endur geri sér grein fyrir því að það er ekkert að fara að breytast til hins betra, staðan er bara að versna og hún mun versna til mikilla muna áður en hún getur nokkurn tíma batnað.“

Ragnar segir líka mikilvægt að það komi skýrt fram að stjórn­völd séu ekki að fara að gera neitt, þau séu ekki að fara að breyta um stefnu. Ekki heldur Seðla­bankinn. Stefnan sé þessi:

„Að þrýsta öllum yfir í verð­tryggðu lánin, sem mun byrja að éta upp eigið fé eins og gerðist í eftir­málum hrunsins. Munurinn á því sem gerðist rétt eftir hrun er sá að þá fengum við þetta í einu risastóru skoti. Það sem er að fara að gerast núna er að hægt og bítandi mun eigið fé étast upp og við munum sjá risastóra hópa, sérstak­lega ungt og fólk og fólk t.d. sem lenti í hruninu og er kannski nýbúið að rétta sig af með einhverjum hætti, ganga í gegnum sumu hlutina aftur.“

Ragnar segir að allar aðgerðir Seðla­banka og ríkis­stjórnarinnar séu til þess fallnar að draga úr framboði á húsnæði en ekki auka það og þær auki á vandann. Það sé meðvituð ákvörðun.

„Ég tel að Seðla­bankinn viti nákvæmlega hvað hann er að gera. Hann er að gera það sama og var gert hér í eftir­málum hrunsins, þetta var bara meðvituð og upplýst ákvörðun um að fara í stór­fellda eigna- og fjármagns­flutninga frá skuld­settum heimilum og fyrir­tækjum yfir til sérhagsmuna­afla og fjármála­kerfisins og þeirra sem raun­verulega stýra landinu hérna bak við tjöldin.“

Þáttinn í heild sinni má nálgast á brotkast.is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim