Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lögreglan mætti vopnuð í búð: „Geislaði af honum harðneskjan og hann lét eins og ég væri ekki til“

Sérsveitarmaður mætti vopnaður í verslun. Myndin er samsett
Sér­sveit­ar­maður mætti vopn­aður í verslun. Myndin er sam­sett

„Einn sallarvenjulegan morgun í síðustu viku var ég í vinnunni í Handverks­húsinu og inn kemur lögreglu­maður í víkingar­sveitar­samfesting. Hann hafði lagt bílnum sínum fyrir utan, risa­stórum sendibíl, svona sprinter frá ríkis­lögreglu­stjóra,“ svo ritar Gunnar Dan Wiium verslunar­maður í Handverks­húsinu og greinir frá því þegar lögreglu­maður á vegum sérsveitarinnar mætti vopnaður í verslunina.

Gunnari Dan var mjög brugðið við komu lögreglu­mannsins sem reyndist vera í verslunar­leiðangri í leit að álplötu, og áttar sig ekki á hvers vegna sérsveitar­maðurinn hafi þótt ástæða til að mæta vopnaður skamm­byssu í verslunina:

„Hann var greini­lega að vinna að einhverjum tækni­málum því honum vantaði bara eina álplötu í A4 stærð. Allt gott og blessað fyrir utan að maðurinn sem greini­lega var ekki í útkalli á neinn hátt var vopnaður Glock skamm­byssu eins og ekkert væri. Hann var ekki í neinu stungu­vesti eða í neinum varnar­búnaði, bara í samfesting eins og hann væri að vinna í kústa­gerðinni nema að svo var hann með skotvopn í Handverks­húsinu, á mánudags­morgni að versla sér eina álplötu og engin í búðinni nema við Valur og hann.“

Vanga­veltur um viðkvæmni viðurkennir Gunnar að í besta falli þyki honum vopna­burður tiltekins sérsveitar­manns taktleysi. Hann ávarpaði lögreglu­manninn og spurði hvort þetta væri viðtekin venja:
„Ég veit ekki ekki alveg, kannski er ég bara lítil orkidía en mér finnst þetta svo fokking taktlaust og spurði ég hann hvort honum fyndist bara eðlilegt að mæta til okkar í fullum skrúða. Það geislaði af honum harðneskjan og hann lét eins og ég væri ekki til á gólfinu, svaraði engu og leitaði á náðir vinnu­félaga míns sem afgreiddi hann af einni saklausri álplötu.“

Gunnar bendir á í færslunni að í bifreiðum sérsveitarinnar séu læst hólf sem honum þætti nærtækast að geyma skamm­byssuna og önnur vopn sem hann hefur ekki hug á að sjá í verslun á mánudags­morgni:
„Nema að þeir séu mögulega að taka þátt í að leysa gíslatöku eða díla við vopnað rán. Við höfum engan byssu­kúltúr hér á Íslandi og þessi kúreka­hegðun er fyrir mínum bæjar­dyrum séð bara neikvæð, grimm og kjánaleg.

Svo elsku löggi, ég geri ráð fyrir vinveittum heimi svo plís skildu bara gönnið þitt eftir út í bíl næst, við Valur viljum ekki vopnaða menn inn í búðina nema að rík ástæða sé til!“

Mannlíf leitaði viðbragða hjá Gunnari Herði Garðars­syni samskipta­stjóra hjá Ríkis­lögreglu­stjóra sem segir vopnaburð sérsveitarmannins eðlilegan.

„Sérsveitar­menn á vakt eru alltaf vopnaðir. Það er því ekki útilokað að almenningur geti orðið var við vopnaða sérsveitar­menn í eigin erinda­gjörðum, til að mynda í verslun, þegar þeir eru að fara af vakt til dæmis eins og aðrir lögreglu­menn.“

Hér að neðan má sjá færslu Gunnars Dans í heild:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim