Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Pólitík

Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Peningar

Skiptum lokið á þrota­búi Talays

Utanríkisráðherra Noregs með yfirlýsingu: „Við eigum ekki að beita milljónum manna hóprefsingu“

Utan­rík­is­ráð­herra Noregs segir að það ætti ekki að „beita millj­ónum manna hóprefs­ingu“ með því að hætta greiðslum til Flótta­manna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna í Palest­ínu.

Espen Barth Eide, for­sæt­is­ráð­herra Noregs sendi frá sér yfir­lýs­ingu í gær þar sem hann útskýrir ákvörðun Noregs að halda áfram styrkjum sínum til Flótta­manna­hjálpar Sam­ein­uðu þjóð­anna í Palest­ínu (e. UNRWA), þrátt fyrir ásak­anir ísra­el­skra stjórn­valda á hendur 12 starfs­mönnum stofn­un­ar­innar en þeim er gert að hafa tekið þátt í árásum Hamas-liða í Ísrael 7. októ­ber síð­ast­lið­inn.

Í yfir­lýs­ing­unni segir Espen að ásak­anir Ísra­els­stjórnar á hendur starf­mönnum Flótta­manna­hjálp­ar­innar, vera grafal­var­legar og að það þurfi að rann­saka þær gaum­gæfi­lega. Þá segir hann Noreg hafa for­dæmt árás­irnar 7. októ­ber harka­lega og að þeir sem beri ábyrgð verði að vera sóttir til saka og að sleppa verði öllum gíslum Hamas undir eins.

„Ástandið á Gaza er hörmu­legt,“ skrifar Espen næst og heldur áfram. „80 pró­sent fólks­ins á Gaza er á ver­gangi en mörg þeirra hafa leitað skjóls í yfir­fullum skóla­bygg­ingum. Þúsundir borg­ara hafa verið drepnir, þar á meðal börn, meira en 150 starfs­menn UNRWA, sem og kenn­arar, læknar, blaða­menn og ótelj­andi fleiri aðilar sem hafa ekk­ert með stríðið að gera. Það er skortur á bæði mat og vatni og aðgengi að heil­brigð­is­þjón­ustu er afar ófull­nægj­andi. UNRWA er líf­lína fyrir tæp­lega 2 millj­ónir manna á Gaza.“

Espen segir einnig í yfir­lýs­ing­unni að Noregur sé stór styrkt­ar­að­ili til Flótta­manna­hjálp­ar­innar en að sumar þjóðir hafi nú fryst styrki sína til aðstoðar Palest­ínu­mönnum. „Noregur hefur ákveðið að halda áfram að styrkja sam­tökin. Þó að ég deili áhyggjum af mjög alvar­legum ásök­unum á hendur sumum starfs­mönnum UNRWA, hvet ég aðra styrk­veit­endur til að velta fyrir sér víð­tæk­ari afleið­ingum þess að skera niður fjár­fram­lög til UNRWA á þessum tímum mik­illa mann­úð­ar­krísu. Við eigum ekki að beita millj­ónum manna hóprefs­ingu.“

Að lokum segir Espen: „Við verðum að greina á milli þess sem ein­stak­lingar kunna að hafa gert og þess sem UNRWA stendur fyrir. UNRWA hefur 30.000 starfs­menn víðs vegar um Jórdaníu, Líbanon, Sýrland, Vest­ur­bakk­ann, þar á meðal Austur-Jer­úsalem og Gaza. 13.000 þeirra vinna á Gaza við að dreifa aðstoð, bjarga manns­lífum og tryggja nauð­syn­legar þarfir og rétt­indi íbúa. Íbúar Gaza þurfa á brýnni mann­úð­ar­að­stoð að halda og mega ekki gjalda fyrir gjörðir ann­arra.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Sjálfvirkt brunavarnakerfi sprautaði vatni yfir matsöluskála á skíðasvæði í Kína. Enginn slasaðist en loka þurfti skálanum tímabundið.
Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

„Við erum að skapa framandi verur“

Dán­ar­or­sök Sir Patricks Stewart stað­fest

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Dauði og eyði­legg­ing eykst á Gaza þrátt fyrir vopna­hlé