Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Um 70 heilbrigðisstarfsmenn fóru 1550 sinnum í sjúkraskýrslu Páls – Allur listinn birtur

Myndin er samsett
Myndin er sam­sett

Alls fóru rúm­lega 70 heil­brigð­is­starfs­menn inn í sjúkra­skýrslu Páls Stein­gríms­sonar á tveimur mán­uðum. Alls fóru starfs­menn­irnir 1550 sinnum inn í skýrslu skip­stjór­ans.

Páll Stein­gríms­son upp­lýsti á dög­unum í við­tali við Mannlíf að alls hafi verið farið inn í sjúkra­skýrslu hans 1550 sinnum á tveimur mán­uðum. Páll hefur sagt frá því að fyrr­ver­andi eig­in­kona hans hafi eitrað fyrir honum og stolið af honum far­síma hans og komið í hendur starfs­manna RÚV. Páll lifði eitr­un­ina af en var mjög hætt kom­inn þó og fór meðal ann­ars í hjart­stopp. Málið er enn til rann­sóknar lög­regl­unnar á Akureyri. Í við­tal­inu full­yrti Páll að meðal þeirra sem fóru inn á sjúkra­skýrslu hans, séu ein­stak­lingar sem tengj­ast blaða­mönnum, jafn­vel blóð­böndum, án þess þó að fara nánar út í það. Áður en hann veikt­ist við eitr­un­ina, hafði aðeins verið farið inn sjúkra­skýrslu hans 620 sinnum. Fjölg­unin er því umtals­verð, á aðeins tveimur mán­uðum. Sagðist Páll í við­tali við Mannlíf, vita um ein­stak­ling sem hafi farið yfir 100 sinnum inn í sjúkra­skýrslu sína.

Sjá einnig: Fór í hjarta­stopp eftir eitr­aðan bjór: „Og ég vakna þremur dögum seinna á gjör­gæsl­unni í Reykja­vík“
Sjá einnig: Einkamál: Gríð­ar­leg traffík á sjúkra­skýrslu Páls: „Það eru ein­stak­lingar þarna inni sem tengj­ast blaða­mönnum“

Mannlíf er með lista yfir þá heil­brigð­is­starfs­menn sem fóru inn á sjúkra­skýrslu Páls á tveimur mán­uðum. Af þeim ríf­lega 70 sem fóru inn á skýrsl­una voru það oft­ast hjúkr­un­ar­fræð­ingar sem það gerðu eða 16 ein­stak­lingar. Sér­fræð­ingar af ýmsum teg­undum koma næst en 13 fóru inn í skýrsl­una. Sex lækna­rit­arar, tveir rit­arar lækna og sjö mót­töku­rit­arar gerðu slíkt hið sama, sem og sex sjúkra­liðar.

Mannlíf spurði sam­skipta­full­trúa Sjúkra­húss­ins á Akureyri, Katrínu Árna­dóttur, út í hvað telj­ist eði­legt að margir kíki á sjúkra­skýrslur sjúk­linga. „Hvað varðar hvað þykir eðli­legt að flett sé oft upp í sjúkra­skrám ein­stak­linga fer mjög svo eftir sjúkra­sög­unni og hversu margir fag­að­ilar eru kall­aðir til. Ef um er að ræða þver­fag­lega með­ferð er eðli­legt að fleiri komi að mál­inu og fleiri fletti þar af leið­andi upp í sjúkra­skránni. Sama á við ef um er að ræða stoð­þjón­ustu eftir með­ferð,“ svar­aði Katrín.

Aðspurð hvort lækna­rit­arar telj­ist til fag­að­ila og hvort eðli­legt sé að þeir fari inn á sjúkra­skýrslur, svar­aði Katrín: „Starf lækna­rit­ara er fyrst og fremst að halda utan um og skrá sjúkra­gögn og í því fellst í flestum til­vikum að fara inn í sjúkra­skrá ein­stak­linga. Heil­brigð­is­gagna­fræð­ingar (ekki lækna­rit­arar) eru starfs­menn heil­brigð­is­kerf­is­ins og fag­menn á sínu sviði.“

Heild­ar­list­ann má sjá hér fyrir neðan en nöfnin hafa verið klippt út:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Dæmdur fyrir að stela flíkum úr gámi við Zo-On í Kópavogi

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar