Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Dáðum Þróttara hent úr landi: „Í Gana bíður mín ekkert“

Isaac er dáður Þróttari –
Isaac er dáður Þróttari – Mynd: Þróttur

Íþrótta­fé­lagið Þróttur hefur sent frá sér yfir­lýs­ingu vegna starfs­manns­ins Isaac Kwateng.

Isaac Kwateng er dáður í Laug­ar­nes­hverfi en und­an­farin tvö ár hefur hann verið vall­ar­stjóri Þróttar og hefur búið á land­inu síðan 2018. Isaac er frá Gana og nú stendur til að senda hann úr landi.

„Okkur þykir afskap­lega leitt að til­kynna ykkur að enn einn steinn­inn hefur verið lagður í götu Isaac okkar. Félaginu var á dög­unum til­kynnt af lög­reglu­manni sem mætti á skrif­stofu Þróttar að búið væri að kaupa flug­miða fyrir Isaac og til stæði að flytja hann af landi brott þann 16. októ­ber næst­kom­andi. Engar frek­ari upp­lýs­ingar um málið liggja fyrir,“ sagði í til­kynn­ingu sem Þróttur setti á heima­síðu félags­ins.

„Isaac er enn í starfi vall­ar­stjóra Þróttar og hefur verið frá byrjun árs 2022, ásamt því að vera leik­maður vara­liðs meist­ara­flokks karla. Á sex mán­aða fresti hefur félagið end­ur­nýjað umsókn hans um dvalar- og atvinnu­leyfi og einmitt núna er slík end­ur­nýjun í gangi og beðið er nið­ur­stöðu. Fram að þessu vorum við bjart­sýn enda hafa engar for­sendur breyst hvað vinnu hans varðar fyrir félagið.“

Þá sagði félagið að Isaac hafi sótt um íslenskan rík­is­borg­ara­rétt og von­að­ist félagið og hann sjálfur að umsókn hans yrði tekin fyrir á Alþingi í des­em­ber.

„Okkur rennur blóðið til skyld­unnar að upp­lýsa ykkur kæra sam­fé­lag um stöðu þessa máls. Ekki síst þar sem mörg hund­ruð ykkar komuð saman og sýnduð Isaac svo fal­legan stuðn­ing á Avis-vell­inum í lok júlí síð­ast­lið­inn. Okkur þykir ótrú­legt að honum dugi ekki að borga hér skatta og vera virkur þátt­tak­andi í sam­fé­lag­inu. Í von um að rétt­lætið myndi sigra hefur Isaac helt sér í íslensku­nám og er að taka bíl­próf til að ná enn betri teng­ingu við sam­fé­lagið. Það er ótrú­lega sárt að sjá að öll bar­áttan fyrir veru þessa góða manns hér hjá okkur hafi ekki skilað árangri. Takk fyrir alla mann­gæsk­una kæra sam­fé­lag.“

„Ég grét. Ég við­ur­kenni það,“ sagði Isaac í við­tali við Vísi. „Þetta eru erf­iðar fréttir fyrir mig að melta. Hér á landi á ég vini og fjöl­skyldu, en í Gana bíður mín ekk­ert.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum