Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

„Hvers vegna er ekki meiri reiði yfir þessu?“

Bílaumferð á Miklubraut
Bíla­um­ferð á Miklu­braut Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint. Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Stjórn Samtaka um bíllausan lífsstíl kallar eftir auknum aðgerðum til að tryggja öryggi barna í umferðinni og segir að ábyrgðin megi ekki fyrst og fremst hvíla á börnunum sjálfum.

Þetta kemur fram í aðsendri grein sem birtist á Vísi. Höfundar hennar eru Albína Páls­dóttir, Anna Margrét Ásbjarnar­dóttir, Brynhildur Bolla­dóttir, Geir Finnsson, Gísli Marteinn Baldursson, Halldóra Þórs­dóttir, Hrafnhildur Ingibjargar­dóttir Halls­dóttir, Kjartan Sveinn Guðmundsson, Rán Flygenring, Sveinn Þórhallsson og Viktor Lorange. Þau eiga öll sæti í stjórn Samtaka um bíllausan lífsstíl.

Tilefni greinarinnar er meðal annars að ekið var á átta ára dreng í Mosfellsbæ. Drengurinn hlaut höfuð­áverka og blóðnasir en ökumaðurinn ók af vettvangi. Höfundarnir vísa einnig til þess að ekið hafi verið á fimm ára barn í Hvera­gerði og þriggja ákeyrslna á börn við Laugar­nesskóla síðasta haust.

„Hvers vegna er ekki meiri reiði yfir þessu? Hvernig stendur á því að ítrekaðar fréttir af ákeyrslum á börn virðast vart raska ró okkar?“ spyrja höfundarnir.

Þau segjast við lauslega yfirferð íslenskra fjölmiðla hafa fundið frásagnir af að minnsta kosti 22 börnum sem ekið hafi verið á hér á landi undan­farin tvö ár. Þau telja jafnframt líklegt að tilfellin séu fleiri þar sem aðeins sé um þau atvik að ræða sem rötuðu í fjölmiðla.

Höfundarnir gagnrýna að mikil áhersla sé lögð á að börn gæti sín sjálf í umferðinni með hjálmum, endurskins­merkjum og stöðugri árvekni. Á sama tíma þurfi að gera ríkari kröfur til ökumanna og þeirra sem bera ábyrgð á skipulagi gatna.

„Börn eru óútreiknanleg. Þau hlaupa, leika sér, gleyma sér og gera mistök. Það er hluti af því að vera barn,“ skrifa þau og segja það vera hlutverk full­orðinna að skapa börnum öruggt umhverfi.

Þá benda þau á að 55 börn á aldrinum 0 til 14 ára hafi slasast sem gangandi eða hjólandi vegfarendur árið 2025 samkvæmt slysa­skýrslu Samgöngu­stofu.

Samtökin kalla eftir öflugra hraða­eftirliti, öruggari götum, betri tölfræði og mark­vissari fræðslu til ökumanna.

„Það er kominn tími til að hætta að ætlast til þess að börnin lagi sig að hættulegri umferð og krefjast þess í stað að umferðin lagi sig að börnunum,“ segja höfundarnir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim