Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Pólitík

Sig­mundur sak­aði rík­is­stjórn­ina um „dára­skap“ og Kristrún svar­aði fullum hálsi

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Enginn læknir fékkst þegar Ólafur lést á aðfangadagskvöld: „Lík hans var látið liggja í rúmi sínu“

Dvalarheimilið Kirkjuhvoll á Hellu.
Dval­ar­heim­ilið Kirkju­hvoll á Hellu.

„Það náð­ist ekki sam­band við lækni í Rangár­þingi og var lík hans því látið liggja í rúmi sínu yfir nótt­ina og skila­boðin voru að von­andi næð­ist í lækni á morgun og yrði þá hægt að úrskurða um and­látið,“ skrifar Bjarki Oddsson um and­lát afa síns, Ólafs Ólafs­sonar,  á dval­ar­heim­il­inu Kirkju­hvoli á aðfanga­dags­kvöld.Enginn læknir var til­tækur í Rangár­þingi og því eng­inn til að úrskurða hann lát­inn. Aðstand­endum var sagt að von­andi feng­ist læknir til að úrskurða hann lát­inn, á jóla­dag eða annan dag jóla. Fyrr mætti ekki flytja hann í lík­geymslu. Barna­barn Ólafs, Bjarki Oddsson sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi skrif­aði um þessa dap­ur­legu reynslu í aðsendri grein á Vísi. Hann segir að lík Ólafs heit­ins hafi legið inni í her­bergi á meðan þess var beðið að læknir mætti á stað­inn.

Ólafur Ólafsson, fyrr­ver­andi kaup­fé­lags­stjóri.

„Síðustu daga hefur tölu­vert verið fjallað um stöðu Heilsu­gæsl­unnar í Rangár­þingi. Sveit­ar­stjórn­ar­fólk í Rangár­þingi ytra hefur látið í sér heyra vegna þess að sýslan er lækna­laus og læknar hafa lýst því hvernig stjórn­endur Heil­brigð­is­stofn­unar Suð­ur­lands(HSU) hafi með und­ir­boðum komið í veg fyrir að læknar fáist til að starfa í Rangár­þingi.“

„Það var trega­full stund að skilja við gamla mann­inn“

Bjarki seg­ist sem íbúi og sveit­ar­stjórn­ar­full­trúi ekki fá orða bund­ist vegna stöð­unnar.  „Hvernig getur það gerst að eng­inn læknir sé til­tækur í Rangár­þingi svo dögum skiptir yfir jól og ára­mót? Er það for­svar­an­legt að ein af grunn­stoðum sam­fé­laga sé brotin undan því án þess að nokkur fái rönd við reist?“ spyr hann og fagnar því að sam­fél­gið eigi frá­bæra hjúkr­un­ar­fræð­inga, sjúkra­liða og sjúkra­flutn­inga­menn sem standi vakt­ina þrátt fyrir að eng­inn læknir sé til­tækur.

Hann rifjar upp aðfanga­dags­kvöldið þegar afi hans lést og fjöl­skyldan kom saman við dán­ar­beð gamla kaup­fé­lags­stjór­ans sem var rúm­lega 100 ára þegar kallið kom.

„Það var trega­full stund að skilja við gamla mann­inn á her­berg­inu sínu eftir and­látið. Skila­boðin voru að von­andi næð­ist í lækni á morgun og yrði þá hægt að úrskurða um and­látið dag­inn eftir eða hinn dag­inn, fyrr mætti ekki færa hann í lík­geymslu,“ skrifar Bjarki. Ólafur heit­inn var fluttur á útfar­ar­stofu á jóla­dag, án þess þó að hafa verið úrskurð­aður lát­inn.

Hann segir að þessi frá­sögn hefði getað orðið mun dramat­ísk­ari hefði manns­líf legið við og þörf hefði verið á skjótri og sér­hæfðri með­ferð læknis að halda.

„Afi gamli var saddur lífs­daga og eng­inn læknir var að fara að snúa við gangi lífs­ins hjá honum. Það er samt sem áður ólíð­andi staða komin upp í sam­fé­lag­inu okkar þegar fólkið okkar þarf að liggja í vind­kældum her­bergjum eftir and­lát, vegna þess að ekki næst í lækni. Ég mun berj­ast fyrir hönd íbúa í þessu mál­efnum og hef ekki efa um að félagar mínir í sveit­ar­stjórn Rangár­þings eystra munu standa mér þétt við hlið í þeirri bar­áttu,“ skrifar Bjarki og þakkar dásam­legu starfs­fólki Kirkju­hvols fyrir natni við umönnun afa síns sem fengið hafi dásam­lega þjón­ustu þar síð­ustu árin sín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn