Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Samherji slekkur á stærsta fyrirtækinu – Bjargvætturinn gafst upp eftir fjögur ár

Dótt­ur­fyr­ir­tæki Samherja hefur boðað lokun stærsta fyr­ir­tæki Hólm­vík­inga, rækju­vinnslu Hólma­drangs. Dótt­ur­fyr­ir­tæki Samherja, Snæfell, sem tók við rekstr­inum árið 2019 og bjarg­aði vinnsl­unni frá því að fara í þrot.  Fjórum árum síðar er allt að sigla í strand og 20 manns á Hólmavík missa vinn­una. Við blasir stór­á­fall fyrir byggð­ina.

Þor­steinn Már Bald­vins­son fékk hrós fyrir að taka við rækju­vinnsl­unni. Nú er svart­nætti framundan.

Á vef Samherja segir að rekstur Hólma­drangs hefur frá þeim tíma verið erf­iður og Snæfell hafi stutt við rekst­ur­inn með ýmsum hætti, með það að mark­miði að halda starf­sem­inni gang­andi. Þannig hafi verið tryggt að þungur rekstur Hólma­drangs hafi ekki orðið fyr­ir­tæk­inu að falli. Fullyrt er að tapa hafi verið af rekstr­inum öll árin og ekki greiddur út arður. Á síð­asta ári töp­uð­ust 205 millj­ónir króna og er eigið fé fyr­ir­tæk­is­ins nei­kvætt um 28 pró­sent. Ekki hefur verið greiddur út arður úr félag­inu frá því Snæfell kom að rekstr­inum.

Við­var­andi tap­rekstur hefur verið á síð­ustu árum. Tap síð­asta árs var 205 millj­ónir króna sam­kvæmt árs­reikn­ingi.

Eigið fé var nei­kvætt um 360 millj­ónir króna í árs­lok 2022 og eig­in­fjár­hlut­fall nei­kvætt um 28 pró­sent. Helstu eignir Hólma­drangs fel­ast í hús­næði, bún­aði og birgðum.

Hólma­dr­anur á engar veiði­heim­ildir og allt hrá­efni sem unnið er í rækju­vinnslu Hólma­drangs hefur verið inn­flutt frá Noregi og Kanada. Sam­herj­a­menn segja að stað­setn­ing vinnsl­unnar á Hólmavík sé á margan hátt óhag­stæð.

Þá segir að mark­aðs­að­stæður á sölu kald­sjáv­ar­rækju hafi verið erf­iðar frá upp­hafi heims­far­ald­urs­ins og ekki er talið að það breyt­ist á næstu miss­erum. Þá telur stjórn Hólma­drangs að komið er að veru­legri end­ur­nýjun hús­næðis og bún­aðar, eigi vinnslan að verða sam­keppn­is­hæf. Samkvæmt mati sér­hæfðs aðila sé kostn­að­ur­inn á nýjum bún­aði ekki undir 500 millj­ónum króna. Við þessa fjár­hæð bæt­ist svo mik­ill kostn­aður vegna end­ur­nýj­unar á hús­næði. Það er mat stjórnar Hólma­drangs að rekst­ur­inn standi ekki undir slíkri fjár­fest­ingu.

Uppsagnir um mánaðarmót

Í ljósi stöð­unnar ákvað stjórn Hólma­drangs að stöðva rækju­vinnsl­una um næstu mán­aða­mót. Starfs­fólk var í dag upp­lýst um stöðu mála og að óbreyttu komi til upp­sagna um mán­aða­mótin í sam­ræmi við gild­andi starfs­samn­inga og reglur um hóp­upp­sagnir.

Stjórn Hólma­drangs hvetur alla aðila er koma að atvinnu­málum Stranda­byggðar til að kanna gaum­gæfi­lega mögu­leika á annarri starf­semi í hús­næði félags­ins, og mun leggja til ráð­gjafa­þjón­ustu í tengslum við slíka vinnu. Sér­hæfður aðili hefur verið ráð­inn til verk­efn­is­ins, sem þekkir vel til atvinnu­mála Stranda­byggðar.

Upplýst er á vef Samherja að  veit­ar­stjórn Stranda­byggðar og fyr­ir­tækið Íslensk verð­bréf hafi und­ir­ritað vilja­yf­ir­lýs­ingu um fisk­eldi og þara­rækt. Hólma­drangur hefur að sögn þegar rætt við ÍV um hugs­an­lega aðkomu að þessu verk­efni sem gæti opnað mögu­leika á nýjum atvinnu­tæki­færum á staðnum með nýt­ingu þeirra fast­eigna sem fyrir eru.

Að mati stjórnar Hólma­drangs liggja hugs­an­leg tæki­færi fyrir svæðið ekki síður í mögu­legri upp­bygg­ingu ferða­þjón­ustu, sé litið til vax­andi fjölda ferða­manna og aðdrátt­arafls svæð­is­ins fyrir ferða­menn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas