Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Konum bannað að bóka leghálsskimun án boðunar

Nokkuð virð­ist vera á reiki hvort konur geti nú pantað sjálfar tíma í leg­hálskrabba­meins­skimun. Hjá heilsu­gæslu í Reykja­vík feng­ust þær upp­lýs­ingar í síma síð­degis í gær, mið­viku­dag, að form­legt boð yrði að koma frá heilsu­gæslu. Ljós­mæður sjái alfarið um að skima fyrir heilsu­gæslu­stöðvar alls staðar á land­inu en að konur geti ekki óskað skimunar nema form­legt boð hafi borist.

Þessar upp­lýs­ingar koma heim og saman við fræðslu- og upp­lýs­inga­texta þann sem finna má á vef­síðu Sam­hæf­ing­ar­stöðvar krabba­meins­skim­ana, en þar kemur fram að konum sé boðin skimum fyrir leg­hálskrabba­meini á þriggja ára fresti á ald­urs­bil­inu 23-29 ára og á fimm ára fresti á ald­urs­bil­inu 30-65 ára. Þá geti þær konur sem búsettar eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hafa þegar fengið boðs­bréf í skimun, bókað tíma gegnum vef­inn heilsu­vera.is

Símsvarar vísa á vefsíður og svarafátt á heilsugæslu 

Blaða­maður Mannlífs reyndi nú í dag að afla upp­lýs­inga sím­leiðis um bókun án boð­unar í leg­hálskrabba­meins­skimun en upp­gefið upp­lýs­inga­númer Sam­hæf­ing­ar­stöðvar krabba­meins­skim­ana reynd­ist sím­svari þar sem fram kemur að opið sé fyrir skimanir fyrir leg­hálskrabba­meins­skimanir á öllum heilsu­gæslu­stöðvum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Vísar sím­svari á nán­ari upp­lýs­ingar á vef­síðu Sam­hæf­ing­ar­stöðvar en á þeirri vef­síðu er svo aftur vísað  til skimun­ar­leið­bein­inga Embættis Land­læknis.

Konum uppálagt að senda tölvupóst

Í sím­tali við heilsu­gæslu á höf­uð­borg­ar­svæð­inu feng­ust einnig þær upp­lýs­ingar að form­legt boð yrði að liggja fyrir og að konur gætu ekki bókað tíma sjálfar gegnum síma. Hjá Embætti Land­læknis feng­ust að end­ingu þær upp­lýs­ingar að kven­sjúk­dóma­læknir sá sem fer fyrir mál­efn­inu sé ein­ungis í hluta­starfi hjá emb­ætt­inu. Hægt sé að senda tölvu­póst í upp­lýs­inga­skyni en að engar upp­lýs­ingar séu veittar gegnum síma. Nánari fræðslu um skimanir sé að finna á vef emb­ætt­is­ins.

Heilbrigðisyfirvöld vísa til fræðslustúfa á vefsíðum

Í skrif­legu svari Land­læknis til blaða­manns Vísir fyrr í dag kemur fram að konur geti ekki pantað skimun að eigin ósk. Farið sé eftir fyr­ir­fram skil­greindu skimun­ar­kerfi og kemur það heim og saman við þær upp­lýs­ingar sem blaða­maður MANNLÍF þyk­ist höndum hafa kom­ist yfir, ef taka á mið af við­brögðum heil­brið­is­starfs­manna við per­sónu­legri fyr­ir­spurn gegnum síma nú í þess­ari viku. Land­læknir vísar enn­fremur, í skrif­legu svari til Vísis, á fræðslu­stúfa á vef emb­ætt­is­ins um kosti og ókosti skimunar en til­raunir blaða­manns MANNLÍF til að afla upp­lýs­inga sím­leiðis um leiðir til skimunar nú í þess­ari viku fóru allar á þann veg að vísað var á vef­síður, bæk­linga og fræðslu­rit.

Kemur fram á vefsíðu að hægt sé að afþakka skimun

Á vef Land­læknis er almennan upp­lýs­inga- og fræðslu­bæk­ling að finna, en þar kemur fram að boð frá heilsu­gæslu þurfi að hafa borist svo konum sé ger­legt að mæta í skimun. Þær megi þó afþakka skimun og þar með sýna­töku og sé frjálst að óska skoð­unar síðar án frek­ari útskýr­inga. Loks má lesa orðin: „Vel gengur að senda sýni til Dan­merkur, engin sýni hafa týnst eða eyði­lagst á vegum heilsu­gæsl­unnar“ á vef Heilsu­gæslu höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins undir yfir­skrift­inni Staða leg­háls­skimunar – Vika 22 en mörgum þykir nóg um og krefj­ast taf­ar­lausra úrbóta. Ef marka má við­brögð heil­brigð­is­yf­ir­valda við fyr­ir­spurn blaða­manns síð­degis í gær, er hins vegar einnig á reki hvort konur, búsettar á Íslandi, eigi hrein­lega kost á slíkri sýna­töku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas