Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sinnti tveimur útköllum vegna elds í grillum á síðasta sólarhring. Að sögn slökkviliðs gekk vaktin annars vel fyrir sig þrátt fyrir töluverðan erill.
Í tilkynningu frá slökkviliðinu kemur fram að ekki sé óalgengt að kvikni í grillum, sérstaklega þegar þau hafa ekki verið þrifin reglulega. Bent er á að fita sem safnast í fituskúffur og annars staðar í grillum geti skapað verulega eldhættu.
Slökkviliðið hvetur eigendur grilla til að sinna reglulegu viðhaldi og hreinsun til að draga úr hættu á eldsvoðum, sérstaklega yfir sumarmánuðina þegar notkun grilla er hvað mest.
Sjúkraflutningamenn voru einnig önnum kafnir á vaktinni. Alls voru 113 sjúkraflutningar sinntir á höfuðborgarsvæðinu á síðasta sólarhring, þar af voru 32 forgangsverkefni sem kröfðust skjótra viðbragða.
Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu hefur helgin í heild gengið ágætlega fyrir sig og engin stór eða umfangsmikil verkefni komið upp þrátt fyrir mikinn erill.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir