Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Atvinnurekandi sýknaður í nauðgunarmáli: Skammaðist sín mikið fyrir næturheimsókn á hótelherbergi

Myndin tengist ekki efni greinarinnar.
Myndin teng­ist ekki efni grein­ar­innar.

Eigandi fyr­ir­tækis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var sýkn­aður í Hér­aðs­dóm­i Reykja­vík­ur af ákæru vegna meintrar nauðgun­ar fyr­ir átta árum. Konan sem um ræðir kærði mann­inn í kjöl­far sátta­fundar sem hald­inn var fjór­um árum eftir meint atvikið. Starfs­fólk fyr­ir­tæk­is­ins fór í stefnu­mót­un­ar­ferð árið 2015. Hópurinn gisti á hót­eli.

Mann­in­um var gefið að sök að hafa farið inn á hót­el­her­bergi þar sem kon­an lá sof­andi. Þar hafði hann að sögn af­klætt sig, farið upp í rúm til kon­unnar og lagst ofan á hana. Konan lýsti atvikum þannig að hann hefði haldið henni fastri, þuklað á lík­ama henn­ar og kysst hana. Þá hafi atvinnu­rek­and­inn sett fing­ur í nokk­ur skipti inn í leggöng sín og reynt að þröngva sér inn á meðan hún barð­ist á móti.

Rík­is­út­varpið segir frá því að fyr­ir dómi hafi konan lýst því að hún hefði farið snemma að sofa um kvöldið. Árla morg­uns hefði maður­inn komið inn á hót­el­her­bergi henn­ar. Hún sagði hann hafa ít­rekað sagt hluti við sig eins og „veistu ekki hver ég er?“. Hún sagði at­hæfið hafa staðið yfir í um hálfa til eina klukku­stund. Að lok­um hafi maður­inn hálf­part­inn gef­ist upp. Í kjöl­farið sagð­ist kon­an hafa leitað til sam­starfs­konu sinn­ar og sagt henni frá at­vik­inu.

Suðað um kynlíf

Maður­inn neit­aði sök en við­ur­kenndi að hafa farið inn á hót­el­her­bergi kon­unn­ar, sem hefði verið ólæst. Hann hafði ímyndað sér að hún hefði gefið hon­um und­ir fót­inn yfir dag­inn. Atvinnu­rek­and­inn sagð­ist átta sig á því að það hefði verið rangt og fram­koman hefði verið dóm­greind­ar­brest­ur af hans hálfu.

Maður­inn við­ur­kenndi að kon­an hafi strax gert hon­um grein fyr­ir því að hann væri ekki vel­kom­inn. Hann hefði engu að síður reynt að fá hana til kyn­lífs með því að suða í henni. Hann sagði eng­ar snert­ing­ar hafa átt sér stað en að hann hefði farið úr jakka, skóm og bux­um og lagst upp í rúm og sofnað.

Fyrir dóm­inum sagð­ist hann hafa skamm­ast sín mikið fyr­ir at­vikið og beðið kon­una af­sök­un­ar á og að hún hefði fall­ist á af­sök­un­ar­beiðni hans. Þau hefðu unnið áfram sam­an í fjög­ur ár eft­ir þetta og ekk­ert hefði skyggt á sam­skipti þeirra. Hann hafði ákveðið að fara á skrif­stof­una til kon­unn­ar og beðið hana að tala við sig í ein­rúmi þar sem hann hefði aft­ur beðið hana af­sök­un­ar. Þá hafi hún sagt að þetta væri ekk­ert stór­mál. Hann hefði því talið að þar með væri mál­inu lokið. Kon­an sagð­ist hafa tekið við fyrri af­sök­un­ar­beiðni manns­ins í gegn­um síma en að hún hefði verið í opnu vinnu­rými og átt erfitt með að tala og lítið annað getað gert en að fall­ast á af­sök­un­ar­beiðn­ina. Hún hefði síðan reynt að loka á at­vikið.

Fyr­ir dómi sagði kon­an að maður­inn hefði komið til henn­ar þegar Met­oo-umræðan hefði komið upp og beðist af­sök­un­ar á ný. Hann hefði hins veg­ar ekki virst hafa áhyggj­ur af líðan henn­ar. Þetta hefði komið henni á óvart og henni hefði fund­ist hún ekki geta annað en sagt að þetta væri í lagi.

Dóm­ur­inn taldi að af gögn­um máls­ins að dæma og gegn neit­un manns­ins hvorki vera sannað svo hafið verði yfir skyn­sam­leg­an vafa að ákærði hafi gerst sek­ur um nauðgun eða til­raun til nauðgun­ar. að loka á at­vikið

Dóm­ur­inn taldi framb­urð ákærða og vitna ekki sanna að maður­inn hafi gerst sek­ur um nauðgun eða til­raun til nauðgun­ar.

Kröfu kon­unn­ar um miska­bæt­ur að fjár­hæð fimm millj­ón­ir króna var hafnað og sak­ar­kostn­aður felld­ur á rík­is­sjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto