Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Heimur

Prestur rifjar upp óþægilega reynslu úr æsku

Fólk

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Heimur

Lögregla fjarlægði mótmælanda eftir að hafa ruglast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veruleika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Brynjar gerir gys að Eddu Falak: „Ég hef því mikla samúð með lygurum þegar á þá er ráðist“

Brynjar Níelsson.
Brynjar Níelsson.

Brynjar Níelsson er mikill húmoristi, um það er varla deilt, og þó. Umdeildur er hann. Í nýrri færslu á Facebook gerir hann gys að yfir­lýsingu Eddu Falak sem hún birti á Facebook í gærkvöldi.

Sjá einnig: Edda Falak vildi hlífa sér og þeim sem sýndu henni vanvirðingu: „Ég er breysk eins og annað fólk“

Í færslunni segist Brynjar vera mikill lygari og þess vegna hafi hann valið sér störf í gegnum árin sem henta vel til að „uppfylla þessa ríku þörf til að hagræða sann­leikanum eða ljúga blákalt.“ Segist hann því hafa mikla samúð með „lygurum þegar á þá er ráðist.“ Þá segist í dag aðallega stunda lygarnar á Facebook en reyni þó að ljúga ekki upp á saklaust fólk. Segist hann að lokum vonast eftir stuðning og læk frá fræga fólkinu vegna þessarar játningar.

Hér má lesa færsluna alla:

„Ég er lygalaupur mikill og má segja að ég sé lyginni líkastur. Því hef ég valið mér störf í gegnum tíðina sem henta vel til að uppfylla þessa ríku þörf til að hagræða sann­leikanum eða ljúga blákalt. Ég hef því mikla samúð með lygurum þegar á þá er ráðist. En ég hef komist að því á langri ævi að lygin hentar illa í pólitískum aktivisma til lengri tíma og einfaldar sannanlega málin ekki, jafnvel þótt við kölluð hana missögn.

Ég stunda mínar lygar einkum hér á fésbókinni nú til dags til að halda mér í formi. Reyni þó að forðast að ljúga upp á saklaust fólk. Lýg því einkum upp á sjálfan mig og eigin­konan fær að fljóta með, svona meira upp á stílinn. Með þessari játningu vonast ég til að fá stuðning og nokkur læk frá fræga fólkinu.“

Þó nokkrir hafa svarað færslunni en athugasemdirnar eru allar jákvæðar gagnvart inni­haldinu. Ólikindatólið Jakob Bjarnar Grétarsson blaða­maður skrifaði til dæmis: „Þú gleymdir myllu­merkinu! #afsakið“ sem Brynjar svaraði að bragði: „Ah, klikka alltaf á aðal­atriðunum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neðan­jarðar­hvelfingu fyrir „framandi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Innlent

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi

Innlent

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Neytendur eru beðnir um að farga vörunni eða skila henni.

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafnaskrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra