Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Fólk

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Var Borges besti Íslandsvinurinn?

Borges og Beinteinsson
Borges og Bein­teins­son

Í dag erum við Íslendingar orðnir varnir því að land okkar sé vinsæll áfanga­staður ferða­langa og að þjóðin búi við býsna góðan orðstýr. Íslendingar eru virtir á alþjóðavettvanig í listum og öðrum greinum. En á síðustu öld var veröldin frekar tómlát gagnvart þessari eyju út í ballar­hafi en þó leyndust þar traustir vinir. Reyndar áttum við, á þessum vinafáu tímum, aðdáanda sem leit svo upp til þessarar þjóðar að hann kom hingað til lands í, það sem hann kallaði, pílagríms­ferðir. Þetta var enginn annar en argentínski skáldjöfurinn Jorge Luis Borges sem á engan sinn líkan í bókmennta­sögunni og er löngu kominn á bekk með mikil­vægustu rithöfundum allra tíma. Hann lagði stund á íslenskunám og það var einmitt í þeim kennslu­stundum sem hann og eiginkona hans, hinn japansk­ættaði rithöfundur María Kodama, felldu hugi saman.

Jorge Luis Borges

Sagði hann frá því í viðtölum að hann hefði grátið af gleði þegar hann kom fyrst til landsins árið 1971. Það var ekki lands­lagið sem hreif hann en Borges var nánast alveg blindur á þessum árum. Hann komst hinsvegar við að heyra okkar ylhýru tungu, en íslenskuna kallaði hann latínu norðursins. Seinna sagði hann að það eitt að vera á þessu landi væri nóg til að fylla hann hamingju. „Þetta land er eins og fjar­sjóður sem heimurinn á,“ sagði hann eitt sinn. Lýsti hann því líka yfir að hann dreymdi um að búa hér á landi.

Íslandsást þessi hófst þegar hann var lítill drengur í lesherberginu í föður­húsum en þá réttir faðir hans honum Völsunga­sögu. Hann heillaðist svo af sögunni að allt frá þeirri stundu varð hann einlægur aðdáandi íslenskra bókmennta og sökkti hann sér í þau fræði. Orti hann síðar óð til Íslands sem er skýrt merki um þann ástarhug sem hann bar til lands og þjóðar. Einnig orti hann um Snorra Sturluson, sem hann sagði að væri engin eftir­bátur Shakespears, skrifaði ritgerðir um forn­bókmenntir okkar og hældi landi og þjóð á hvert reipi í ótal viðtölum. Þeir Íslendingar sem vilja síðan láta reyna á ágæti Borgesar geta kynnt sér bókina Suðrið en í henni eru margar af bestu sögum argentínska skáldsins í snilldarlegri þýðingu Guðbergs Bergs­sonar.

Hann eignaðist marga vini hér á landi og reyndi að hafa upp á þeim þegar hann kom til landsins. Eitt sinn bar hinsvegar svo við að hann týndi tösku sinni þegar hann milli­lenti í Nýju Jórvík og þar með missti hann minnisbók sína með heimilis­föngum og síma­númerum íslensku vina sinna. Dó hann þó ekki ráðalaus og stigu þau hjón upp í leigubíl, þegar hingað var komið, og létu hann keyra sig um Borgar­fjörð. Síðan var tekið hús á allsherjar­goðanum Svein­birni Bein­teinssyni á Draghálsi. Þaðan var Borges leystur út með gjöfum og fékk meðal annars snældu með kvæðum í flutningi húsbóndans.  

Jorge Luis Borges lést árið 1986, áttatíu og sjö ára að aldri. Þó leiðtoga­fundur Reagans og Gorbatsjevs hafi verið haldin hér það ár var Ísland andstætt öllu því sem kalla mætti tísku. Það ár komu 113 þúsund erlendir ferðamenn til ársins en í venjulegu árferði nú á dögum eru þeir vel yfir tvær milljónir. Upplýst heimsfólk kann að hafa þekkt Vigdísi Finnboga­dóttur og Halldór Laxness og fróðustu popp­unnendur mundu eflaust eftir Mezzoforte. Íslenska lands­liðið í handbolta var að vinna sér sess meðal fremstu þjóða en annars voru íþrótta­afrek á alþjóða­vettvangi ekki tíð og íslensk náttúra var í hugum flestra samnefnari fyrir vont veður. En þrátt fyrir það áttum við þá Íslandsvin sem þráði þetta land okkar öðrum fremur. Það er að segja, við höfum átt fáa Íslands­vini jafn einlæga og trausta og Jorge Luis Borges.

Hægt er að hlusta á nýjasta hlaðvarps­þátt Jóns Sigurðar hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Það verður fjör í fána­stöngunum síðdegis

Innlent

Lögregla leitaði að vopnuðum einstak­lingum í Breið­holti

Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Ný skýrsla Sameinuðu þjóðanna fjallar um dráp á konum og stúlkum. María Rut Kristinsdóttir og Ingileif Friðriksdóttir leiða ljósagöngu á morgun.

Innkalla vinsælt jólasmáköku­deig vegna aðskotahluts

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Sendi saksóknara falsað læknis­vottorð og hlaut ársfangelsi