Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Bjarni eldrauður í Kastljósinu: Vinstri-grænir hafna forsætisráðherra í beinni útsendingu

Bjarni Benediktsson.
Bjarni Bene­dikts­son.

Algjört upp­nám er innan stjórn­ar­flokk­anna eftir að Bjarni Bene­dikts­son for­sæt­is­ráð­herra boð­aði þing­rof og kosn­ingar í des­em­ber. Í Kast­ljósi kvölds­ins upp­lýsti Svandís Svav­ars­dóttir að VG myndi ekki sætta sig við að sitja í starfs­stjórn með Bjarna Bene­dikts­son sem for­sæt­is­ráð­herra. Bjarna var ber­sýni­lega brugðið og hann var eld­rauður í framan og ekki rökviss. Svandís sag­p­ist jafn­framt geta hugsað sér að starfa með Sigurði Inga Jóhanns­syni, for­manni Fram­sókn­ar­flokks­ins, sem for­sæt­is­ráð­herra.

Svandís Svav­ars­dóttir henti sprengju inn í rík­is­stjórn­ar­sam­starfið.

Sigurður Ingi besti kostur

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi for­maður Sam­fylk­ingar, lýsir því á Facebook að Bjarna hafi mis­tek­ist að setja upp leik­rit sem honum hentar.„Á tröpp­unum á Bessa­stöðum í morgun sagði Bjarni Bene­dikts­son að hann teldi eðli­leg­ast að núver­andi rík­is­stjórn sæti áfram til kosn­inga einsog venju­leg rík­is­stjórn. Ef sam­starfs­flokk­arnir vildu það ekki, þá myndi hann leggja fram lausn­ar­beiðni fyrir rík­is­stjórn sína. Þar með yrði rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu slitið. Undir kvöld­mat­ar­leytið eftir fund sinn með for­set­anum tók Svandís Svav­ars­dóttir hins vegar alger­lega af skarið með það, að VG er ekki reiðu­búið til þess. Svandís sagði líka alveg skýrt að hún gæti vel hugsað sér bráða­birgða­stjórn þar sem Sigurður Ingi, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, yrði for­sæt­is­ráð­herra uns ný rík­is­stjórn verður mynduð,“ skrifar Össur og segir það vera vit­ur­legt af henni.

Sigurður Ingi Jóhanns­son.

„Af öllum þing­mönnum er Sigurður Ingi lang­best fall­inn til að gegna því hlut­verki. Hann er þraut­reyndur – og maður með dýr­mæta reynslu sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann reynd­ist sér­lega far­sæll þegar hann tók við því emb­ætti með hálfs dags fyr­ir­vara árið 2016 og gegndi því með miklum sóma í níu mán­uði – og í gegnum kosn­ingar,“ skrifar Össur.Pistill Össurar í heild sinni:Á tröpp­unum á Bessa­stöðum í morgun sagði Bjarni Bene­dikts­son að hann teldi eðli­leg­ast að núver­andi rík­is­stjórn sæti áfram til kosn­inga einsog venju­leg rík­is­stjórn. Ef sam­starfs­flokk­arnir vildu það ekki, þá myndi hann leggja fram lausn­ar­beiðni fyrir rík­is­stjórn sína. Þarmeð yrði rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu slitið.

Össur Skarp­héð­ins­son, fyrr­ver­andi utan­rík­is­ráð­herra.

Undir kvöld­mat­ar­leytið eftir fund sinn með for­set­anum tók Svandís Svav­ars­dóttir hins vegar alger­lega af skarið með það, að VG er ekki reiðu­búið til þess.Svandís sagði líka alveg skýrt að hún gæti vel hugsað sér bráða­birgða­stjórn þar sem Sigurður Ingi, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, yrði for­sæt­is­ráð­herra uns ný rík­is­stjórn verður mynduð. Það var vit­ur­legt af henni.Af öllum þing­mönnum er Sigurður Ingi lang­best fall­inn til að gegna því hlut­verki. Hann er þraut­reyndur – og maður með dýr­mæta reynslu sem for­sæt­is­ráð­herra. Hann reynd­ist sér­lega far­sæll þegar hann tók við því emb­ætti með hálfs dags fyr­ir­vara árið 2016 og gegndi því með miklum sóma í níu mán­uði – og í gegnum kosn­ingar.Þá má rifja eft­ir­far­andi upp: Árið 2016 kom Sig­mundur Davíð for­sæt­is­ráð­herra askvað­andi á Bessa­staði og heimt­aði að Ólafur Ragnar þáv. for­seti stað­festi ákvörðun um þing­rof. Ólafur Ragnar yfir­heyrði hann stutt­lega og nán­ast henti honum að því búnu út af Bessa­stöðum. Degi síðar var Sigurður Ingi orð­inn for­sæt­is­ráð­herra.Í dag kom Bjarni Bene­dikts­son á Bessa­staði og ræddi þing­rof en án þess að stjórnin færi frá – svo hann gæti veifað valdi for­sæt­is­ráð­herra í kosn­inga­bar­átt­unni. Núver­andi for­seti, á kurt­eis­ari hátt en Ólafur Ragnar á sínum tíma, taldi hins vegar ekki tíma­bært að taka afstöðu til þing­rofs­beiðn­innar og hóf fundi með for­mönnum allra flokka.Samkvæmt eigin yfir­lýs­ingu hlýtur því Bjarni að mæta aftur á Bessa­staði á morgun – og nú til að afhenda lausn­ar­beiðni rík­is­stjórnar sinnar. Lang­lík­leg­ast er líka á þessu augna­bliki að aftur verði það Sigurður Ingi sem endar kjör­tíma­bilið sem for­sæt­is­ráð­herra – á jafn­far­sælan hátt og hann gerði 2016.Svona end­ur­tekur sagan sig. Þegar menn setja upp leik­rit þarf að hugsa það til enda. Það gerð­ist ekki 2016, og ekki heldur 2024.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn