Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dagbækurnar og sleit sambandinu við David Walliams

Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Fólk

Hlýlegt heimili við Efri Hól bíður nýrra eigenda

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Heimur

Samsæris­kenningar spretta upp eftir undarlegt augnablik á blaðamanna­fundi

Kolbrún, eigandi Jurtaapóteksins: „Matur sem leikur við öll skynfærin“

Kolbrún Björns­dóttir, eigandi Jurta­apóteksins, hefur starfað við grasa­lækningar í 22 ár eða frá því að hún útskrifaðist úr grasa­lækna­skólanum í Bretlandi árið 1993. Kolbrún er Matgæðingur Mannlífs, þessa vikuna.

Við spurðum Kolbrúnu hvort hún ætti sinn uppáhalds­rétt.

„Uppáhalds­réttur minn, vá, það er ekkert auðvelt að finna einn sérstakan. Ég hugsa að annaðhvort sé það matur sem minnir mig á æskuna og fyllir mig nostalgíu, þar sem hjartað hoppar af kæti og til verður þessi barnslega gleði, eða hins vegar matur sem mér finnst geggjað gaman að elda, matur sem leikur við öll skynfærin.“

Veitir mér gleði og örvar gleði­horm­ónin

„Bragð sem flytur mig á ókunnar slóðir, ilmur sem fær mig til að líða vel, veitir mér gleði og örvar gleði­hormónin. Sjónin fær örvun með alls kyns lita­samsetningu. Mér dettur helst í hug ísraelski kokkurinn Ottolenghi, sem starfar í Lundúnum, sem nær fram þessum áhrifum. Margir af hans réttum eru mínir uppáhalds­réttir.

Eitt af mínu uppáhaldi eru lambahakks­kjötbollur, glúteinlausar.“

Kolbrún segist vera ástríðurkokkur sem geri mikið af þessu, soldið af hinu og pínulítið af öðru. Hún notast sjaldan við uppskriftir og ef hún gerir það, þá breytir hún þeim oftast. En henni finnst mjög gaman að elda og eldar úr eins fersku hráefni og hægt er.

„Ég reyni að nota fjöl­breytta liti í matinn svo það sé skemmtilegra að borða hann. En ef ég er þreytt og finnst ég ekki hafa tíma þá bý ég til vondan mat.

Ég er frekar nösk á að sjá hvað er mjög gott

Í matar­boðunum hefur það aldrei klikkað að nota partí­uppskriftir úr Ottolenghi-uppskrifta­bókinni. Ég útbý marga rétti og þótt ég segi sjálf frá þá er ég frekar nösk á að sjá hvað er mjög gott í uppskriftunum hans. Hér er t.d. salat frá Ottolenghi sem skapar bragð sem er engu líkt og kallast Karsi (ég nota kletta­salat í staðinn) /pistasíu og appelsínu-blóma­salat.“

Dagsrútína Kolbrúnar

Dæmi­gerður dagur hjá Kolbrúnu hefst þegar hún vaknar kl. 6.00 og fær sér stórt vatnsglas. Hún iðkar svo klukku­tíma jógarútínu, öndun og hugleiðslu. Þannig fer dagurinn best af stað.

„Svo pressa ég safa sem er gúrka, sellerí, hvítkál (nýjasta æðið), engifer eða eitthvað grænt, og fer eftir það í gott bað. Þegar ég kem úr baðinu fæ ég mér næringar­drykk með alls konar í. Alltaf íslensk ber, vatn, olíur (Omega-3 + 7 og mct.), alls konar næringar­jurtir, hreint kakó (oft), hörfræ eða hampfræ. Stundum set ég lífrænt epli (er svo flott pektín í því sem styður við bakteríu­flóruna). Þessi drykkur byrjaði sem túrmerik-latte þegar ég var að prófa ketó svo þróaðist hann í þetta. Stundum er þetta geggjað gott og stundum fer ég yfir strikið og nota of mikið af einhverju sem gefur ekki nógu gott bragð. Það truflar mig ekki á morgnana, ég þarf bara góða næringu.

Hádegis­maturinn er vanalega afgangar frá kvöldinu áður, sem oftast enda sem kássa. Á kvöldin elda ég frá grunni, oftast elda ég, en börnin fá stundum að spreyta sig og nota ég  eins ferskt hráefni og hægt er – grænmetismat, kjöt og fisk, en ég bý svo vel að fá fjalla­vatnasilung. Á kvöldin baka ég mjög oft heilan silung með beinum og öllu. Finnst þessi þróun að bein­hreinsa allt ekki alveg nógu góð, vegna þess að beinin næra okkar bein.“

Ein af skemmtilegustu matarminningum Kolbrúnar

„Eitthvað sem ég get ekki borðað er lifrar­pylsa, bara út af æsku­minningu sem ég á. Annars finnst mér fátt virkilega vont.

En ein af mínum skemmtilegustu matar­minningum er sennilega þegar ég var að vinna á  Heilsu­hælinu í Hvera­gerði. Ég var tvítug og hafði sagst kunna að elda, sem ég varla kunni. Ég ólst uppi í sveit og hafði mestmegnis verið að vinna úti við, en ekki inni í eldhúsinu. Pálína, sem þá stjórnaði eldhúsinu, sagði við mig: „Settu 16 egg í pottinn.“  Það voru fjórir pottar á elda­vélinni, ég valdi einn sem var fullur af vatni og byrjaði að brjóta eggin ofan í vatnið þangað til einhver kom og sá hvað ég var að gera og sagði: „Hvað ertu að gera?“

Ég var þá búin að skemma einhverja súpu og hafði átt að sjóða eggin. Eftir þetta var ég færð inn í sal og fékk aldrei að gera neitt  í eldhúsinu aftur.“

Lambahakkskjötbollur með ferskri basilíku

Innihald:

  • 500 g lambahakk, lífrænt (það er það sem ég nota)
  • 40 g basilíka fersk, smátt skorin
  • 1½ tsk. sjávar­salt gott, eða Himalaya-salt
  • 2 stk. eggja­rauður
  • 4 msk. bókhveiti­flögur (Sólgæti)
  • 2 tsk. kúmmin-duft
  • 1 msk. óreganó­lauf
  • 1 tsk. engifer­duft
  • 1 tsk. grænmetis­kraftur, án gers í dufti
  • svartur pipar eftir smekk

Aðferð:

Öllu hrært saman og mótaðar bollur með hreinum höndum. Sett á bökunar­plötu með bökunar­pappír undir. Bakað við 200 °C í 25 mínútur.

Með þessu er svo hægt að hafa ferskt salat og gufusoðið grænmeti eða bakað. Kjötið ætti ekki að vera nema 25% af matnum. Má hafa grjón eða kartöflur með. Hægt að gera uppbakaða sósu eins og mamma gerði, en gera hana í mínum stíl, sem væri kókósolía og bókhveiti­mjöl, svo vatn sett út í. Set svo kryddið sem ég notaði í kjöt­bollurnar líka í sósuna. Set svo smá kraft í sósuna og lita hana og krydda hana svo með hollri Tamari-sojasósu.  Smakka svo til með salti og pipar.

Karsi, pistasíu og appelsínu-blómasalat

Innihald:

  • 90 g kletta­salat/karsi (karsi er erfitt að fá hér á Íslandi)
  • 20 g fersk basilíka
  • 20 g fersk kóríander­lauf
  • 10 g ferskt dill
  • 10 g ferskt estragon
  • 40 g ósaltaðar pistasíur, léttilega ristaðar og saxaðar

Aðferð:

Blandið öllu grænu saman og setjið ekki dressinguna og pistasíur í fyrr en rétt áður en þetta er borið fram.

Dressing:

  • 4 msk. kaldpressuð ólífuolía
  • 1½ msk. sítrónu­safi
  • 1 msk. appelsínu­blómavatn (fæst í Jurta­apótekinu)
  • salt og pipar
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Stúlkan var á rafmagnsreiðhjóli á Byggðavegi við Vanabyggð. Lögregla óskar eftir upplýsingum frá vitnum.
Innlent

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Innlent

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sambands­afmæli með kærustunni

„Lífið er svo miklu betra með þér“

„Niður­lægjandi að smækka fólk niður í tölur“

Fjórum árum eftir að heilinn hótaði uppsögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Af hverju getur lyktin af makanum verið svona ómótstæðileg?

Vigtuð vikulega og sett á matarplan aðeins tíu ára gömul