Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Fólk

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Lukkuriddarar mæna á Kristrúnu

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra
Kristrún Frosta­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar og for­sæt­is­ráð­herra

Kannanir sem sýna gríðar­lega fylgis­aukningu Samfylkingar undir stjórn Kristrúnar Frosta­dóttur þykja vera klár vísbending um að flokkurinn muni tvöfaldast að minnsta kosti í næstu kosningum. Jafnframt liggur fyrir að einungis helmingur núverandi þing­flokks mun halda áfram. Helga Vala Helga­dóttir hrökklaðist á brott eftir nokkurn núning við ráðandi forystu og sneri aftur í störf sem lögfræðingur. Þá er talið að Oddný Harðar­dóttir, leiðtogi í Suður­kjördæmi, muni hætta. Ólíklegt er talið að Þórunn Svein­bjarnar­dóttir, leiðtogi í Kraganum, haldi áfram. Þá standa eftir þing­mennirnir Jóhann Páll Jóhannsson og Logi Einarsson sem báðir eru í innsta valda­hring formannsins.

Það bíður Kristrúnar nú það vndasama verk að manna framboðs­lista með fólki sem nær að heilla kjósendur og fylgja eftir meðbyrnum. Nokkrir lukku­riddarar fortíðar hafa gefið frá sér óljós merki um að þeir vilji stökkva á sigurvagn Kristrúnar. Þeirra á meðal eru Björgvin G. Sigurðsson, sem hefur átt í nokkru klandri síðan hann féll af þingi og er ólíklegur til að hala inn atkvæði. Þá er Guðmundur Andri Thorsson, fyrr­verandi rithöfundur, sagður vera með vonar­glampa í augum. Hann þótti af mörgum vera fremur aðgerða­lítill þingmaður og fljótt hefur fennt í spor hans á þingi. Aftur á móti er hann frjór og afkasta­mikill rithöfundur og einhverjir telja hann betur kominn í þeim geira áfram.

Talið er að Guðmundur Árni Stef­ánsson, leiðtogi minni­hluta bæjar­stjórnar Hafnar­fjarðar og vara­formaður Samfylkingar, sé tilbúinn að leiða flokkinn í Kraganum. Þess er að vænta að framboð hans leggist vel í kjósendur og gefi flokknum nauðsyn­legan blæ reynslu og pólitískrar visku. Allt mun þetta ráðast af vilja Kristrúnar sem heldur fast um alla þræði í flokknum …

Uppfært: Í upphaflegri útgáfu Orðrómsins var fullyrt er að Oddný Harðar­dóttir hefði gefið út að hann ætlaði að hætta. Það er ranghermt. Hún er að hugsa sinn gang.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Mette Frederiksen segir gagnrýni á orðaval sitt ekki lýsa afstöðu sinni. Ummæli hennar í stjórnmálahlaðvarpi hafa vakið umræðu í Danmörku.
Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Menning

Sigrún Páls­dóttir tilnefnd til Dublin-bókmennta­verð­launanna

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Heimur

Ferð fyrr­verandi klám­stjörnu til Sýrlands vakti deilu

Slúður