Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Sigurður fyrrum bæjarstjóri: „Eldri konur eiga þetta ekki skilið!“

Mynd. Skjáskot/Rúv
Mynd. Skjáskot/Rúv

Sigurður var einn vin­sæl­asti Mogga­blogg­ari lands­ins og umdeildur sem slíkur.

„Það sjá allir hversu mikið órétt­læti þetta er,“ segir Sigurður Jónsson, fyrr­ver­andi bæj­ar­stjóri í Garði, í aðsendri grein í Morg­un­blað­inu.

Þar skrifar hann um það órétt­læti sem hefur verið við lýði hér á landi í líf­eyr­is­málum und­an­farna ára­tugi.

Sigurður bendir á að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna hafi nú ákveðið að hækka líf­eyri til sinna félaga um 10%. Það sé í sjálfu sér gott mál en sýni samt sem áður hversu órétt­látt kerfi við búum við varð­andi skerð­ingar.

„Aðili sem hefur 200.000 krónur á mán­uði úr líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna fær 20.000 kr. hækkun á mán­uði en á móti skerð­ast greiðslur hans frá Trygg­inga­stofnun, þannig að eftir standa aðeins 5.000 kr. Aftur á móti lítur dæmið betur út hjá þeim sem hefur 700.000 kr. á mán­uði. Sá líf­eyr­is­þegi verður ekki fyrir neinum skerð­ingum frá Trygg­inga­stofnun og greiðir ein­göngu skatt af hækk­uðu fram­lagi. Það hlýtur að vera komið að því að stjórn­völd lag­færi kjör þeirra eldri borg­ara sem búa við lægstu kjörin.“

Sigurður vísar í nið­ur­stöður nýlegrar rann­sóknar þar sem kom í ljós að konur fá almennt lægri greiðslur úr líf­eyr­is­sjóðum en karlar. Þetta komi alls ekki á óvart.

„Ef við lítum nokkra ára­tugi til baka þá var það mjög algengt að eig­in­konan ynni ekki úti heldur sæi um að halda heim­ilið, þar með talið upp­eldi barn­anna ásamt öllum öðrum heim­il­is­störfum. Það var fyrst og fremst hlut­verk eig­in­manns­ins að stunda vinnu utan heim­il­is­ins og vinnu­dag­ur­inn var oft langur. Eðli máls­ins sam­kvæmt var því lítið um að eig­in­konan greiddi í líf­eyr­is­sjóð og ynni sér þannig inn líf­eyri þegar að líf­eyr­i­s­töku kæmi.“

Sigurður bendir svo á órétt­lætið og nefnir að ef eig­in­maður fellur frá á undan konu sinni fái hún maka­líf­eyri í nokkur ár, mis­jafnt eftir líf­eyr­is­sjóðum, en dettur svo út eftir þrjú til fimm ár.

„Í mörgum til­fellum stendur þá mak­inn uppi með skuld­bind­ingar heim­il­is­ins en stærsti hluti tekn­anna er fall­inn út. Það sjá allir hversu mikið órétt­læti þetta er. Staðan var þannig fyrr á árum að litlir mögu­leikar voru á því að koma börnum á leik­skóla. Konan sá um heim­ilið og hugsið ykkur alla þá fjár­hæð sem spör­uð­ust hjá hinu opin­bera á þessum árum miðað við það sem nú er. Það er því ansi órétt­látt að nú, þegar þessar eldri konur ættu að fá greiðslur úr líf­eyr­is­sjóði, eru það ansi lágar upp­hæðir. Ekki nóg með það; eftir 25.000 kr. greiðslur frá líf­eyr­is­sjóði lækka greiðslur til hennar frá Trygg­inga­stofnun.“

Sigurður segir að auð­vitað eigi það að vera þannig að hjón eða sam­býl­is­fólk eigi líf­eyr­is­sjóð­inn sam­eig­in­lega. „Falli annað frá eiga líf­eyr­is­sjóðs­greiðslur að renna til hins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas