Fara í efni
Svavar Knútur Kristinsson
„Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhverjum dettur í hug að sé smekkleg hegðun á svona stundu?“
Svavar Knútur Kristinsson
Fólk

Selja eitt minnsta einbýli Reykja­víkur á ótrúlegu verði

Innlent

Barn tekið af dauða­drukknu pari í Laugar­dalnum

Innlent

Ásta Bjarney valin framyfir sjö aðra

Innlent

Ísland gefur þrjá sjúkra­bíla og 33 mótorhjól til Malaví

Innlent

Matvæla­stofnun fylgist náið með útbreiðslu veiru í hundum

Heimur

Kona lést eftir að hafa gengið á flugvélar­skrúfu

Peningar

Kröfur upp á rúmar 33 milljónir fengust ekki greiddar

Innlent

Móðir lýsir biðinni eftir fréttum af frumburði sínum

Fólk

GusGus uppfyllir GusGus gildin

Heimur

Eldur blossaði upp eftir árekstur við bensín­dælu

Í fréttum var þetta helst – Fótbrotinn prestur, ósáttur viðskiptavinur, nauðgun og annað fótbrot

Fótur Þórhalls prests kubbaðist í sundur: „Konan mín gat ekki hringt á hjálp“

Séra Þór­hallur Heim­is­son

Þórhallur Heimisson prestur fótbrotnaði afar illa í gönguskíða­slysi í Svíþjóð fyrir ári og tók það hann langan tíma að jafna sig eftir brotið. Fótur hans kubbaðist í sundur og var Þórhallur lengi rúmliggjandi í kjölfarið. Reynsla Þórhalls af sænsku heilbrigðis­kerfi er upp á tíu saman­borið við íslenska kerfið.

Þórhallur býr í Svíþjóð og er vanur göngu­skíðamaður. Fyrir tæpu ári fór hann með eiginkonu sinni í ferð sem þau hjónin munu seint gleyma.

„Við Ingileif fórum í stutta göngu­skíðaferð sem var svo lítið mál að við tókum ekki einu sinni símana með okkur. En ég lenti í hálku og datt svona líka illa. Konan mín gat ekki hringt á hjálp, símalaus, en ég var svo heppinn að það kom þarna „miskunn­samur samherji“, ung kona með bleikt hár, nagla í gegnum nefið og finnskan hreim, sem var með síma. Hún gat hringt á sjúkrabíl sem kom í skyndi Ég er ágætlega fær skíða­maður en í þessari ferð missti ég einbeitinguna eitt augnablik og datt þannig að fóturinn kubbaðist í sundur. Ég lá alveg flatur í tvo mánuði eftir fallið, gekkst undir aðgerð og kynnist sænska heilbrigðis­kerfinu mjög vel,“ segir Þórhallur um atburðinn.

Í sænska heilbrigðis­kerfinu var prestinum íslenska vel sinnt:

„Ég var fluttur á sjúkrahús, fékk þar fullkomna þjónustu, fór í aðgerð og þegar ég vaknaði eftir fyrstu nóttina var mér réttur matseðill og mér boðið að velja og leið eins og ég væri á hóteli. Eftir sjúkra­húsvistina var ég fluttur heim með sjúkra­leigubíl og þegar ég kom heim var spítalinn búinn að útvega hjólastól, gera baðherbergið hæft fyrir sjúkling og heimilið hjólastóla­hæft, án þess að ég bæði um það. Allt var þetta ókeypis. Þannig er nú sænska velferðar­kerfið, 100%. Á móti eru skattar þar auðvitað töluvert hærri en hér.“

Sjá alla fréttina: Fótur Þórhalls prests kubbaðist í sundur: „Konan mín gat ekki hringt á hjálp“

Bryndís mjög ósátt við Curvy: „Konan sem vinnur þar sagði að ég væri löt og ætti að fara í ræktina“

Bryndís Odd­geirs­dóttir

Bryndís Oddgeirs­dóttir segist hafa kynnst heldur betur óskemmtilegri og hreinlega niður­lægjandi framkomu þegar hún var í búðinni Curvy.

Gefum henni orðið:

„Ég fór í verslunina Curvy og bað um aðstoð við að finna mér réttan brjósta­haldara, og starfs­menn réttu mér nokkra, og ég mátaði en mér fannst enginn ná að halda nógu vel á hliðinni; þá sagði konan sem vinnur þar að ég væri bara löt og að ég ætti að fara í ræktina.

Þetta fannst mér mjög særandi og hef ekki getað farið þarna síðan; mér var bent á að fara í Misty af konu sem var að máta föt: Hún sá hversu niður­brotin ég var,“ segir Bryndís og bætir við:

„Ég fór bara í mín föt og labbaði út.

Að búð eins og þessi, Curvy, komi svona fram við kúnnana sína; ég á bara ekki til orð; ég hef verslað við Curvy í mörg ár, og aldrei neitt vesen eða leiðindi hingað til. Curvy auglýsir sig sem búð fyrir feitt fólk, og svo geta þeir ekki aðstoðað eins og fagfólk.

Fólk frá Biggest Loser hefur oft verslað þarna, og fengið sér mjög góð föt, en hvernig þá ef þeir eiga ekki brjósta­haldara sem halda við?“ spyr Bryndís og er mjög ósátt við dóna­skapinn sem henni var sýndur.

Sjá alla fréttina: Bryndís mjög ósátt við Curvy: „Konan sem vinnur þar sagði að ég væri löt og ætti að fara í ræktina“

Þetta er maðurinn sem frelsis­svipti og nauðgaði 14 ára stúlku – „Eitthvað sem ég gerði ekki“


Einar Þór Hreinsson er maðurinn sem er grunaður um að hafa frelsis­svipt 14 ára stúlku, haldið henni í bíl sínum í þrjár klukku­stundir, misþyrmt henni og nauðgað. Því heldur DV fram og segir Einar 35 ára gamlan mann sem hafi verið dæmdur fyrir kynferðis­brot í fyrra í Héraðs­dómi Suður­lands.

Líkt og Mannlíf greindi frá var Einar úrskurðaður í gæslu­varðhald en hann er grunaður um að hafa frelsis­svipt og nauðgað 14 ára stúlku á höfuð­borgar­svæðinu um síðustu helgi. Hann svipti stúlkuna frelsi í bíl sínum í þrjár klukku­stundir þar sem hann meðal annars nauðgaði henni. Gæslu­varðhald yfir honum var ekki framlengt.

Samkvæmt RÚV átti Einar samskipti við stúlkuna í gegnum samfélags­miðla en þar var hann afar ágengur um að fá að hitta hana. Hann hafi svo sótt hana í heimahús þar sem hún var gestur, síðasta laugardags­kvöld, og haldið henni fanginni í bíl sínum í þrjá klukku­tíma. Í bílnum hafi hann nauðgað barninu og beitt það öðru líkamlegu ofbeldi. Eftir brotið hafi Einar ekið henni áleiðis að heimili hennar og sett hana út þar skammt frá.

Þegar stúlkan hafði ekki skilað sér heim á réttum tíma höfðu foreldrar hennar samband við lögregluna og óskuðu eftir aðstoð við að leita að henni. Í samskiptum Einars við stúlkuna á samfélags­miðlum var honum tíðrætt um aldur hennar. Lögreglan á höfuð­borgar­svæðinu rannsakar nú málið.

Sjá alla fréttina: Þetta er maðurinn sem frelsis­svipti og nauðgaði 14 ára stúlku – „Eitthvað sem ég gerði ekki“

Sjötug kona beið fótbrotin eftir hjálp í nístings­kulda – Þó nokkrir bílar keyrðu fram hjá

Við bakka Lag­ar­fljóts

Sjötug kona féll í hálku nálægt heimili sínu austur á Héraði föstu­daginn 3. desember. Konan gat ekki risið aftur á fætur og veifaði því bílum sem keyrðu fram hjá í von um hjálp. Allt kom fyrir ekki en þó nokkrir bílar keyrðu fram hjá án þess að konan væri virt viðlits.

Mjög kalt var í veðri og fannst konunni sem heil eilífð hefði liðið á meðan hún beið eftir „miskunn­sömum Samverja“ en sennilega liðu um 20 mínútur þar til „Samverjinn“ lét sjá sig.

„Það var ungur strákur á mjög stórri vinnuvél sem stökk úr vélinni og hjálpaði mér inn,“ sagði konan í samtali við Mannlíf.

Konan fór ekki til læknis fyrr en eftir helgi og kom þá í ljós að hún var fótbrotin og brotið er nálægt ökklanum. Fékk hún gifs upp að hné en vegna þess að hún hefur ekki nægan kraft í hand­leggjunum getur hún ekki notast við hækjur. Náðist að útvega henni hjólastól sem hún notar enda má hún ekki stíga í fótinn.

„Mig langar endilega að koma kærum þökkum á framfæri til unga mannsins sem bjargaði mér úti í kuldanum, ég náði ekki nafninu hans,“ sagði konan að lokum við Mannlíf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Húsfélagi óheimilt að rukka skrópara

Ágreiningur um þrif, ræstiþjónustu og myndavélar í sameign fór fyrir kærunefnd
Fólk

Fimm ráð Kristjönu til að halda á sér hita í vetur

Innlent

Mál vegna gruns um kynferðis­brot í Garðaseli fellt niður

Innlent

Kveikti í íbúð með vél úr mótor­hjóli

Fólk

„En svo lenti ég í því að eignast mann“

Innlent

Eftir­lýstur maður óvænt gripinn

Lögreglan hafði hendur í hár hans

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innbrot og þjófnaður í heimahúsi í Árbæ

Sex dæmdir í fangelsi fyrir umferðar­lagabrot sama dag

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli