Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Ekki sektað fyrir utan Múlakaffi – Staðurinn í viðskiptum við lögregluna

Múlakaffi
Múla­kaffi

Gangandi veg­far­endur eru orðnir þreyttir á aðgerð­ar­leysi lög­regl­unnar varð­andi ólög­lega lagn­ingu bíla fyrir utan Múla­kaffi.

Íbúar Háa­leit­is­hverfis og aðrir gang­andi veg­far­endur í Ármúla eru orðnir dauð­þreyttir en und­an­farin ár hafa öku­menn lagt bílum sínum upp á gang­stétt við gatna­mót Ármúla og Hall­ar­múla án þess að hugsa sig tvisvar um. Gerir þetta fólki með barna­vagna og í hjóla­stólum ófært að ferð­ast um svæðið á eðli­legan máta. Þykir ástandið verst í hádeg­inu á virkum dögum þegar bíl­stjórar sækja þjón­ustu á veit­inga­stað­inn Múla­kaffi en stað­ur­inn er til húsa á horni Hall­ar­múla og Ármúla.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru bíl­arnir sem leggja þarna aldrei sektaðir þrátt fyrir að til­kynnt sé um þá til lög­reglu eða Reykja­vík­ur­borgar. Þá þyki fólki sér­stakt að svo sé raunin þar sem lög­reglu­menn eru fast­gestir á staðnum og ættu auð­veld­lega að koma auga á lög­brotin fyrir utan Múla­kaffi. Blaða­maður Mannlífs heim­sótti götu­hornið tvo mis­mun­andi daga til að kanna ástandið og sá báða daga marga bíla sem var greini­lega lagt ólög­lega. Þá varð blaða­maður vitni að þremur lög­reglu­mönnum að labba fram­hjá bíl­unum án þess sekta þá.

Mannlíf sendi fyr­ir­spurn á Árna Frið­leifs­son, aðal­var­stjóra í umferð­ar­deild, varð­andi málið og mynd af bíl­unum sem var lagt ólög­lega. Hann sag­ist eiga erfitt með að svara spurn­ingum Mannlífs þar sem hann hafi ekki sjálfur verið á vett­vangi.

Þá hafði Mannlíf heim­ildir fyrir því að Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu ætti í við­skipta­sam­bandi við Múla­kaffi. Því var send fyr­ir­spurn á fjár­mála­deild lög­regl­unnar til að spyrja út í það sam­band. Í svari var stað­fest að lög­reglu­emb­ættið ætti vissu­lega í við­skipta­sam­bandi við veit­inga­stað­inn en mál­tíðir lög­reglu­manna á Múla­kaffi eru nið­ur­greiddar og þurfa lög­reglu­menn aðeins að greiða um það bil 40 pró­sent af upp­settu verði. Þó skal tekið fram að lög­reglan á í slíku við­skipta­sam­bandi við fleiri veit­inga­staði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum