Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Ætlar með málið fyrir Mannréttindadómstólinn

Fékk heim­sókn frá for­seta­frúnni í fang­elsið.

|
|

Nara Walker, áströlsk kona sem var dæmd í 18 mán­aða fang­elsi hér­lendis fyrir að bíta hluta tung­unnar úr eig­in­manni sínum, ætlar að freista þess að fá málið tekið upp hjá Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Hún gæti átt yfir höfði sér brott­vísun eftir að afplánun lýkur. Þetta segir Jane Lumeah, móðir Nöru, en Fang­els­is­mála­stofnun hafn­aði beiðni Mannlífs um að ræða við Nöru og var vísað til hags­muna brota­þola, það er eig­in­manns hennar, við þá ákvörðun og þess hversu stór hluti refs­ing­ar­innar er skil­orðs­bund­inn.

Hún hefur sagt að fang­elsið sé í raun örugg­ara en hjóna­band hennar.

Mál Nöru hefur vakið mikla athygli og söfn­uð­ust vinir hennar saman fyrir utan fang­elsið á Hólms­heiði þegar hún hóf afplánun og mót­mæltu. Vinir Nöru í Ástralíu hófu und­ir­skrifta­söfnun til stuðn­ings henni sem um 43 þús­und manns hafa skrifað undir og sjálf hefur Jane skrifað bréf til for­seta Íslands, for­sæt­is­ráð­herra og dóms­mála­ráð­herra þar sem farið er fram á að hún verði náðuð.

Fjöl­skylda Nöru er sér­stak­lega gagn­rýnin á nið­ur­stöðu Lands­réttar, sem þyngdi dóm hér­aðs­dóms úr 12 mán­uðum í 18, og gagn­rýndi að ekki hafi verið tekið til­lit til þess að hún hafi löngum sætt ofbeldi af hálfu eig­in­manns síns. Hún hafi einnig sætt ofbeldi kvöldið afdrifa­ríka líkt og áverkar á Nöru og vitn­is­burður gefa sterk­lega til kynna. Sjálf er Jane sann­færð um að dóttir hennar hafi verið beitt órétt­læti. „Í öllum öðrum Schengen-löndum hefði frum­kvæð­is­mað­ur­inn að ofbeld­inu, sá sem hefur beitt heim­il­is­of­beldi árum saman, verið lát­inn bera sök á því sem átti sér stað þetta kvöld. Ég skil ekki hvers vegna ára­langt heim­il­is­of­beldi var ekki tekið til greina, að ekki hafi verið hlustað á dóttur mína. Ég er mjög leið yfir því.“

Ég skil ekki hvers vegna ára­langt heim­il­is­of­beldi var ekki tekið til greina, að ekki hafi verið hlustað á dóttur mína. Ég er mjög leið yfir því.
Nara Walker ætlar að freista þess að fá málið tekið upp hjá Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu.

Mannréttindadómstóllinn næsta skref

Jane segir að fang­els­is­vistin hafi vissu­lega tekið á Nöru en að sama skapi hafi hún fengið tæki­færi til að upp­götva sjálfa sig. „Hún hefur sagt að fang­elsið sé í raun örugg­ara en hjóna­band hennar. Hún hefur nýtt tím­ann vel, hún hefur skrifað, æft og málað. Hún fær að hringja í mig á Skype einu sinni í viku. Það er eins og veisla fyrir mér. Þegar við tölum saman sé ég að hún er að reyna að gera það besta úr stöð­unni en ég sé líka að þetta er henni erfitt, að vera aðskilin frá vinum sínum, ein­angruð, ófrjáls.“

Jane segir að til að bæta enn á óviss­una hafi Nöru borist bréf þar sem henni var til­kynnt að hafið sé ferli um mögu­lega brott­vísun úr landi eftir að afplánun lýkur. Slík nið­ur­staða gæti þýtt miklar hömlur á ferða­frelsi hennar í Evrópu, segir Jane sem býst þó við að Nara snúi aftur til Ástralíu eftir að hún hefur setið af sér dóm­inn. „Hún þarf tíma með fjöl­skyldu sinni til að jafna sig. Hún hefur lifað í sam­felldum ótta und­an­farna 17 mán­uði. Hún hefur þurft að glíma við aukin ein­kenni áfallastreiturösk­unar, ára­langt ofbeldi og nú síð­ast rétt­ar­höldin sem virð­ast fram­leng­ing á mis­notk­un­inni.“

Hún þarf tíma með fjöl­skyldu sinni til að jafna sig. Hún hefur lifað í sam­felldum ótta und­an­farna 17 mán­uði.

Jane býst þó ekki við að hún verði heima lengi. Eitt af fyrstu verkum Nöru verði að fara með málið skrefi lengra, til Strass­borgar. „Hún ætlar með málið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu. Hún vill gera það, ekki bara sín vegna heldur einnig fyrir þær konur sem hafa þurft að ganga í gegnum sömu reynslu. Hún vill að lögin veiti konum sem hafa þurft að sæta heim­il­is­of­beldi meiri vernd.“

Fékk heimsókn frá forsetafrúnni

Þrátt fyrir að dvöl Nöru á Íslandi hafi verið þyrnum stráð segir Jane hana tala vel um land og þjóð. Hér hafi hún eign­ast góða vini og fengið stuðn­ing úr mörgum ólíkum áttum. „Hún hefur fengið stuðn­ing frá mörgu dásam­legu fólki. Til dæmis þeim sem mættu fyrir utan fang­elsið og for­seta­frúnni, Elízu Reid, sem heim­sótti hana sem almennur borg­ari, þessir hlutir skipta hana svo miklu máli. Nara hafði hitt for­sta­frúna áður en hún var sak­felld og ég brast í grát þegar ég heyrði að hún hefði heim­sótt hana. Það er svo mikil við­ur­kenn­ing fyrir dóttur mína og end­ur­speglar það sem er svo gott við Ísland. Ég og Nara erum svo þakk­látar fyrir þann stuðn­ing sem okkur hefur verið sýndur, bæði á Íslandi og ann­ars staðar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas