Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, staðfesti í dag friðlýsingu vegna Hólavallagarðs við Suðurgötu en greint er frá þessu í tilkynningu frá yfirvöldum.
Friðlýsingin tekur til Hólavallagarðs í heild; veggjar umhverfis garðinn, heildarskipulags hans, klukknaports, minningarmarka og ásýndar garðsins.
„Það er viðeigandi að í dag, 19. júní, kvenréttindadaginn, skuli friðlýsa Hólavallagarð. Hér hvíla merkar konur sem eiga stóran sess í sögu kvenréttindabaráttunnar á Íslandi, Bríet Bjarnhéðinsdóttir, Ingibjörg H. Bjarnason, Katrín Thoroddsen og áfram mætti telja. Með friðlýsingunni er einstakt gildi Hólavallagarðs á ólíkum sviðum undirstrikað. Mér er því ljúft að staðfesta þessa friðlýsingu, en garðurinn er mörgum kær og með honum hefur varðveist svo margt í okkar sögu, hvort sem það tengist minningarmörkum, skipulagi, eða plöntutegundum sem margar hverjar finnast aðeins þar,” sagði Jóhann Páll um friðlýsinguna.
Friðlýsingin er gerð að tillögu Minjastofnunar Íslands og er í samræmi við ákvæði laga um menningarminjar. Garðurinn hefur notið hverfisverndar samkvæmt deiliskipulagi til að varðveita einstakt menningarsögulegt yfirbragð garðsins vegna minningarmarka og ræktunarsögu.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.
































Athugasemdir