Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

Kynferðislegir útlagar í það að vera fyrirmyndarborgarar: „Hinsegin paradísin Ísland“

Gunnlaugur Bragi Björnsson Formaður Hinsegin daga. Mynd/skjáskot. Hinsegin dagar. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Gunn­laugur Bragi Björns­son Formaður Hinsegin daga. Mynd/skjá­skot. Hinsegin dagar. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Íris Ellenberger, dósent við Mennta­vísindasvið Háskóla Íslands rannsakar orðræðu um hinsegin fólk á tíma­bilinu 1944–2010. Orðræða í fjöl­miðlum, gögnum hins opinbera og félaga­samtaka auk þess sem leitað er fanga í bókmenntum er skoðuð. Íris lýsir í samtali við Háskóla Íslands ástæðum rann­sóknarinnar.

„Rann­sóknin snýst um að rekja hvernig orðræðan um hinsegin fólk á Íslandi hefur þróast frá því að stilla upp hinsegin fólki, þá aðallega samkyn­hneigðum körlum, sem kynferðis­útlögum yfir í að orðæðan verði að mestu jákvæð um hinsegin fyrirmyndar­borgarann sem endur­speglar nýja og jákvæðari orðræðu almennt um hinsegin fólk.“

Íris segir að þetta sé fyrsta stóra rannsóknar­verkefnið um sögu hinsegin fólks á Íslandi og það muni því auka til muna þekkingu okkar Íslendinga á því rannsóknar­sviði. „Við erum í raun að skapa nýja þekkingu á bæði sögu hinsegin fólks og sögu þjóðernis­myndunar á Íslandi.“

Rann­sókna­hóp­inn skipa þau Þor­steinn Vil­hjálms­son, Hafdís Erla Haf­steins­dóttir Ásta Kristín Bene­dikts­dóttir, og Íris Ellen­berger. MYND/Kristinn Ingv­ars­son

Hinsegin paradísin Ísland

Kveikjan að rannsóknin segir Íris að hafi sprottið fram í samvinnu hennar, Hafdísar Erlu Hafsteinsdóttur og Ástu Kristínar Benediktsdóttur.  

„Í fyrri rann­sóknum okkar hafði komið mjög skýrt fram hversu hugmyndir um íslenska þjóð höfðu sterk áhrif á orðræðuna um hinsegin fólk. Skipti þá engu hvort um var að ræða umfjöllun um listir á sjötta áratug 20. aldar eða orðræðuna um hinsegin para­dísina Ísland á öðrum áratugi 21. aldar. Þjóðin og staða hinsegin fólks gagnvart henni var afar miðlæg. Þess vegna langaði okkur til að kanna þetta samband á kerfis­bundinn hátt, hvernig það hefur breyst og varpa ljósi á ástæður og forsendur þeirra breytinga sem áttu sér stað,“ segir Íris í samtali við Háskóla Íslands.

Rannsóknar­teymið hefur nú verið að störfum í á annað ár og enn er margt á huldu. Þó segir Íris að ýmsar línur séu farnar að skýrast, eins og hvað varðar hlutverk HIV-faraldursins í aðgangi samkynja para að hefð­bundum stofnunum hjóna­bands og kirkju.

„Þá erum við farin að átta okkur á því hvernig stjórnvalds­tækni nýfrjálshyggjunnar birtast í fjölmiðla­umfjöllun um samkyn­hneigða karla og þau áhrif sem nýfrjálshyggjan hefur á sameiginlegt minni af sögu hinsegin fólks á Íslandi.“

Rannsókna­hópinn skipa þau Þorsteinn Vilhjálmsson, Hafdís Erla Hafsteins­dóttir Ásta Kristín Benedikts­dóttir, og Íris Ellenberger. „Við erum í raun að skapa nýja þekkingu á bæði sögu hinsegin fólks og sögu þjóðernis­myndunar á Íslandi,“ segir Íris.

Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna eru ekki mjög hinsegin inngildandi

Mynd/skjá­skot. Hinsegin dagar

Spurð að tengslum rann­sóknarinnar við Heims­markmið Sameinuðu þjóðanna, segir Íris að:

„Heims­markmið Sameinuðu þjóðanna eru ekki mjög hinsegin inngildandi þar sem þar er einvörðungu fjallað um jafnrétti kynjanna, ekki jafnrétti á víðari grunni. En þetta verkefni hefur augljósa jafnréttis­skírskotun þar sem rann­sóknin eykur bæði þekkingu okkar á sögu hinsegin fólks, en það skiptir miklu máli fyrir jaðar­setta hópa að hafa meðvitund um sögu sína. Þar að auki dregur rann­sóknin fram þá staðreynd að hinsegin fólk er og var ekki jaðar­hópur sem á sína sögu í einangrun. Heldur þvert á móti skiptir hinsegin fólk og hinsegin kynverundir gríðar­legu máli fyrir sjálfs­skilning og sjálfs­vitund heillar þjóðar. Þess konar vitneskja stuðlar að sjálfsögðu að jafnrétti og réttlæti, sbr. Heims­markmiðið sem tekur á frið og réttlæti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim