Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Fólk

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“

Innlent

Perla Líf dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Heimur

Spákona varar við alheims­rafmagns­leysi í lok árs

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Innlent

Grun­semdir vöknuðu þegar sonurinn sagðist fá fría ferð til Taílands

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Heimur

Kynþokka­fyllsti maður heims afskrifar 200 milljónir dala í læknis­skuldum

Innlent

Kökuboð á Patreks­firði endaði fyrir dómi

Innlent

Sakar ríkis­stjórnina um að gera lítið úr vinnu láglauna­fólks og foreldra

„Allt mitt líf er búið að vera marinerað í alkóhólisma og fíknisjúkdómum“ – segir Páll Óskar

„Þegar fíkillinn segir ókei, now I’ve done it. Nú veit ég ekki hvort ég verð á lífi á morgun, ég er orðin hrædd eða hræddur og þarf hjálp,“ segir Páll Óskar Hjálm­týsson í þættinu Hvunndagshetjur á RÚV um eldri bróður sinn sem glímdi við fíkn og opnaði sjálfur áfanga­heimili.

„Þetta augnablik þegar fíkill réttir út hendina og biður um hjálp er örugglega eitt mikil­vægasta og magnaðasta móment í lífi hvers fíkils.“

Eldri bróðir hans, Arnar Gunnar Hjálm­týsson, glímdi við fíkn og opnaði sjálfur áfanga­heimili til að aðstoða aðra fíkla í að ná bata.

Páll Óskar sem er einn dáðasti söngvari Íslands hefur glatt landann með sinni ómfögru rödd í gegnum tíðina. Hann er þó ekki einungis þekktur fyrir tónlistina heldur hefur hann staðið mann­réttinda­vaktina síðustu áratugi. Hann hefur farið fram í baráttu samkyn­hneigðra fyrir bættum hag og rétti og deilt átaklegri sögu sinni frá því þegar hann var lagður í einelti.

Þurfti að þola einelti í báðum skólunum

Páll Óskar sagði frá sögu sinni fyrir nokkrum árum, en þar segir að hann hafi setið einn í sjö ár í grunn­skóla og þurfti að þola einelti í báðum þeim skól­um sem hann gekk í, Vest­ur­bæj­ar­skóla og Haga­skóla. Það var því ekki að ástæðu­lausu að hann valdi að fara í MH í stað MR líkt og flest­ir hinir í bekkn­um. Hann var bú­inn að fá nóg.

Hann segir að þetta hafi allt byrjað að því að hafi verið lé­leg­ur í fót­bolta í leik­fim­i­tíma. Það þýddi það að dreng­ur sem hafði verið hans besti vin­ur inn­an skól­ans sem utan, flutti sig frá hon­um og myndaði fjög­urra stráka klíku sem stjórnaði lífi Páls Óskars og fleiri bekkj­ar­fé­laga næstu sjö árin.

Því Páll Óskar hef­ur fundið að hann var ekki einn þrátt fyr­ir að hafa liðið þannig á meðan einelt­inu stóð. Hann seg­ir að þegar bekk­ur­inn hitt­ist fyr­ir nokkru síðan hafi komið í ljós að fjöl­marg­ir höfðu svipaða sögu að segja. „Ég var svo hepp­inn að vera hvorki dig­ur né rauð­hærður,“ seg­ir Páll Óskar. Hann þakk­ar sín­um sæla að hafa al­ist upp fyr­ir tíma snjall­tækj­anna og tóku fleiri í sama streng á fundi á veg­um sam­starfs­hóps­ins Náum átt­um, sem er for­varna- og fræðslu­hóp­ur um vel­ferð barna og ung­linga, hélt árið 2015.

Ég er fæddur og uppalinn í alkóhólisma

Í þættinum sem var sýndur í gær segist Páll Óskar þekkja alkóhólisma í fjöl­skyldunni og nærumhverfi sínum mjög vel.

„Ég er fæddur og uppalinn í alkóhólisma. Allt mitt líf er búið að vera marinerað í alkóhólisma og fíkni­sjúkdómum,“ segir hann.

„Næstum því allt það fólk sem ég þekki og umgengst er að díla við einhvers konar fíknir að einhverju leyti, þannig að mér finnst venjulegt fólk sem þarf ekki að díla við nein verkefni í lífinu alveg hund­leiðinlegt, ekkert spennó.“

Leita sér ekki hjálpar fyrr en þeir eru komnir á botninn

Páll segir að sjúklingar byrji oftast ekki að leita sér hjálpar fyrr en þeir séu komnir á botninn og það sé lítið fyrir aðstand­endur að gera annað en að bíða eftir þeim degi þegar botninum sé náð. „Þegar fíkillinn segir ókei, now I’ve done it. Nú veit ég ekki hvort ég verð á lífi á morgun, ég er orðin hrædd eða hræddur og þarf hjálp,“ segir Páll Óskar. „Þetta augnablik þegar fíkill réttir út hendina og biður um hjálp er örugglega eitt mikil­vægasta og magnaðasta móment í lífi hvers fíkils.“

Var sagt að ég þyrfti að breyta um lífsstíl

Arnar man eftir því þegar hann fann sinn botn. Um árabil vandi hann sig á það að fara alltaf á barinn eftir vinnu að hitta félagana og horfa á fótboltann þegar hann var í gangi. Árið 2007 fór lífernið að taka sinn toll. „Ég fór að finna fyrir brjóst­sviða og þá voru komnar þrengingar í ósæðarnar. Svo fór ég í hjarta­aðgerð og læknarnir sögðu á Lands­spítalanum að ég þyrfti að breyta um lífsstíl.“

Arnar Gunnar Hjálm­týsson opnaði áfanga­heimili eftir að hafa kynnst því í gegnum son sinn hversu mikill skortur er á úrræðum fyrir fólk sem langar að komast út í lífið á ný eftir að hafa villst út af beinu brautinni. Páll Óskar Hjálm­týsson, bróðir Arnars, segir að bróðir sinn hafi lyft grettis­taki í þessum mála­flokki.

Síðan hefur hann gert allt sem í hans valdi stendur til að aðstoða fíkla. „Það er alveg frábært að sjá ungt fólk sem er bara byrjað að vinna og farið út í samfélagið. Við reynum alltaf að kveikja vonina hjá fólki um að það sé betra líf í vændum.“

Heimildir:

Júlía Margrét Einars­dóttir, Viktoría Hermanns­dóttir. „Ég er fæddur og uppalinn í alkóhólisma.“ Hér er hægt að horfa á Hvunndagshetjur í heild sinni í spilara RÚV. Fram­leiðandi er Skot productions.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Heimur

Bæjar­kötturinn skrópaði á athöfn

Bronsstytta af kettinum Susie var afhjúpuð í Dorchester á sunnudag. Myndhöggvarinn Ama Menec sótti innblástur í rómverska sögu bæjarins.
Pólitík

Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

Pólitík

Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

Heimur

Mette hafnar tengslum við hægri­öfgamenn eftir ummæli um „útskiptin miklu“

Innlent

Í sex af hverjum tíu tilvikum var morðinginn úr fjöl­skyldunni

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

„Afleiðing þeirrar stefnu sem er boðuð verður að öðru óbreyttu minni fjárfesting, hægari vöxtur, færri spennandi störf og lakari lífskjarasókn.“

Krefjast ákæru fyrir manndráp af gáleysi eftir bana­slysið í Grindavík

Foreldri fór yfir strikið á körfubolta­móti tíu ára drengja

Lögregla leitar ökumanns eftir að ekið var á stúlku á Akureyri

Grunsamlegar manna­ferðir án manna

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim