Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Björgólfur á í vök að verjast „Við ætlum ekki að fara í opinbera rökræðu við Ríkisútvarpið“

Kveikur birti í gær frétt með nýlegum upp­lýs­ingum úr nýlegri kyrr­setn­ing­ar­kröfu rík­is­sak­sókn­ara í Namibíu rann­sakar nú mál Samherja í Namibíu. Þar voru birt fremur tor­tryggi­leg tölvu­póst­sam­skipti milli Jóns Óttars Ólafs­sonar, ráð­gjafa Samherja og James Hatuikulip einn af svoköll­uðum hákörlum í Sam­herj­a­mál­inu.

Þar ræða þeir mögu­lega slóð pen­inga sem bár­ust James af banka­reikn­ingi félaga Samherja úr DNB bank­anum í Noregi.

James sendi á Jón:

„Ok, ég skil…Er ein­hver hætta á því að upp­hæð­irnar sem greiddar voru „fyrir utan“ upp­götv­ist? Við viljum ekki búa til neina papp­íra sem fjalla um fisk­flutn­inga og svo finni þeir pen­inga­slóð­ina.”

Jón svar­aði stuttu síðar:

„Ég held að þeir muni ekki hafa uppi á þeim greiðslum sem greiddar voru úr landi. Við höfum lokað þeim reikn­ingum. Auk þess hafa þeir ekki burði til þess að fara á eftir flóknum aflands­við­skiptum.“

Jón Óttar hefur ekki svarað beiðni Kveiks um við­brögð við tölvu­póst­sam­skipt­unum. Skjáskot úr frétt Kveiks /ruv.is

Í kyrr­setn­ing­ar­kröf­unni kemur jafn­framt fram að á grund­velli laga um varnir á skipu­lagðri glæp­a­starf­semi eigi að kyrr­setja eigur sex­menn­ing­anna sem hafa setið í gæslu­varð­haldi í rúmt ár auk eigna tíu félaga þeirra sem eiga að hafa komið að mál­inu.

„Meðal þess sem Namibísk yfir­völd krefj­ast kyrr­setn­ingar á eru tvö skip Samherja, sem sögð eru einu eignir fimm þar lendra dótt­ur­fyr­ir­tækja fyr­ir­tæk­is­ins,“ segir í frétt Kveiks. Annað skipið, Heinaste, hafi verið selt og Namibísk yfir­völd hafi kyrr­sett sölu­and­virðið en hinu skip­inu sem bar heitið Saga hafi verið siglt í snar­hasti til Kanarí­eyja í byrjun árs, nafni þess breytt og heima­höfn þess færð frá Namibíu til Belís.

Rök­stuðn­ingur Namibískra stjórn­valda á kyrr­setn­ing­unni ku vera að fimm Íslend­ingar undir for­ystu Þor­steins Más, for­stjóra Samherja hafi myndað sam­tök með sex­menn­ing­unum sem nú sitja í gæslu­varð­haldi í Namibíu og saman framið fjölda lög­brota þar í landi. Þeir búi yfir sönn­unum um að hægt sé að sækja hóp­inn til saka fyrir spill­ingu, fjár­svik, skatt­svik mútur og pen­inga­þvætti. Í grein­ar­gerð­inni kemur jafn­framt fram að alþjóða­lög­regl­unni Interpol hafi verið falið að finna tvo Íslend­inga sem tengj­ast mál­inu svo rétta megi yfir þeim í Namibíu.

Tölvupóstsamskiptin í snjallsíma James

Rann­sóknin í Namibíu er í tveimur hlutum og snýr krafan ein­göngu að milli­ríkja­samn­ingi milli Namibíu og Angóla sem rík­is­sak­sókn­ari telur ein­ungis hafa verið blekk­ingu til að færa Samherja 50 þús­und tonna kvóta. Langstærstu hluti af greiðslum Samherja fyrir kvót­ann í Angóla end­aði svo Dúbaí í félagi eins sak­born­ing­anna James Hatuikulipi, sem átti í áður nefndum tölvu­póst­sam­skiptum við Jón Óttar. Hann á að hafa verið lyk­il­maður í Angólaflétt­unni svoköll­uðu en nafn hans er hvergi sjá­an­legt í samn­inga­gerð Samherja um greiðslur á afnot kvóta þar í landi.

Stjórn­völd lögðu hald á Samsung S9 far­síma James þar sem í ljós komu tölvu­póst­sam­skiptin milli James sem kom undir dul­nefn­inu „Petrus Aashonge“ og Jóns Óttars Ólafs­sonar, segir í frétt Kveiks.

Björgólfur neitar að ræða samskiptin

Í svari frá Björgólfi Jóhanns­syni, ann­ars for­stjóra Samherja sem barst Kveik þver­neitar hann að tjá sig um þessi til­teknu tölvu­póst­sam­skipti. Hann segir jafn­framt vera í meg­in­at­riðum sömu ásak­anir og var greint frá í nóv­em­ber í fyrra. Þá segir hann Sam­herj­a­menn hafa alfarið neitar að hafa greitt mútur eða aðrar óeðli­legar greiðslur.

„Í tengslum við rann­sókn á starf­sem­inni í Namibíu, sem ráð­ist var í með full­tingi norsku lög­manns­stof­unnar Wikborg Rein, voru þús­undir tölvu­pósta yfir­farnir. „Við ætlum ekki að fara í opin­bera rök­ræðu við Rík­is­út­varpið um einn þess­ara tölvu­pósta,“ skrifar Björgólfur í svari sínu.

Jón Óttar hefur ekki svarað beiðni um við­brögð við upp­lýs­ing­unum sem Kveikur hefur undir höndum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas