Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Flugdólgur öskraði og veipaði um borð í vél Play: „HALTU KJAFTI“

Flugdólgur var um borð vélar Play frá Barcelona til Íslands í nótt. Myndin tengist fréttinni ekki beint.
Flug­dólgur var um borð vélar Play frá Barcelona til Íslands í nótt. Myndin teng­ist frétt­inni ekki beint.

Mannlífi barst nafn­laus ábend­ing um flug­dólg um borð vélar Play. Vélin sem þétt­setin var á leið frá Barcelona til Íslands og lenti í nótt. Ábending barst frá far­þega sem var um borð í sömu vél. Hann seg­ist hafa sofnað skömmu eftir flug­tak og eftir um það bil klukku­stund­ar­blund að hann hafi hrokkið upp úr svefn­inum við öskur frá íslenskri konu:

„HALTU KJAFTI!!!“

„HALTU KJAFTI!!!“

Við­mæl­andi Mannlífs átti sæti fremur aft­ar­lega í vél­inni nokkrum sæta­röðum frá flug­dólg­inum. Í for­undran leit hann við og sá að aðrir far­þegar vél­ar­innar litu við í for­undran.

Flug­dólg­ur­inn, kona á fimm­tugs­aldri, var á ferða­lagi með mann­inum sínum og beindust orðin að honum. Fúkyrðin og öskrin héldu áfram að dynja yfir mann­inum og virt­ist ekk­ert lát á:

„Haltu kjafti og ÞEGIÐU!“

Flug­freyjur Play þurftu að hafa síend­ur­tekin afskipti af hjón­unum og reyna að róa kon­una. Í eitt skiptið var við­mæld­andi Mannlífs vitni að því að flug­freyjan hafi spurt flug­dólg­inn hvort hún hafi verið að veipa í vél­inni. Ekki heyrð­ist hverju hún svar­aði en álykta mátti af orðum flug­freyj­unar að svo hafi verið raunin.

Öskrin héldu áfram frá kon­unni við mann­inn á sama hátt­inn:

„ÞEGIÐU, ÉG GET EKKI BORIÐ VIRÐINGU FYRIR ÞÉR!“

Engin orða­skil heyrð­ust frá manni flug­dólgs­ins en í eitt skiptið mátti flug­freyja um borð hóta að par­inu yrði stíað í sundur ef ekki feng­ist friður í vél­inni. Fékkst þá loks­ins friður en öskrin og lætin frá kon­unni vörðu við­stöðu­laust í tæpan hálfan tíma.

Vélin lenti á Kefla­vík­ur­flug­velli í nótt útskýrir við­mæl­andi:

„Vélin var bara nýlent á braut­inni að þá stendur hún bara upp. Þó svo að vélin sé enn þá að fara frekar hratt. Hún bara stóð upp og mað­ur­inn reyndi að toga hana aftur niður í sætið sitt.“

Við­mæl­andi útskýrir hvernig vélin hafi siglt að flug­stöð­inni og tengiran­inn tengdur við flug­vél­ina og belt­is­ljósin slokkn­uðu og allt kraða­kið og kösin sem fylgir þegar allir fara að standa upp og bíða eftir að dyr vél­ar­innar séu opn­aðar. Þá hafi konan misst sig enn eina ferð­ina og farið að öskra:

„AF HVERJU OPNAR ENGINN HURÐINA???“

„LANGAR YKKUR AÐ VERA HÉRNA INNI???“

Aðrir far­þegar göptu undr­andi á kon­una.

Eins og áður hefur komið fram átti konan sæti aft­ar­lega í vél­inni og þrátt fyrir að dyrnar hefðu verið opn­aðar og vélin orðin hálf­tóm tók konan upp á því að halda öskr­inu áfram:

„AF HVERJU OPNAR ENGINN HURÐINA???“

Þegar annar far­þegi hafði góð­lát­lega bent henni á að búið væri að opna tók hún að þræta fyrir og neita að svo væri:

„NEI, ÞAÐ ER EKKI BÚIÐ AÐ OPNA!“

Konan var stöðvuð við útgang vél­ar­innar og rætt við hana en hún var ekki hand­tekin á staðnum. Við­mæl­andi Mannlífs vill koma því á fram­færi að flug­freyjur og flug­liðar Play hafi staðið sig með stakri prýði og gert allt sitt til að stilla til friðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas