Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Innlent

Áttundi bekkur í ensku­tíma varð vitni að kyn­lífi starfs­manna

Sport

Hver er Theodór Elmar?

Pólitík

Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu

Innlent

Starfs­menn sagðir hafa stundað kyn­líf í skól­anum

Fólk

Stefán og Egill furða sig á kossa­hneyksl­inu í Haga­skóla

Innlent

Skóla­stjóri áréttar alvar­leika máls­ins eftir að myndir bár­ust

Innlent

Lög­reglan á Vest­ur­landi lýsir eftir 14 ára dreng

Heimur

Khloe Kar­dashian er demikyn­hneigð

Pólitík

Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

Fólk

„Í dag eru tíu ár síðan ég varð fyrir nauðgun“

Margrét segist hafa haldið að pabbi hennar hefði dottið

Sögð hafa beitt for­eldra sína ofbeldi svo árum skiptir

Margrét Löf
Margrét Löf Magrét kveðst alsak­laus í mál­inu Mynd: Víkingur

Margrét Halla Hans­dóttir Löf, sem ákærð er fyrir að hafa banað föður sínum og gert til­raun til að bana móður sinni á heim­ili fjöl­skyld­unnar í Súlunesi í Garðabæ, neitar sök. Í skýrslu­tökum hjá lög­reglu sagð­ist hún hafa verið í svefn­her­bergi sínu þegar hún heyrði dynk. Þegar hún kom fram sá hún föður sinn liggja á gólf­inu og taldi hann hafa dottið. Hún kvaðst ekki vita hvernig móðir hennar hefði fengið áverka, en giskaði á að þau gætu stafað af fyrri föllum eða slysum. Mbl.is segir frá mál­inu.

Samkvæmt úrskurði Hér­aðs­dóms Reykja­ness, þar sem lög­regla fór fram á áfram­hald­andi gæslu­varð­hald, barst til­kynn­ing um með­vit­und­ar­lausan mann á heim­il­inu. Þegar lög­regla kom á vett­vang lá mað­ur­inn í and­dyri húss­ins, með­vit­und­ar­laus, á meðan eig­in­kona hans reyndi að aðstoða hann. Margrét stóð skammt frá. Reynt var end­ur­lífgun, en mað­ur­inn lést síðar sama dag. Bæði hjónin voru með mikla áverka og blóð­slettur fund­ust víða um húsið, sem benti til átaka.

Lögregla telur að áverk­arnir á mann­inum hafi að mestu verið af völdum ann­ars ein­stak­lings og að þeir hafi orðið til á mis­mun­andi tímum og undir ólíkum kring­um­stæðum, meðal ann­ars eftir högg, spark eða árekstra við harða fleti. Dán­ar­or­sök er ekki full­kom­lega ljós, en ekk­ert bendir til þess að bráð veik­indi hafi legið að baki.

Löng saga ofbeldis

Vitni hafa lýst því að Margrét hafi um langt skeið sýnt for­eldrum sínum ofbeld­is­hegðun, og gögn máls­ins sýna að þau hafi leitað lækn­is­að­stoðar vegna heim­il­is­of­beldis. Margrét sjálf kvaðst í yfir­heyrslu hafa alist upp við ofbeld­is­á­stand á heim­il­inu.

Lögregla telur að móðir Mar­grétar, sem er lyk­il­vitni í mál­inu, hafi búið við langvar­andi ógnar­á­stand og að Margrét hafi haft mikil áhrif á líf hennar. Því sé hætta á að hún reyni að hafa áhrif á vitni og rann­sókn máls­ins ef hún fengi frelsi.

Hér­aðs­dómur Reykja­ness úrskurð­aði Margréti áfram í gæslu­varð­hald og Lands­réttur stað­festi það. Hún hefur setið í haldi frá 13. apríl og gæslu­varð­haldið var síð­ast fram­lengt í lok júlí. Málið verður tekið fyrir í hér­aðs­dómi í haust. Sonur hins látna, hálf­bróðir Mar­grétar, krefst sex millj­óna króna í miska­bætur og að hún verði gerð arf­laus. Móðirin krefst ekki bóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Innlent

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Fjársterkir tölvuþrjótar taldir hafa ráðist á 1984
Innlent

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Innlent

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas

Fólk

Sáttasex leysir ekki ágrein­ing­inn

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Gæti skap stórhættu fyrir börn

Bens­ín­verð hækkar hér á landi á meðan heims­mark­aðs­verð lækkar

Strauk henni um lærið þótt hún bæði hann að hætta

Styrkja Bjarka­hlíð um tæpar 40 millj­ónir

Hljóp á brott eftir inn­brot í bíl í aust­ur­bænum