Inga Sæland
„Hrein og klár mannvonska og borgarstjórn til ævarandi skammar“
Inga Sæland
Innlent

Gréta María fer í mál við Samkaup

Innlent

Barna­nauð­gari gjald­þrota

Innlent

Aðskota­efni í kexi

Heimur

Orðrómur um staf­rænan heimsendi 17. nóv­em­ber vekur ótta

Peningar

Prett­yboitjokkó stofnar fyr­ir­tæki með fyrrum lands­liðs­manni

Peningar

Elís seg­ist hafa tapað 100 millj­ónum í við­skiptum við fjár­festa

Pólitík

Segir flokks­menn Guðrúnar und­ir­búa mót­fram­boð gegn henni

Innlent

Kven­fanga synjað um náðun þrátt fyrir alvar­leg veik­indi

Innlent

Fékk aldr­aðan mann til að selja rað­hús skömmu fyrir and­lát

Innlent

„Börn eiga ekki að þurfa að bera afleið­ing­arnar“

Móðir segir Bakarameistarann hafa bannað þriggja ára barni að nota klósettið: „Þetta er fáránlegt“

Bakarameistarinn
Bak­ara­meist­ar­inn

Móðir þriggja ára barns hefur tekið ákvörðun að versla ekki framar við Bak­ara­meist­ar­ann eftir hvernig fyr­ir­tækið kom fram við hana og þriggja ára gam­alt barn hennar í vik­unni.

Móðirin segir í sam­tali við Mannlíf að hún hafi verið á ferð með barni sínu í vik­unni og verslað við Bak­ara­meist­ar­ann á Höfða stuttu fyrir lokun bak­arís­ins. Þegar hún og barnið klár­uðu bakk­elsið hafi þau farið verslun Krón­unnar sem er við hlið­ina á Bak­ara­meist­ar­anum. Þegar þau voru búin að versla þar þurfti barn kon­unar nauð­syn­lega að kom­ast á sal­erni og hafi þau leitað til starfs­manna Bak­ara­meist­ar­ans, sem voru að ennþá að ganga frá eftir lokun, til að fá að nota sal­erni sem er stað­sett á efri hæð í versl­un­ar­kjarn­anum. Samkvæmt upp­lýs­ingum Mannlífs er ekki hægt að nota almenn­ings­kló­sett sem eru í versl­un­ar­kjarn­anum nema að fá lykla frá starfs­fólki Bak­ara­meist­ar­ans. Slíkt sé nýleg breyt­ing en fyrr á árinu hafi gestir ekki þurft á lyklum að halda.

Móðirin segir að starfs­fólkið hafi neitað henni um að fá lykla til að barnið kæm­ist á sal­erni og hafi barnið neyðst til að gera þarfir sínar úti á bíla­stæði í skjóli bíla.

Saka mömmuna um lygar

Mannlíf hafði sam­band við skrif­stofu Bak­ara­meist­ar­ans til að athuga hvort þetta væru eðli­leg vinnu­brögð en eftir að hafa talað við starfs­fólk á þess­ari til­teknu vakt sagði skrif­stofu­starfs­mað­ur­inn að móð­irin væri að segja ósatt. Móðirin hafi hækkað rödd sína og fengið lykla svo barnið gæti notað sal­erni í hús­inu. Þegar bent var á að fleira fólk hafi verið vitni að þessu sagði skrif­stofu­starfs­mað­ur­inn að þetta væri ein­fald­lega orð gegn orði.

Mannlíf bar þessi svör undir móð­ur­ina til að fá við­brögð hennar. „Þetta er fárán­legt. Af hverju ætti ég að ljúga upp á Bak­ara­meist­ar­ann? Ég græði nákvæm­lega ekk­ert á því. Það getur verið að starfs­fólkið sé að rugl­ast á mér og ein­hverri annarri konu. Ég vona að starfs­fólkið sé ekki að ljúga að yfir­mönnum sínum til að sleppa við skammir. Per­sónu­lega finnst mér nokkuð sér­stakt að Bak­ara­meist­ar­inn sé með lykla­völd að einu kló­sett­unum í hús­inu þegar það eru nokkur fyr­ir­tæki sem eru opin lengur en þetta bless­aða bak­arí.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Fólk

„Mér líður gjör­sam­lega djöf­ul­lega“

Hildur Lilliendahl Viggósdóttir segir frá sorg og kvíða eftir að henni var sagt upp hjá Reykjavíkurborg eftir átján ára starf.
Heimur

Telja sig hafa náð for­sögu­legri flug­eðlu á mynd­band í Mexíkó

Innlent

Valur telur sigur Úkraínu sífellt lík­legri

Innlent

Sautján ára piltur sak­felldur fyrir kyn­ferð­is­brot gegn tólf ára stúlku

Heimur

Loch Ness-skrímslið sést oftar í ár en í fyrra

Innlent

Innlent

Katrín varar við alvar­legri ógn gervi­greindar

„En hvað með almenna borgara - finnst þeim skipta máli hver eða hvað er á bak við verkin?“
Innlent

Leik­fanga­byssu­menn­irnir verða ákærðir

Innlent

Álft skotin á Víði­staða­túni

Innlent

Ferðin til Írlands tók óvænta stefnu á Kefla­vík­ur­flug­velli

Innlent

Grind­verk í Garðabæ varð fyrir barð­inu á óboðnum gesti

Innlent

Átti að mæta á lög­reglu­stöð áður en dag­ur­inn var lið­inn