Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Heimur

Kærastan fann dag­bæk­urnar og sleit sam­band­inu við David Walliams

Fólk

Björgvin Franz fagnar eins árs sam­bands­af­mæli með kærust­unni

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Prestur rifjar upp óþægi­lega reynslu úr æsku

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Innlent

Grun­semdir vökn­uðu þegar son­ur­inn sagð­ist fá fría ferð til Taílands

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Heimur

Raun­veru­leika­stjarnan Sheila Mangubat látin 35 ára að aldri

Fólk

„Ég er orð­inn leiður á að vera veikur“

Innlent

„Sterkar vís­bend­ingar eru núna um að hryðju­verk­a­ríkið Ísrael hafi gert tölvu­árás á íslenska inn­viði“

Gauti sakar Konráð um að afvegaleiða þjóðina

Gauti svarar fullum hálsi: Sakar Konráð um dylgjur og fag­leg óheil­indi

Konráð S. Guðjónsson og Gauti B. Eggertsson
Konráð S. Guð­jóns­son og Gauti B. Egg­erts­son Gauti klórar sér í koll­inum yfir ásök­unum Konráðs: „Ekkert dæmi um ranga tölu“ Mynd: Samsett mynd

Miklar rit­deilur standa nú yfir á milli hag­fræð­ing­anna Gauta B. Egg­erts­sonar, pró­fess­ors við Brown-háskóla, og Konráðs S. Guð­jóns­sonar hag­fræð­ings og sjálf­stæðs ráð­gjafa. Tilefnið er nýleg efna­hags­grein­ing sam­tak­anna Áfram Ísland í aðdrag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unnar um áfram­hald­andi ESB-við­ræður sem Konráð vann fyrir RSE og Áfram Ísland.

Gauti rit­aði grein þar sem hann gagn­rýndi þessa skýrslu Konráðs harð­lega.

Konráð svar­aði með grein­inni „Afvega­leið­ingum og rang­færslum Gauta svarað“ þar sem hann sak­aði Gauta um fag­leg óheil­indi og afvega­leið­ingu.

Í nýrri skoð­ana­grein á Vísi hafnar Gauti ásök­unum Konráðs um rang­færslur og segir gagn­rýni sína á skýrsl­una standa óhögguð. Segir hann orð­rétt að gagn­rýni Konráðs upp­fylli ekki þá lág­marks­kröfu „að bent sé á eina ranga tölu eða einn rangan útreikn­ing í því sem ég hef skrifað. Ég fann ekki eitt ein­asta dæmi um slíkt.“

Gagnrýnir mælingar á kaupmætti

Gauti skiptir vörnum sínum upp í nokkra liði en benti sér­stak­lega á að sam­an­burður sam­tak­anna á kaup­mætti launa á Íslandi og innan ESB gefi skakka mynd af raun­veru­leik­anum. Telur hann fram­setn­ing­una mis­vísandi af þremur sjálf­stæðum ástæðum.

Húsnæðiskostnaður skilinn eftir

Samræmd vísi­tala neyslu­verðs (HICP), sem sam­tökin nota, tekur ekki til­lit til verð­þró­unar á reikn­aðri húsa­leigu vegna eigin hús­næðis, en það vegur um fjórð­ung af einka­neyslu Íslend­inga. Í skýrsl­unni er miðað við laun á vinnu­stund fremur en árs­laun á hvern laun­þega, sem Gauti telur galla­gæft. Sam­an­burð­ur­inn hefst árið 2013 þegar Ísland var enn að vinna upp tap sitt eftir efna­hags­hrunið 2008. Við­spyrnu­vöxt­ur­inn sýnir því óeðli­lega háa pró­sentu­hækkun (68%) miðað við stöðugri hag­kerfi.

Hagvöxtur segir ekki alla söguna

Gauti ítrekar jafn­framt fyrri gagn­rýni sína á að Áfram Ísland noti heild­ar­hag­vöxt til að leggja mat á lífs­kjör. Ef hag­vöxtur sé leið­réttur miðað við fólks­fjölda (hag­vöxtur á mann) snú­ist dæmið við. Ísland reyn­ist þá í 23. sæti af 28 ríkjum á tíma­bil­inu.

Að lokum hvetur Gauti kjós­endur til að láta stað­reyndir en ekki stór orð ráða för þegar gengið verður að kjör­borð­inu þann 29. ágúst næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Ný UFO-skjöl afhjúpa áform um neð­an­jarð­ar­hvelf­ingu fyrir „fram­andi efni“

Gögnin eru hluti af 43 skjölum sem voru birt nýlega. Þar er einnig fjallað um óútskýrðar ratsjármælingar frá árinu 2023.
Menning

Tvenns konar bað í boði og aðeins annað þeirra er blautt

Pólitík

Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Krist­ínar

Pólitík

Kristrún segir halla­laus fjár­lög sleggj­una sem þurfi til að ná vöxtum niður

Heimur

Sam­sær­is­kenn­ingar spretta upp eftir und­ar­legt augna­blik á blaða­manna­fundi

Innlent

Sendi sak­sókn­ara falsað lækn­is­vott­orð og hlaut árs­fang­elsi

Sakaferill mannsins nær aftur til ársins 2010

Sakar rík­is­stjórn­ina um að gera lítið úr vinnu lág­launa­fólks og for­eldra

Innkalla vin­sælt jóla­smáköku­deig vegna aðskota­hluts

Kökuboð á Pat­reks­firði end­aði fyrir dómi

Hrafn­hljóð flýgur inn á manna­nafna­skrá

Sverrir spyr hvað heilli karla við ofbeldið í Grand Theft Auto