Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Handtekinn þremur dögum eftir andlát sambýliskonu: Bæjarbúar slegnir

Sandgerði.
Sand­gerði.

52 ára gömul kona fannst látin á heim­ili sínu í Sand­gerði 28. mars. Samkvæmt heim­ildum Mannlífs kvikn­aði grunur um að and­lát hennar hefði borið að með sak­næmum hætti við krufn­ingu og var sam­býl­is­maður kon­unnar hand­tek­inn þremur dögum seinna á heim­ili þeirra, 31. mars, og úrskurð­aður í gæslu­varð­hald til 8. apríl.

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum sendi frá sér yfir­lýs­ingu um málið undir hádegi í dag. Í henni kemur fram að ætt­ingi kon­unnar hafi til­kynnt um and­lát hennar til lög­regl­unnar á Suð­ur­nesjum laug­ar­dags­kvöldið 28. mars.

„Rann­sókn­ar­lög­reglu­maður fór þegar ásamt lækni og presti á stað­inn. Ekkert á vett­vangi benti til þess að eitt­hvað sak­næmt hefði átt sér stað. Sama máli gegndi um lík­skoðun á sjúkra­stofnun,“ segir í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni.

Samkvæmt heim­ildum Mannlífs eru íbúar í bæj­ar­fé­lag­inu slegnir yfir atvik­inu, en parið var reglu­fólk, rólegt og til fyr­ir­myndar að sögn heim­ild­ar­manns Mannlífs.

Lögregla segir öllum verk­lags­reglum fylgt

Þann 31. mars, eða þremur dögum síðar, barst lög­reglu nið­ur­staða rétt­ar­meina­fræð­ings þess efnis að sterkur grunur léki á að and­látið hefði borið að með sak­næmum hætti.

„Þá þegar var karl­maður á sex­tugs­aldri hand­tek­inn vegna rann­sóknar á mál­inu. Hann var úrskurð­aður í gæslu­varð­hald frá 1. apríl til 8. apríl næst­kom­andi og stað­festi Lands­réttur þann úrskurð 3. apríl síð­ast­lið­inn. Það skal und­ir­strikað að lög­regla fylgdi gild­andi verk­lags­reglum við aðkomu að mál­inu frá fyrstu stundu. Rannsókn er í fullum gangi en ekki er unnt að veita frek­ari upp­lýs­ingar að svo komnu máli.“

Uppfært kl. 13:30:

Lög­reglan á Suð­ur­nesjum hefur sent frá sér leið­rétt­ingu:

Misfarið var með dag­setn­ingu í til­kynn­ingu sem lög­reglan á Suð­ur­nesjum sendi frá sér fyrr í dag varð­andi rann­sókn á manns­láti í heima­húsi.

Hið rétta er að rétt­ar­meina­fræð­ingur upp­lýsti um mögu­lega sak­næmt and­lát hinn 1. apríl s.l. Þá strax var maður, sem nú situr í gæzluvarðhaldi, hand­tek­inn.

Beðist er vel­virð­ingar á mis­tök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas