Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Lög­reglan lýsir eftir Nikulási Snorra­syni

Heimur

„Guðfaðir gervi­greindar“ varar við yfir­vof­andi stór­slysi

Heimur

Faðir skaut eig­in­konu sína og þrjú ung börn til bana

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Heimur

Kærasti Heidi Gardner lát­inn, 43 ára að aldri

Innlent

Ók á 126 km hraða þar sem hámarkið er 80

Kristrún segir ekki þörf á fastri viðveru bandarísks herliðs á Íslandi

„Sam­bandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel“

Varnarsamstarfið
Varn­ar­sam­starfið Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra telur ekki þörf á fastri við­veru banda­rísks her­liðs á Íslandi að svo stöddu. Mynd: RAIGO PAJULA / AFP

Kristrún Frosta­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir sam­band Íslands og Banda­ríkj­anna náið og gott, en telur ekki þörf á að banda­rískt her­lið verði aftur með fasta við­veru hér á landi þrátt fyrir aukna spennu á norð­ur­slóðum.

Banda­ríkja­her lagði niður fasta við­veru sína á Kefla­vík­ur­flug­velli árið 2006. Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, heim­sótti Ísland í síð­asta mán­uði, sem þótti til marks um aukið sam­starf ríkj­anna á sviði varnar- og örygg­is­mála.

Í við­tali í The Pulse with Francine Lacquavar á Bloomberg, er Kristrún spurð hvort heim­sókn Rubios hefði leitt til frek­ari við­ræðna við banda­rísk stjórn­völd um sam­starfið.

Hún sagði að reglu­leg sam­skipti væru við banda­rísk stjórn­völd um örygg­is­mál á norð­ur­slóðum og starf­semi ríkj­anna hér á landi.

„Við höfum átt náið sam­band við Banda­ríkin í langan tíma. Þau voru fyrsta ríkið til að við­ur­kenna Ísland sem lýð­veldi og það var fyrir til­stuðlan þeirra sem við gengum í NATO. Tvíhliða varn­ar­samn­ing­ur­inn frá 1951 var einnig mik­il­vægur grunnur að aðild okkar að NATO árið 1949,“ sagði Kristrún.

Hún sagði sam­skiptin góð á öllum stigum og að heim­sókn Rubios hefði gefið tæki­færi til að efla þau enn frekar. Hann hefði meðal ann­ars kynnt sér starf­sem­ina á NATO-stöð­inni og Kefla­vík­ur­flug­velli.

„Við munum halda áfram að skoða mögu­leika á frek­ari samn­ingum og auknu sam­starfi við Banda­ríkin,“ sagði hún.

Segir deiluna um Grænland hafa beint sjónum að norðurslóðum

Kristrún var einnig spurð hvort úrslit þing­kosn­ing­anna í Banda­ríkj­unum myndu hafa áhrif á sam­skipti Íslands við banda­rísk stjórn­völd.

Hún sagði kosn­ing­arnar inn­an­rík­is­mál Banda­ríkj­anna og að hún myndi virða vilja banda­rískra kjós­enda. Hún bætti þó við að stjórn­málaum­hverfið í land­inu hefði breyst, en sam­starf Íslands og Banda­ríkj­anna hefði verið til­tölu­lega stöðugt und­an­farin ár.

Hún nefndi sér­stak­lega deil­una um Grænland og sagði íslensk stjórn­völd hafa verið afdrátt­ar­laus í stuðn­ingi sínum við Græn­lend­inga.

„Græn­lend­ingar eru vinir okkar og nán­ustu nágrannar. Það verður að virða full­veldi og alþjóða­lög. Maður getur líka staðið fast á sínu gagn­vart banda­mönnum sínum og sagt þeim þegar manni finnst þeir fara yfir strikið,“ sagði Kristrún.

Hún sagði nið­ur­stöðu sam­komu­lags­ins milli Græn­lands, Banda­ríkj­anna og Dan­merkur sýna að ríkin gætu unnið saman.

Þótt deilan hefði verið erfið fyrir Græn­lend­inga og nágranna þeirra hefði hún einnig haft jákvæð áhrif að því leyti að athygli hefði beinst í auknum mæli að norð­ur­slóðum.

„Það hefur sýnt að margt er í gangi á svæð­inu, ekki aðeins hvað varðar örygg­is­mál heldur einnig fjár­fest­ingar og inn­viði. NATO þarf að beina sjónum sínum þangað og nú er einnig horft til norð­ur­slóða með til­liti til tæki­færa,“ sagði hún.

Ekki þörf á fastri viðveru Bandaríkjahers

Aðspurð hvort Ísland væri opið fyrir því að Banda­ríkja­her tæki aftur upp fasta við­veru hér á landi, líkt og fyrir árið 2006, sagð­ist Kristrún ekki telja þess þörf að svo stöddu.

Hún benti á að brott­hvarf banda­ríska her­liðs­ins árið 2006 hefði að ein­hverju leyti verið ein­hliða ákvörðun Banda­ríkj­anna. Íslensk stjórn­völd hefðu þó almennt stutt fasta við­veru hers­ins á þeim tíma, þótt skiptar skoð­anir hefðu verið um málið inn­an­lands.

„Sam­bandið hefur breyst síðan þá. Við berum nú meiri ábyrgð sjálf og mér finnst það hafa gengið vel,“ sagði Kristrún.

Hún benti jafn­framt á aukna þátt­töku NATO-ríkja í loft­rým­is­gæslu og eft­ir­liti hér á landi.

„Við erum mjög opin fyrir því að fleiri her­menn komi til Íslands sem hluti af því NATO-sam­starfi sem við erum aðilar að. Ég tel hins vegar ekki að við séum komin á þann stað að þörf sé á fastri við­veru. Ég held þó að við munum sjá fleiri her­menn hér á landi til að tryggja að við upp­fyllum skuld­bind­ingar okkar innan NATO,“ sagði for­sæt­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Hin sænska Karin hvarf áður en hún átti að sækja börnin sín

Sendi dularfull smáskilaboð viku fyrir hvarfið
Heimur

Þrír féllu þegar dróni réðst á bíl við mat­ar­út­hlutun á Gaza

Fólk

Fjórum árum eftir að heil­inn hót­aði upp­sögn á Karl Ágúst tvö verk á sviði

Heimur

Lögregla fjar­lægði mót­mæl­anda eftir að hafa rugl­ast á áletrun á bol hans

Fólk

Af hverju getur lyktin af mak­anum verið svona ómót­stæði­leg?

Innlent

Lög­reglan kölluð til eftir að hitn­aði í kol­unum við tölvu­leikja­spil

Sjö gist fangageymslur lögreglunnar eftir nóttina.

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Ógn­vekj­andi umfang tölvu­árásar á íslenskt hýs­ing­ar­fyr­ir­tæki

Dæmdur í níu ára fang­elsi fyrir kóka­ínsmygl með Norrænu

Talninga-Tómas verður Dómara-Tómas